Fréttablaðið - 27.05.2021, Side 15
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
Sennilega er ekki of djúpt í árinni
tekið að Björn Bjarnason og Hlédís
Sveinsdóttir hafi opnað blindgötu
í umræðum um landbúnaðarmál
með nýju umræðuskjali, sem þau
unnu fyrir stjórnvöld og birt var
fyrir skömmu.
Í fyrrahaust tilkynnti landbún-
aðarráðherra að í mars á þessu ári
yrði sett fram fullmótuð stefna,
sem gerði Ísland að forystulandi
í heiminum öllum í heilnæmum,
sjálfbærum og samkeppnishæfum
landbúnaði.
Skipbrot
Þessi yfirlýsing ráðherrans var
dæmi um þá blindgötu, sem land-
búnaðarumræðan hefur verið í um
langan tíma. Umræðan hefur byggst
á upphöfnum yfirlýsingum um
bestu afurðir í heimi. Sú staðhæfing
hefur síðan verið notuð til þess að
herða fjötra um lokað óbreytt mið-
stýringarkerfi.
Allir sem höfðu eitthvað annað
fram að færa voru úthrópaðir óvinir
landbúnaðarins. Umræða, sem var
föst í þessu fari, gat ekki leitt til
framfara.
Skýrasta dæmið um árangur
ríkjandi stefnu birtist í fyrrahaust.
Skömmu áður en ráðherra talaði um
forystu Íslands var frá því greint að
fyrir dýrasta kjöt í allri Evrópu
fengju íslenskir bændur lægstu laun
allra kjötframleiðenda í álfunni.
Skipbrot stefnunnar gat ekki
verið augljósara. En tíðindin komu
engum á óvart.
Ekki ný tíðindi
Í febrúar á síðasta ári skrifaði Guðni
Ágústsson, fyrrum landbúnaðar-
ráðherra og formaður Framsóknar:
„Margir telja að landbúnaðurinn
verði horfinn atvinnugrein nema
vakning verði og viðsnúningur.“
Nokkrum dögum síðar kom
Daði Már Kristófersson, prófessor
og núverandi varaformaður Við-
reisnar, fram í sjónvarpi og sagði:
„Ég held að núverandi kerfi sé þann-
ig að síðasti bóndinn slekkur ljósið.“
Enginn getur efast um sterkar
taugar beggja þessara manna til
landbúnaðarins. Þeir komast að
sömu niðurstöðu um það sem blasir
við. En sýn þeirra á hitt, hvað skuli
til bragðs taka, hefur lengi verið ólík.
Menn færast nær
Guðni Ágústsson telur að vanda
landbúnaðarins megi fyrst og fremst
rekja til þess að landbúnaðarráðu-
neytið var lagt niður sem sjálfstæð
stjórnsýslueining. Helsta ráð hans
hefur því verið að endurvekja það.
Veruleikinn er þó sá að í áratugi
hafa fjármálaráðuneytið og utan-
ríkisráðuneytið farið með þau
mál, sem eru uppistaðan og ívafið í
núverandi landbúnaðarkerfi, ríkis-
styrki og tollavernd.
Daði Már Kristófersson hefur
á hinn bóginn talað árum saman
fyrir mörgum þeirra grundvallar
breytinga, sem fram koma í nýja
umræðuskjalinu. Og það ánægju-
lega er að Guðni Ágústsson hall-
mælir ekki skjalinu og viðurkennir
það sem grundvöll umræðu.
Kálið er ekki sopið
Það var hyggilegt að setja fram
umræðuskjal fremur en fastmótaða
stefnu. Pólitísk umræða um það
er eftir. Kálið er ekki sopið þótt í
ausuna sé komið.
Blindgata opnuð
En tímamótin felast í því að nú
er búið að opna umræðu um þetta
efni á miklu víðtækari grundvelli en
áður mátti. Þetta er því afar jákvætt
framlag inn í kosningaumræður.
Landbúnaðurinn stendur mjög
nálægt hjarta f lestra Íslendinga.
Það kemur fram í því að kjósendur
hafa ekki verið mjög ósáttir við há
framlög til bænda.
En hitt er í raun ófært, hvort held-
ur horft er til bænda, neytenda eða
skattgreiðenda, að jafn háir ríkis-
styrkir og jafn rík tollvernd skili
hæsta kjötverði í Evrópu og lægstu
launum.
Gefa þarf rúman aðlögunartíma
Athyglisvert er að horfa til Breta í
þessu samhengi. Útganga þeirra
úr Evrópusambandinu virðist ætla
að leiða til grundvallarbreytinga á
búskaparháttum svipuðum þeim
sem lýst er í umræðuskjalinu.
Au k in sk r i f f innsk a veldu r
breskum bændum erfiðleikum
með útf lutning. Pólitíkin þar í
landi stendur auk þess andspænis
köldu vali. Til þess að gera nýja
fríverslunarsamninga þarf hún
væntanlega að slaka á þeim ströngu
heilbrigðiskröfum, sem Evrópu-
reglurnar setja og bændur og neyt-
endur þar í landi hafa verið sáttir
við eins og hér.
Þá virðist verð á ræktuðu landi í
Bretlandi lækka í hlutfalli við land
sem betur er fallið til þeirra breyt-
inga sem í vændum eru.
Mikilvægt er að gefa breytingum
góðan tíma. En við erum þó í svip-
aðri stöðu og Bretar að því leyti að
þær þurfa að gerast hraðar en í Evr-
ópusambandinu. n
Afsláttardagar
í Netapóteki Ly avers
Afhendum
samdægursá höfuðborgarsvæðinumán–lau ef pantaðer fyrir kl. 13:00
lyaver.is
Suðurlandsbraut 22
10% af lausasöluly um. Kóði: lausasala
15% af öllum vörum. Kóði: vörur
Lýkur sunnudag 30. maí.
Gildir aðeins í netverslun.
Frí heimsending um land allt!*
*Frí heimsending ef pantaðir eru tveir lyfseðlar
eða verslað er fyrir meira en 9.900 krónur.
Skoðun 15FIMMTUDAGUR 27. maí 2021