Fréttablaðið - 22.05.2021, Síða 24
Kjörskrár vegna kosningar um sameiningu
sveitarfélaganna Skútustaðahrepps og
Þingeyjarsveitar, sem haldnar verða laugar-
daginn 5. júní 2021, skulu lagðar fram eigi
síðar en 26. maí 2021.
Kjörskrár skal leggja fram á skrifstofu
sveitarstjórna eða á öðrum hentugum stað
sem sveitarstjórn ákveður.
Þeim sem vilja koma að athugasemdum er
bent á að senda þær hlutaðeigandi sveitar-
stjórn.
Dómsmálaráðuneytinu, 21. maí 2021.
Framlagning kjörskráa
Rannveig Ágústa Guðjóns
dóttir, doktorsnemi á
Menntavísindasviði Háskóla
Íslands, vinnur nú að verk-
efni þar sem hún rannsakar
upplifun feðra sem beitt hafa
ofbeldi í nánum samböndum.
Verkefni Rannveigar ber heitið
Feður sem beitt hafa of beldi í
nánum samböndum: orðræður,
reynsla og úrræði, og er hluti af
stærra verkefni um karla sem
beitt hafa of beldi, undir leiðsögn
Jóns Ingvars Kjaran, prófessors á
menntavísindasviði HÍ.
„Ég er sérstaklega að skoða feður
sem hafa beitt of beldi og ástæðan
fyrir því er kannski sú að það er
bara mjög viðeigandi núna, f lestir
sem beita of beldi í nánum sam-
böndum eru karlar og f lestir karlar
sem beita of beldi í nánum sam-
böndum eiga börn,“ segir Rannveig
sem búsett er í Stokkhólmi ásamt
fjölskyldu sinni.
Rannveig segist hafa byrjað rann-
sóknina á að einblína á of beldi
gagnvart maka en hún hafi fljótlega
áttað sig á því að þegar börn eru til
staðar hefur slíkt ofbeldi alltaf gíf-
urlega mikil áhrif á þau, hvort sem
þau eru verða fyrir ofbeldi á beinan
hátt eða ekki. „Hvort sem börn eru
beitt ofbeldi með beinum hætti eða
ekki þá er ofbeldi í nánu sambandi
milli foreldra eða gagnvart foreldri
alltaf of beldi gagnvart barni líka.
Þannig að ég geri ekki svo stóran
greinarmun þar á. Margir mann-
anna hafa beitt börnin sín of beldi
en ég myndi segja að í öllum tilfell-
unum hefur þetta áhrif á líf þeirra
með mjög stórum hætti,“ segir
Rannveig.
MeeToo hafði mikil áhrif
Verkefni Rannveigar skiptist í þrjá
hluta og segist hún hafa byrjað á því
að skoða umræðuna um feður í fjöl-
miðlum og þá sérstaklega feður sem
beitt hafa ofbeldi. Þegar rannsókn
hennar hafði farið fyrir Vísinda-
siðanefnd hóf hún að taka viðtöl
við gerendur og naut þar stuðnings
frá Heimilisfriði, meðferðar- og
þekkingarmiðstöð um of beldi í
nánum samböndum. Rannveig
segir MeToo-bylgjuna hafa haft
mikil áhrif á umræðuna um ofbeldi
í nánum samböndum, bæði upp-
runalega bylgjuna sem átti sér stað
2017-2018 og núverandi bylgju sem
hófst fyrir nokkrum vikum.
„Það sem er öðruvísi við þessa
MeToo-bylgju frá þeirri sem var
2017–18 er að hún er að taka ger-
endur meira inn í myndina og
umræðan snýst meira um hvernig
við ætlum að takast á við karla sem
Reynsla gerenda mikilvæg fyrir samfélagið
Þorvaldur S.
Helgason
thorvaldur
@frettabladid.is
Rannveig Ágústa
Guðjónsdóttir,
doktorsnemi á
Menntavísinda-
sviði Háskóla
Íslands.
MYND/
CAROLINA JOHANS-
SON OVIEDO
beitt hafa of beldi og hvernig við
ætlum að tala um það. Ýmsir menn
hafa verið að stíga fram og átta sig
á að hegðun þeirra í fortíðinni eða
nútíðinni er of beldi. Þannig að ég
sá fyrir mér að kannski væri hópur
þarna sem væri meira tilbúinn að
koma og tala núna, menn sem eru
kannski bara einmitt að átta sig á að
hegðun þeirra er ofbeldi og það gæti
verið mjög áhugavert fyrir rann-
sóknina að fá inn þann vinkil líka.
Sem er kannski svolítið frábrugðið
frá mönnum sem eru búnir að vera
í margra ára meðferðarvinnu eða
sjálfsvinnu,“ segir Rannveig.
Flókið að finna viðmælendur
Rannveig segir það vera flókið ferli
að finna viðmælendur fyrir verk-
efnið enda er um að ræða mjög
viðkvæm og erfið mál. Hún hefur
því tekið upp á því að auglýsa eftir
viðmælendum á samfélagsmiðlum
og heitir fyllsta trúnaði til allra sem
eru tilbúnir að segja henni sögu
sína. Rannveig segir það geta verið
erfitt að hlusta á of beldislýsingar
viðmælenda sinna en þá geti einn-
ig verið erfitt að heyra hversu mikil
áhrif það að gangast við ofbeldinu
hefur á sjálfsmynd þessara manna.
„Auðvitað er flókið og triggerandi
að hlusta á lýsingar á ofbeldi en það
sem er líka svo flókið er að hlusta á
hvað þetta er ótrúlega erfitt fyrir
sjálfsmynd þeirra. Eins og fyrir alla
er sjálfsvinna ótrúlega „skafandi“ og
berskjaldandi ferli, hvað þá þegar
það eru skapgerðarbrestir og skað-
leg hegðun sem er verið að vinna í.
Það getur verið mjög óþægilegt og
erfitt,“ segir Rannveig.
Hún segir að einn erfiðasti hlut-
inn í meðferðarvinnu gerenda sé að
samræma sjálfsmynd þeirra eftir að
þeir hafi viðurkennt að hafa beitt
ofbeldi.
„Það er oft kannski einn stærsti
hlutinn að vinna með, heyrir maður,
að þetta samræmist ekki sjálfs-
myndinni þeirra. Þessi togstreita og
árekstur, að þurfa að greiða úr því
að hegðunin sem að þú ert búinn
að beita falli ekki að sjálfsmynd-
inni. Það sem er svo f lókið þarna
sem er verið að ræða mikið núna
er þessi skrímslavæðing, af því hún
birtir ákveðna erkitýpu of beldis
og nauðgana sem verður svo svona
handrit að „alvöru ofbeldi“.“
Skaðlegar staðalímyndir
Rannveig segir skrímslavæðinguna
gera það að verkum til verði ein-
hvers konar staðalímynd „alvöru
of beldismanns“ og „alvöru brota-
þola“ en hættan við slíkt er að það
fæli fólk frá því að leita sér hjálpar
því það telur sig ekki passa fullkom-
lega inn í þessa flokka.
„Það er mjög stórt ferli að byrja að
segja: „Hegðunin mín er ofbeldi en
ég er ekki ofbeldismaður, ég vakna
ekki á morgnana og hugsa hvernig
ætla ég að beita ofbeldi í dag?“ Með
þessari staðalímynd sem við höfum
skapað um „alvöru ofbeldismann“
sjáum við fyrir okkur að það sé ein-
hver sem virkilega vaknar og hefur
það sem markmið að beita fólk
ofbeldi,“ segir Rannveig.
Hún segir orðræðuna sem á sér
stað í fjölmiðlum um jafnrétti og
það sem viðkemur of beldi karl-
manna vera mjög f lókna því þar
mætist fjölmörg ólík sjónarmið sem
sé mikilvægt að taka tillit til.
„Þarna f léttast saman margar
flóknar orðræður. Það er þessi jafn-
réttisorðræða um að við ætlum að
lifa í samfélagi sem byggir á kynja-
jafnrétti og í því felst að auka þátt-
töku kvenna á vinnumarkaði en
jafnframt að auka þátttöku feðra í
uppeldi barna. Þetta er eitthvað sem
við höldum mjög sterkt á lofti og
erum mjög stolt af, að við ætlum að
vera samfélag sem eykur þátttöku
feðra. Rannsóknir sýna að þetta
verður mjög sterkur hluti af sjálfs-
mynd karla, hvort sem þeir eiga
börn eða ekki. Samhliða þessari
orðræðu erum við svo með barátt-
una fyrir því að við ætlum að vernda
börn og fólk fyrir ofbeldi. Þar verður
til þessi núningur,“ segir Rannveig.
Reynsla gerenda og brotaþola
Spurð hvort hún reyni á einhvern
hátt að sannreyna frásagnir við-
mælenda sinna út frá hlið brotaþola
segir Rannveig að mikilvægt sé að
geta rannsakað upplifun gerenda án
þess að það dragi á einhvern hátt úr
upplifun brotaþola.
„Þarna er svo ótrúlega mikilvægt
að rannsóknin byggi á femínískum
kenningum um reynslu. Það verður
akkeri í því að finna einhvers konar
jafnvægi á milli þess að hlusta, trúa
og taka gilda upplifun og reynslu
þeirra karlmanna sem ég tala við.
Einmitt ekki að draga í efa þeirra
reynslu en á móti kemur að ég er
líka svolítið með rjómann af því
þetta eru karlmenn sem koma til
mín tilbúnir að viðurkenna að
þeir hafi beitt of beldi og eru yfir-
leitt að vinna með það gagngert að
hætta því. En mér finnst mikilvægt
að hluti af rannsókninni sé líka
að ganga út frá reynslu brotaþola
og barna. Það verður að vera mjög
sterkt akkeri að þarna erum við að
tala um raunverulegar afleiðingar
ofbeldis fyrir brotaþola og börn.“
Aðspurð um hverjar væntingar
hennar séu til verkefnisins segir
Rannveig að hennar framlag í
umræðuna um of beldi í nánum
samböndum sé að koma með
reynslu gerenda inn í þá umræðu.
„Það er samfélagslega mikilvægt
að skoða sérstaklega þeirra reynslu
og hingað til hafa athuganir á
ofbeldi í nánum samböndum rétti-
lega mest beinst að konum og brota-
þolum. En það er ótrúlega mikil-
vægt til að fá dýpri heildarmynd
af vandanum að tala sérstaklega
við karla sem hafa beitt of beldi og
í þessu tilviki feður. Það getur leitt
til áhrifaríkra tillagna að úrbótum
og forvörnum að skilja betur hvar
þeir upplifa breytingar, erfiðleika
og óþægindi.“
Engin ein lausn við ofbeldi
Rannveig segir enga eina lausn vera
gagnvart of beldi í nánum sam-
böndum en að hluti af lausninni sé
að eiga ítrekuð og erfið samtöl um
þessi mál á ólíkum vettvangi. Í því
samhengi séu hreyfingar á borð við
MeeToo mjög mikilvægar.
„Þetta verður ekki leyst einn
tveir og bingó, annars væri búið að
því. En lausnin hlýtur samt alltaf
að felast í því að ræða um ofbeldið,
hvað er ofbeldi og hvernig upplifum
við það? Það verður að vera einhver
möguleiki að ræða við gerendur
með uppbyggilegum hætti. Það
verður að vera afturkvæmt í sam-
félagið og það verður að vera mögu-
leiki á að ræða það og horfast í augu
við það,“ segir Rannveig.
Hún segir það þó sérstaklega
mikilvægt að taka tillit til brota-
þola hvað slíka umræðu varðar og
fara eftir óskum þeirra varðandi
það hvernig umræðan á sér stað.
„Margir brotaþolar vilja að þeir
sem beitt hafa of beldi komi fram,
biðjist afsökunar og taki ábyrgð á
því sem þeir hafa gert. Ekki með ein-
hverjum óljósum hætti eins og „Ég
fór yfir mörk“ heldur segi nákvæm-
lega hvað það var sem gerðist. Aðrir
brotaþolar vilja alls ekki fá neitt
samband og það verður að virða
það að reynslan er svo ólík eftir því
í hvað samhengi hún er. Reynsla
margra núna af því of beldi sem
þeir hafa upplifað er allt öðruvísi
heldur en þegar það átti sér stað af
því að samfélagslega umræðan er að
breytast og reynsla breytist í takt
við menningu og samtölin sem við
erum að eiga. Þess vegna eru margir
að átta sig á að reynsla þeirra af því
sem þeim fannst einhvern tíma
eðlilegt og bara glötuð samskipti er
kannski eitthvað annað og meira,“
segir Rannveig að lokum.
Rannveig Ágústa er sem stendur
að leita að viðmælendum fyrir rann-
sókn sína á of beldi feðra í nánum
samböndum. Þeim sem hafa áhuga
á að leggja henni lið er bent á að
hafa samband í gegnum netfangið
rag43@hi.is. n
Það verður
að vera
einhver
möguleiki
að ræða
við ger-
endur með
uppbyggi-
legum
hætti.
24 Helgin 22. maí 2021 LAUGARDAGUR