Fréttablaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 74
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS
ÍSLENSK HÖNNUN
Útskriftar-
tilboð
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS
ÍSLENSK HÖNNUN
Útskriftar-
tilboð
Jarðvísindakona deyr, er
fimmta skáldsaga Ingibjargar
Hjartardóttur, en hún hefur
einnig skrifað leikrit, smá
sögur, ljóð, ævisögu og fengist
við þýðingar.
Þessi nýja skáldsaga gerist í nútím
anum. Titillinn kann að gefa til
kynna að hér sé á ferð glæpasaga.
Spurð um það segir Ingibjörg: „Þetta
er ekki hefðbundin glæpasaga,
þarna er verið að fjalla um hugsan
legan glæp. Þetta er miklu frekar
gamansaga með harmrænu ívafi.“
Grunsamlegur dauði
Spurð um söguþráðinn segir hún:
„Bókin hefst á því að verið er að taka
fyrstu skóflustungu að nýju kísilveri
við kaupstaðinn Selvík sem er ekki
langt frá höfuðborginni. En þar
hefur verið erfitt ástand, atvinnu
leysi og fólksf lótti eftir að aðal
atvinnurekandinn hvarf á brott
með allt sitt hafurtask. Á þeim
fimmtán árum sem liðin eru hefur
íbúunum fækkað um helming.
Skyndilega dúkkar upp bjarg
vættur, amerískur auðkýfingur
sem ætlar að reisa kísilverksmiðju
við Selvík. En áður en af því verður
þurfa öll leyfi að liggja fyrir og
meta þarf umhverfisþætti eins og
jarðskjálftahættu og þess háttar.
Staðsetning kísilversins er á einu
virkasta jarðskjálftasvæði lands
ins. Leyfi fæst og allt lifnar við,
brottf luttir snúa heim og framtíð
byggðarlagsins er borgið.
Jarðvísindakonan Agnes, sem
fengin var til þess að gera jarð
Sendir frá sér gamansögu
með harmrænu ívafi
kolbrunb@frettabladid.is
Stofnun Árna Magnússonar í
íslenskum fræðum og Íslensku og
menningardeild Háskóla Íslands
halda ráðstefnu í minningu Her
manns Pálssonar en öld er liðin frá
fæðingu hans. Ráðstefnan verður
haldin í Auðarsal, Veröld, Húsi
Vigdísar við Suðurgötu miðviku
daginn 26. maí frá 16.00 til 18.00.
Þar munu vinir Hermanns og koll
egar fjalla um verk hans en líka um
manninn.
Hermann Pálsson, prófessor við
háskólann í Edinborg, var einn af
áhrifa og af kastamestu fræði
mönnum á sviði íslenskra fræða á
seinni hluta 20. aldar. Bækur hans
skipta tugum og greinar hund
ruðum. Hann var einnig mikil
virkur þýðandi íslenskra fornbók
mennta á enska tungu. Í gegnum
þær kynntust f leiri kynslóðir les
enda um heim allan fornsögunum.
Eva María Jónsdóttir setur ráð
stefnuna og erindi f lytja Vésteinn
Ólason, Ásdís Egilsdóttir, Magnús
Ha nnesson, Guðr ú n Norda l ,
Ármann Jakobsson, Aðalheiður
Guðmundsdóttir, Örnólfur Thors
son, Annette Lassen, Guðmundur
Andri Thorsson, Torfi H. Tulinius
og Gísli Sigurðsson.
Ráðstefnan er öllum opin og
þátttaka er ókeypis. ■
Ráðstefna í minningu
Hermanns Pálssonar
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
skjálftamat á svæðinu, finnst látin í
bíl sínum í djúpu gljúfri uppi á heið
inni nokkrum dögum áður en taka á
fyrstu skóflustunguna að kísilverinu.
Þetta er saga æskuvinkvennanna
Margrétar og Sigríðar sem komnar
eru vel yfir miðjan aldur. Þeim finnst
strax dauði jarðvísindakonunnar
grunsamlegur og fara á stúfana og
komast að því að ekki er allt sem
sýnist. En munu þær segja frá? Þær
vita að ef þær gera það verður hætt
við byggingu kísilversins og allt fer
í sama óstandið og áður. Framtíðar
heill fjölskyldna og vina verður
verulega ógnað. Hvað er verra en að
rústa lífi sinna nánustu?“
Réttvísi kvenna
Spurð hvort greina megi pólitískan
tón í bókinni segir Ingibjörg: „Á
yfirborðinu virðist þetta vera saka
málasaga í léttum dúr en undir niðri
er þetta háalvarleg samfélagsgagn
rýni þar sem pólitískir og efna
hagslegir hagsmunir svífast einskis.
Þetta er saga um líf í landi, um átök
sem felast í eftirfarandi spurning
um: Hafa almannavarnir eða aðrir
eftirlitsaðilar eitthvert ákvörðunar
vald þegar kemur að því að vara
almenning við aðsteðjandi hættu ef
það stríðir gegn æðri hagsmunum,
eins og valdi og gróða? Hvers má
sín réttvísi tveggja roskinna kvenna
gegn hagsmunum heils byggðarlags,
jafnvel allrar þjóðarinnar? Geta vís
indamenn yfirleitt gert „hlutlaust“
mat á umhverfisþáttum eins og
hamfarahættum? Munu ekki þeir
sem réðu þá til verksins alltaf hafa
áhrif á niðurstöðuna? ■
Þarna er verið að fjalla um hugsanlegan glæp, segir Ingibjörg Hjartardóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Undir niðri
er þetta
háalvarleg
samfélags-
gagnrýni
þar sem
pólitískir
og efna-
hagslegir
hagsmunir
svífast
einskis.
Öld er liðin frá
fæðingu Her-
manns Pálsson-
ar prófessors.
MENNING 22. maí 2021 LAUGARDAGUR