Fréttablaðið - 22.05.2021, Side 16

Fréttablaðið - 22.05.2021, Side 16
AÐAL FUNDUR Félagið veitir ferða- styrk til þeirra félags- manna sem búa í meira en 40 km fjarlægð frá fundarstað. Félags iðn- og tæknigreina 2021 verður haldinn laugardaginn 29. maí kl. 10 að Stórhöfða 31, jarðhæð. Gengið inn Grafarvogsmegin. Dagskrá: 1. Skýrsla félagsstjórnar um starf félagsins á liðnu starfsári. 2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til umræðu og afgreiðslu. 3. Ákvarðanir teknar um ávöxtun sjóða félagsins. 4. Kjöri stjórnar lýst. 5. Kosning trúnaðarráðs, kjörstjórnar, skoðunarmanna reikninga, og uppstillinganefndar. 6. Kosning endurskoðenda. 7. Tillögur um fulltrúa á ársfundi lífeyrissjóða sem FIT er aðili að. 8. Önnur mál. Hádegismatur í boði félagsins. Stjórnin Athugið að gildandi reglum um sóttvarnir verður fylgt á fundinum. Fótboltamaðurinn Rúnar Már Sigurjónsson bætti öðrum meistaratitli í safn sitt þegar hann varð rúmenskur meistari með Cluj fyrr í þess­ ari viku. Rúnari Má líður vel í Rúmeníu og hann segir gæði fótboltans þar í landi hafa komið sér á óvart. hjorvaro@frettabladid.is FÓTBOLTI Rúnar Már Sigurjónsson, landsliðsmaður í fótbolta, gekk til liðs við Cluj í febrúar síðastliðnum. Nú tæpu hálfu ári síðar varð hann rúmenskur meistari með liðinu. Rúnar Már hefur þar af leiðandi orðið landsmeistari í tveimur lönd­ um en hann varð meistari í Kasak­ stan með liði sínu Astana árið 2019. „Ég hafði mætti Cluj þegar ég var hjá Astana í forkeppni Meistara­ deildar Evrópu áður en ég kom hingað þannig að ég vissi að ég var að koma í sterkt lið. Þetta er klárlega besta lið sem ég hef spilað með og pressan á að vinna titla er áþreifan­ leg,“ segir Rúnar Már um Cluj­liðið. „Skömmu eftir að ég kom til Cluj meiddist ég og þeir fóru mjög var­ lega með mig þegar ég kom til baka úr meiðslunum. Planið var að ég væri í mínu besta formi þegar úrslita­ keppnin myndi byrja og það gekk upp. Við erum með stóran leikmanna­ hóp þannig að ég er sáttur við það traust sem ég fékk þegar ég var orð­ inn heill,“ segir landsliðsmaðurinn sem skoraði þrjú mörk í þeim 12 deildarleikjum sem hann spilaði eftir að hann kom til Cluj. „Þegar út í úrslitakeppnina var komið fann ég vel fyrir því að það var pressa á að verða rúmenskur meist­ ari. Báðir bekkirnir fengu áminn­ ingu vegna mótmæla í nánast öllum leikjum og þó svo að það væru engir áhorfendur var augljóst að ástríðan fyrir liðinu er mikil. Það var mjög gaman að spila tíu leiki í úrslitakeppninni við lið af svipuðum styrkleika þar sem allt er undir,“ segir hann en Cluj varð rúm­ enskur meistari fjórða árið í röð og í sjöunda skipti í sögu félagsins. Trúin notuð til að flytja fjöll „Það var líka áhugavert að upplifa hversu stóran sess trúin fær í fót­ boltanum þegar mikilvægi leikjanna verður meira. Þá fer minna fyrir leik­ greiningu og taktík og traustið er lagt á æðri máttarvöld. Einhver æðri vera er beðin um að sjá til þess að allt fari vel. Það var magnað að sjá þetta og ég hafði ekki séð svona áður,“ segir Rúnar Már. „Markmiðið hjá liðinu er að standa sig vel í Evrópukeppnum. Það er vilji og metnaður hjá bæði félagsliðum í Rúmeníu og landsliðinu að standa sig vel á alþjóðlegum vettvangi. Það er mikil fótboltasaga í landinu og áhug­ inn er mikill. Nú vilja menn fara að gera sig gildandi aftur. Draumurinn er fara í riðlakeppni Meistaradeildarinnar og ef við förum ekki í riðlakeppni Evrópu­ deildarinnar yrðu það mikil von­ brigði. Liðið hefur staðið sig vel í Evrópudeildinni undanfarin ár og nú er planið að stíga eitt skref áfram þar,“ segir miðjumaðurinn. „Ég er með samning hérna út næsta keppnistímabil og mér líður mjög vel hérna þannig að ég ætla allavega að spila hér á næstu leiktíð. Ég tengi mjög vel við fólkið hérna í Cluj og ég mæli með við alla að spila í Austur­Evrópu. Gæðin í fót­ boltanum eru mikil og fólkið mjög vinalegt. Ég er mjög spenntur fyrir næsta tímabili,“ segir þessi þrítugi leikmaður. n Besta lið sem ég hef verið í Rúnar er fyrsti Íslendingurinn sem leikur í Rúmeníu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY A Ð A L F U N D U R Aðalfundur landsamtakanna Spítalinn okkar verður haldinn þriðjudaginn 25. maí 2021 kl. 16.00 á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í stóra salnum. DAGSKRÁ 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara 2. Skýrsla stjórnar lögð fram 3. Reikningar lagðir fram til samþykktar 4. Lagabreytingar 5. Ákvörðun félagsgjalds 6. Kosning stjórnar og tveggja skoðunarmanna reikninga 7. Önnur mál. Að loknum aðalfundarstörfum verða flutt tvö erindi; Hringbrautarverkefnið – staðan í dag - Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH Nútímaleg og batamiðuð umgjörð um geðþjónustu Landspítala - Nanna Briem geðlæknir og forstöðumaður geðþjónustu Landspítala Lokaorð – Héðinn Unnsteinsson, formaður Geðhjálpar Stjórn Spítalans okkar A Ð A L F U N D U R Aðalfundur landsamtakanna Spítalinn okkar verður haldinn þriðjudaginn 25. maí 2021 kl. 16.00 á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í stóra salnum. DAGSKRÁ 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara 2. Skýrsla stjórnar lögð fram 3. Reikningar lagðir fram til samþykktar 4. Lagabreytingar 5. Ákvörðun félagsgjalds 6. Kosning stjórnar og tveggja skoðunarmanna reikninga 7. Önnur mál. Að loknum aðalfundarstörfum verða flutt tvö erindi; Hringbrautarverkefnið – staðan í dag - Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH Nútímaleg og batamiðuð umgjörð um geðþjónustu Landspítala - Nanna Briem geðlæknir og forstöðumaður geðþjónustu Landspítala Lokaorð – Héðinn Unnsteinsson, formaður Geðhjálpar Stjórn Spítalans okkar Aðalf ndur lands mtak nna Spítalinn okkar verður haldinn þriðjudaginn 5. maí 2021 kl. 16.00 á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í stóra salnum. DA SKRÁ 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara 2. Skýrsla stjórnar lögð fram 3. Reikningar lagðir fram til samþykktar 4. Lagabreytingar 5. Ákvörðun félagsgjalds 6. Kosning stjórnar og tveggja skoðunarmanna reikninga 7. Ö nur mál. Að lokn m aðalfundarstörfum verða flutt tvö erindi; Hringbrautarverkefnið – staðan í dag - Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH Nútímaleg og batamiðuð umgjörð um geðþjónustu Landspítala - Nanna Briem geðlæknir og forstöðumaður geðþjónustu Landspítala Lo orð – Héðinn Unnsteins on, formaður Geðhjálpar Stjórn Spítalans okkar A Ð A L F U N D U R Aðalfundur landsamtakanna Spítalinn okkar verður haldinn þriðjudaginn 25. maí 2021 kl. 16.00 á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í stóra salnum. DAGSKRÁ 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara 2. Skýrsla stjórnar lögð fram 3. Reikningar lagðir fram til samþykktar 4. Lagabreytingar 5. Ákvörðun félagsgjalds 6. Kosning stjórnar og tveggja skoðu ar n a reikninga 7. Önnur mál. Að loknum aðalfundarstörfum verða flutt tvö erindi; Hringbrautarverkefnið – staðan í dag - Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH Nútímaleg og batamiðuð umgjörð um geðþjónustu Landspítala - Nanna Briem geðlæknir og forstöðuma ur geðþjónustu Landspítala Lokaorð – Héðinn Unnsteinsson, formaður Geðhjálpar Stjórn Spítalans okkar hjorvaro@frettabladid.is FÓTBOLTI Há kon Arn ar Har alds­ son hef ur fram lengt samn ing sinn við danska knattspyrnufélagið FC Kaup manna höfn en nýr samningur Skagamannsins gildir til árs ins 2026. Þá kemur fram í frétt á heima­ síðu FC Kaupmannahafnar um nýja samninginn að Hákon Arnar, sem hefur gert það gott með ungl­ inga­ og varaliðum undanfairn ár verður færður í aðalliðshóp félags­ ins í sumar. Þessi 18 ára leikmaður hef ur verið í her búðum FC Kaupmannahafnar frá ár inu 2019. Peter Peter sen, íþrótta stjóri FC Kaupmannahafnar, fór fögrum orðum um Hákon Arnar og segir hann eiga góðan möguleika á að fá tækifæri með aðalliði félags­ ins á næstu leiktíð. Há kon Arnar hef ur leikið 22 lands leiki fyrir yngri landslið Íslands og skorað í þeim leikjum fjög ur mörk. „Þetta er mjög stór dagur fyrir mig og fjölskyldu mína og mikivægur áfangi á ferlinum. Það er erfitt að ná að taka skrefið frá unglingalið­ inu í aðalliðið hjá einu stærstu félagi Norðurlandanna og því er ég mjög stoltur,“ segir Hákon Arnar í sam­ tali við heimasíðu FC Kaupmanna­ hafnar. Orri Steinn Óskarsson, fyrr­ verandi leikmaður Gróttu, er einn­ ig á mála hjá FC Kaupmannahöfn en sóknarmaðurinn ungi og efni­ legi hefur raðað inn mörkum fyrir unglinga­ og varalið félagsins síðan hann kom þangað haustið 2019. n Hákon Arnar færður í aðallið FCK Hákon á að baki 22 leiki fyrir yngri landslið Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Skagamaðurinn var í leikmannahópi FCK á dögunum en hann hefur komið við sögu í æfingaleikjum með danska stórveldinu. ÍÞRÓTTIR 22. maí 2021 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.