Fréttablaðið - 22.05.2021, Síða 32
ISAL í Straumsvík er fjölbreyttur vinnustaður
sem byggir framtíð sína á framúrskarandi
starfsfólki. Við framleiðum hágæða ál með
heilbrigðis-, jafnréttis- og öryggismál í fyrirrúmi
í sátt við umhverfi og samfélag.
Umsækjandi þarf að fara í heilsufarsskoðun
ef af ráðningu verður.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni
viðkomandi til að gegna starfinu.
Leitar þú nýrra tækifæra? Rio Tinto á Íslandi óskar eftir að ráða jákvæðan og drífandi einstakling í
starf sérfræðings í búnaðarmálum. Um er að ræða spennandi og krefjandi starf í hóp búnaðar og
reksturs í steypuskála.
Starfssvið:
• Umsjón með áreiðanleika búnaðar í steypuskála.
• Bestun á frammistöðu búnaðar.
• Skipulag og yfirferð ástandsvöktunar.
• Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi steypuskála innan samsteypunnar.
• Stöðugar umbætur framleiðsluferla og framleiðslutækni.
• Tryggja að vörur uppfylli kröfur viðskiptavina.
• Framfylgja öryggisstefnu fyrirtækisins.
• Samskipti við viðhaldssvið og verktaka.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Verkfræðimenntun á sviði véla eða rafmagns, eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
• Þekking á iðntölvustýringum kostur.
• Þekking á gæðastýringum, tölfræði og hæfni til greiningarvinnu.
• Reynsla af viðhaldi búnaðar og áreiðanleikafræðum.
• Mjög góðir samskiptahæfileikar.
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
• Góð íslensku- og enskukunnátta.
• Sterk öryggisvitund.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsóknarfrestur er til og með 31. maí nk.
Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is.
Umsjón með starfinu hafa Auður
Bjarna dóttir (audur@vinnvinn.is)
og Hildur Jóna Ragnarsdóttir
(hildur@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn.
Sérfræðingur í búnaðarmálum
Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og
miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni
og lífsgæði fyrir einstaklinga og samfélag með
siðgæði, sjálfbærni og ábyrgð að leiðarljósi.
Kennsla og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík
mótast af sterkum tengslum við atvinnulíf
og samfélag. Lögð er áhersla á þverfagleika,
alþjóðlegt umhverfi, nýsköpun og góða
þjónustu. Nemendur Háskólans í Reykjavík
eru um 3700 í sjö deildum og starfa um 250
fastir starfsmenn við háskólann auk fjölda
stundakennara.
Við leggjum ríka áherslu á jákvæð samskipti
og góða samvinnu og kunnum vel að
meta frumkvæði, nákvæmni og hraða í
vinnubrögðum.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
færni viðkomandi til að gegna starfinu og
upplýsingar um árangur sem viðkomandi
hefur náð og telur að nýtist í starfi.
Háskólinn í Reykjavík leitar að metnaðarfullum og skilvirkum einstaklingi í fullt starf sölu- og
markaðsstjóra sem jafnframt sinnir starfi forstöðumanns Opna háskólans. Um er að ræða fjölbreytt
starf en sérstaklega er horft til fólks með reynslu á sölu- og markaðsstarfi. Starfið felst í umsjón og
ábyrgð Opna háskólans, áætlunagerð og eftirfylgni með áætlunum, meðal annars í aðkomu að hvers
kyns sölu- og framlegðargreiningum tengdum rekstri sem og framþróun starfsemi Opna Háskólans.
Viðkomandi gefst tækifæri til að þróa og innleiða nýja ferla sem bæta vinnulag og upplýsingagjöf.
Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra reksturs.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Ábyrgð á markaðssetningu námskeiða hjá Opna háskólanum.
• Samskipti við viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila.
• Viðskiptaþróun Opna háskólans.
• Upplýsingagjöf til stjórnenda skólans.
• Kynningar og sala á netinu.
• Gerð markaðsáætlana og markaðsefnis.
• Markaðsgreiningar og áætlunagerð.
• Greining nýrra markaðstækifæra.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Meistaranám í viðskiptafræði, rekstrarhagfræði eða sambærileg menntun er skilyrði.
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og tengslamyndun.
• 3-5 ára reynsla af sambærilegu starfi.
• Reynsla og þekking af stjórnun ásamt sölu- og markaðsstarfi.
• Hæfni til að vinna með tölur og flókin gagnasöfn.
• Góð tölvufærni og kunnátta er skilyrði.
• Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.
• Hæfni til að starfa sjálfstætt og í hópi.
• Hæfni til að tjá sig á íslensku og ensku.
• Hæfni í miðlun tölfræðilegra upplýsinga.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsóknarfrestur er til og með 4. júní nk.
Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is.
Umsjón með starfinu hafa Hilmar
G. Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is)
og Jensína K. Böðvarsdóttir
(jensina@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn.
Forstöðumaður