Fréttablaðið - 27.05.2021, Side 23

Fréttablaðið - 27.05.2021, Side 23
Heimsferðir hófu nýlega samstarf við ítalska flug- félagið Neos, sem mun sinna flugi til áfangastaða ferða- skrifstofunnar. Þar er nú boðið upp á mikið úrval af alls kyns ferðum til ólíkra áfangastaða svo allir geta fundið ferð sem hentar þeim og þeirra áhugasviði. Heimsferðir hafa gengið frá samningi við ítalska flugfélagið Neos, sem mun sinna flugi til allra áfangastaða ferðaskrifstofunnar í sumar og næsta vetur. Flugvél frá Neos kemur til Íslands 11. júní og það verður flogið til Krítar, Verona á Ítalíu, Malaga, Alicante og Tener- ife. Þá hafa Heimsferðir einnig gert samning um sölu á tvö þúsund sætum til ítalskra ferðaskrifstofa fyrir sumarið og er talið að þetta geti opnað fyrir mögulega fjölgun ítalskra ferðamanna til Íslands. Samningurinn er ekki sá fyrsti sem ferðaskrifstofan gerir við flug- félagið, útskýrir Tómas J. Gestsson, framkvæmdastjóri Heimsferða. „Fyrsti samningurinn við Neos var gerður fyrir tveimur árum síðan og það gekk vel hjá okkur sumarið og haustið 2019 og þeir eru áhuga- samir um frekari samvinnu á næstu misserum og vilja helst auka þetta ár frá ári. Þessi samningur er aðeins stærri en sá síðasti en við viljum ekki fara of geyst í þetta, heldur taka þetta skref fyrir skref.“ Hann segir Neos mjög spennt fyrir Íslandi og að félagið hafi áhuga á því að fljúga meira til Íslands með ítalska farþega í framtíðinni. Þegar Tómas er spurður hvers vegna þetta flugfélag hafi orðið fyrir valinu hjá Heimsferðum segir hann að Neos skilji vel þarfir ferðaskrifstofa, enda er félagið í eigu stærstu ferðaskrifstofu Ítalíu, Alpitours. „Þó að þeir séu einnig í áætlunarflugi, þá eru þeir skiln- ingsríkir og hafa mikla þekkingu á ferðaskrifstofumarkaðnum. Þess vegna erum við mjög ánægð með þá og ég á von á því að þetta sam- starf haldi áfram.“ Fimm daga í viku í sumar Neos flugfélagið þjónustar Heims- ferðir fimm daga í viku í sumar. „Vélin kemur til landsins á mánu- dagskvöldum og við fljúgum henni hérna hjá okkur þriðjudag, mið- vikudag, fimmtudag og föstudag,“ segir Tómas. Flogið verður með Boeing 737-800 flugvél og eru 186 farþegasæti í boði. „Þessi flugvéla- tegund hefur reynst okkur mjög vel og við höfum notað slíkar flug- vélar mikið í gegnum árin. Með haustinu mun framboðið á ferðum aukast og flugvélin verður hjá okkur alla daga vikunnar.“ Tómas segir áherslurnar í ferða- lögum á haustin í takti við þær breytingar sem verða á lífi landans á þessum árstíma. „Í lok sumars, þegar skólar byrja, fækkar almennt fjölskylduferðunum. Sumarið er yfirleitt tími fjölskylduferða og í gegnum árin höfum við boðið upp á ferðir til allt að 17 sólaráfanga- staða. Á haustin eru viðskipta- vinir aðallega pör, einstaklingar og minni hópar sem ferðast á sólar- strandir á stöðum eins og Tenerife, Kanarí á Spáni, Sikiley á Ítalíu og portúgölsku eyjunni Madeira.“ Vetrarflug til Alicante „Alicante hefur selst mjög vel í haust og við verðum með tvö morgunflug á viku þangað í sept- ember og október. Síðan verðum við í fyrsta sinn með vikuleg flug þangað allan næsta vetur,“ segir Tómas. „Gríska eyjan Krít og Costa del Sol á Spáni eru áfangastaðir sem eru vinsælir í september. Einnig bjóðum við upp á beint flug til Sikileyjar í byrjun október. Um Heimsferðir koma þér þangað sem þig langar Tómas J. Gests- son, fram- kvæmdastjóri Heimsferða. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTONBRINK Heimsferðir verða með ferðir til Ljubljana, höfuðborgar Slóveníu. Boðið verður upp á borgarferðir til ítölsku borgarinnar Verona í beinu flugi. Ferðir til portúgölsku eyjunnar Madeira eru ávallt vinsælar, enda eyjan fögur. Það verða tvö morgunflug á viku til Alicante í september og október. Costa del Sol á Spáni er áfanga- staður sem er vinsæll í september. miðjan október byrjar svo flug til Kanaríeyja, en þangað verður flogið í allan vetur. Tenerife verður sífellt vinsælli staður og það er eini áfangastaðurinn sem boðið er upp á flug til allt árið. Við verðum einnig með tvær ferðir þangað frá Akureyri í haust eins og undan- farin ár. Við vorum líka að bæta við þremur aukaferðum um jólin til Tenerife vegna mikillar eftir- spurnar. Madeira er síðan á dag- skrá 28. september, en sú ferð er ávallt vinsæl, enda er eyjan fögur.“ Margar borgarferðir í boði Tómas segir að áhugi erlendra gesta á Íslandi hjálpi líka til við að auka framboðið, en Heims- ferðir bjóða upp á margar borgar- ferðir í haust. „Við verðum meðal annars með ferðir til Ljubljana, höfuðborgar Slóveníu, einnar af leyndum perlum Evrópu. Lissabon er önnur mjög áhugaverð borg og falleg og samkvæmt öllum könn- unum er hún mjög hagkvæmur og ódýr áfangastaður. Við fljúgum þangað á þeim tíma ársins þegar reikna má með mjög þægilegu hitastigi,“ útskýrir Tómas. Þá eru einnig í boði borgarferðir til Porto og Verona í beinu flugi. Í nóvember verður svo ferð til Edin- borgar frá Akureyri og til Glasgow frá Egilsstöðum. Sérferðir sífellt vinsælli „Eftirspurn eftir ferðum eins og golfferðum, hjólaferðum, göngu- ferðum og fleiri ferðum sem tengj- ast áhugamálum viðskiptavina okkar hefur aukist mikið á undan- förnum árum og við höfum selt mikið af ferðum í golf til Spánar í sumar,“ segir Tómas. „Í haust verður svo golfsvæðið Las Colinas í boði í fyrsta sinn, en þar er afskaplega glæsileg aðstaða til golfiðkunar. Fleiri sérferðir njóta sífellt meiri vinsælda, en þar má helst nefna gönguferðir til Cinque Terre, en undanfarin ár hafa Heimsferðir boðið upp á 4-5 ferðir þangað sem ávallt seljast upp. Þá er einn- ig í boði 10 daga gönguferð til Vindeyja í október og níu daga gönguferð á Madeira í lok septem- ber, ásamt vikuferð til Toskana í september,“ segir Tómas. „Síðast en ekki síst erum við með ferð til Sorrento á Ítalíu í október. Sorr- ento kúrir í hlíðum við safírbláan Napolíflóann innan um vínekrur og sítrustré. Frá Sorrento er stór- kostlegt útsýni yfir flóann með eyjarnar Capri á vinstri hönd og Ischia beint af augum. Umgjörðin er stórkostleg um þennan fallega bæ, en miðpunktur Sorrento er í kringum Tasso-torgið. Þar koma íbúar og ferðamenn saman og sitja á kaffihúsum og virða fyrir sér mannlífið. Litlar hellulagðar hliðargötur ganga svo út frá torg- inu með úrval af veitingastöðum, börum, ísbúðum og kaffihúsum.“ Eftirspurn eftir siglingum eykst „Eftirspurn eftir siglingu á skemmtiferðaskipum hefur verið vaxandi og æ fleiri láta það eftir sér að fara í slíka siglingu,“ segir Tómas. „Heimsferðir selja árlega um 300 manns siglingar hingað og þangað um heiminn. Í vetur eru meðal annars í boði ferðir um Karíbahafið og einnig er mjög vinsælt að sigla um Miðjarðar- hafið. Vaxandi vinsældir slíkra ferða skýrast meðal annars af því að íslenskir ferðalangar hafa lært að þessar ferðir eru ódýrari en fólk almennt heldur. Það má segja að um borð í stóru skemmtiferðaskipi finnist allt sem hugurinn girnist. Það er hægt að ganga að því vísu að þar séu góðir veitingastaðir, líkamsrækt og heilsurækt og um borð eru líka kvikmyndasalir, leikhús og á hverju kvöldi eru tónleika- og skemmtidagskrár með völdum listamönnum,“ segir Tómas. „Hægt er að slaka á á sólbekk, taka sprett í sundlauginni, dansa við lif- andi tónlist á kvöldin eða freista gæfunnar í spilavíti. Sum skipanna eru nánast eins og fljótandi borgir með 3-4.000 manns um borð. Það má segja að Heimsferðir bjóði upp á ferðir fyrir alla og fólk getur fundið ferðir við sitt hæfi, hvort sem það er afslöppun með fjölskyldunni á sólarströnd eða ferð þar sem áhugamálin eru ráð- andi í dagskránni. Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest í ferðum hjá okkur og munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að gera ferðir ykkar sem ánægjulegastar,“ segir Tómas að lokum. n Eftirspurn eftir ferðum eins og golfferðum, hjólaferð- um, gönguferðum og fleiri ferðum sem tengj- ast áhugamálum við- skiptavina okkar hefur aukist mikið. Tómas J. Gestsson FIMMTUDAGUR 27. maí 2021 UTANLANDSFERÐIR kynningarblað 3

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.