Fréttablaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 34
Tímabilið hefur verið frábært
hjá Hörpu Rut Jónsdóttur
og liðsfélögum hennar hjá
svissneska liðinu Zug, en liðið
varð tvöfaldur meistari á ný
afstöðnu keppnistímabili. Þá
kemur Harpa Rut til greina í
kjöri um besta leikmann leik
tíðarinnar.
hjorvaro@frettabladid.is
HANDBOLTI Harpa Rut Jónsdóttir
varð í upphafi vikunnar svissneskur
meistari í handbolta kvenna með
liði sínu Zug, en fyrr á þessu ári
varð liðið bikarmeistari. Harpa Rut
fluttist til Sviss fyrir fjórum árum og
hefur leikið með Zug síðastliðin tvö
keppnistímabil.
Harpa Rut lék síðast hér á landi
með KA/Þór keppnistímabilið 2014
til 2015. Síðan þá hefur hún leikið
erlendis, fyrst í Danmörku og svo á
svissneskri grundu.
„Ég var í lýðháskóla í Danmörku
og kynntist þar svissneskum strák.
Við fluttum saman til Sviss og fyrir
tveimur árum gekk ég til liðs við
Zug. Þar hefur mér liðið mjög vel og
ég bætt mig mikið inni á handbolta
vellinum,“ segir hún.
Harpa Rut er ein af þeim sem
koma til greina í kjöri á besta leik
manni svissnesku efstu deildar
innar á nýlokinni leiktíð, en kjörið
stendur yfir til 30. maí.
„Við erum með ungt lið og stefnan
fyrir tímabilið var að vera í topp
baráttu, en okkur var ekki spáð
titlinum. Við byrjuðum tímabilið
ekkert sérstaklega vel en við þéttum
raðirnar eftir áramót og höfum haft
betur í síðustu tólf leikjum okkar í
deild og bikar,“ segir línumaðurinn
um tímabilið.
„Það var geggjað að ná að landa
titlinum og ég er eiginlega enn þá í
skýjunum. Að vinna tvöfalt var ekki
í kortunum um áramótin, en þetta
hefur heldur betur þróast í skemmti
lega átt. Það var líka frábært að
stuðningsmenn okkar gátu mætt á
leikina í úrslitaviðureigninni.
Tíu stuðningsmönnum hvors
liðs var heimilt að mæta á leik
ina. Það er hefð fyrir því í Sviss að
stuðningsmenn skapi stemmingu
með kúabjöllum og okkar frábæru
stuðningsmenn bjuggu til geggjað
andrúmsloft með kúabjöllunum
og trommuslætti. Það var frábært
að geta fagnað með þeim loksins,“
segir línumaðurinn sterki.
„Það er spilaður mjög hraður
handbolti hérna í svissnesku deild
inni og mikil áhersla á líkamlegan
styrk þar að auki. Það eru fimm
sterk lið í deildinni og baráttan í
úrslitakeppninni var mjög hörð,“
segir hún.
„Ég sé alls ekki eftir því að hafa
flutt til Sviss. Hér hef ég komið mér
mjög vel fyrir og mér finnst eins
og ég sé orðin ein af fjölskyldunni
hjá Zug. Það er mjög góð umgjörð
í kringum liðið og ég sé fram á að
vera hérna áfram næstu árin,“ segir
norðankonan.
Handboltavertíðin hefur gengið
afar vel hjá fjölskyldu Hörpu Rutar
en sama dag og Zug varð bikarmeist
ari varð systir hennar, Anna Mary
Jónsdóttir, deildarmeistari með
uppeldisfélagi Hörpu Rutar, KA/
Þór. Það var fyrsti deildarmeistara
titillinn í sögu félagsins. n
Voru ósigrandi þegar mest á reyndi
Handbolta-
konan Harpa
Rut Jónsdóttir
og samherjar
hennar hjá Zug
fagna hér vel
og innilega
meistaratitl-
inum sem liðið
landaði fyrr í
þessari viku.
MYND/AÐSEND
kristinnpall@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR Ári eftir að Naomi Osaka
bætti met Serenu Williams sem
tekjuhæsta íþróttakona heimsins,
setti Osaka ný viðmið á síðasta
ári þegar tekjur hennar jukust um
tæplega helming. Tennisstjarnan
var samkvæmt útreikningum við
skiptatímaritsins Sportico í 15. sæti
yfir launahæsta íþróttafólk heims
með 55,2 milljónir dala í tekjur á
síðasta ári, eða rúmlega 6,7 millj
arða króna.
Osaka hafði bætt met Serenu árið
2019 þegar hún var með rúmlega
37,4 milljónir dala í heildartekjur,
en á síðasta ári vann Naomi tvo risa
titla og var með fimmtíu milljónir
dala í aðrar tekjur. Með því jukust
heildartekjur Naomi um tæplega
47,6 prósent upp í rúmlega 55 millj
ónir dala.
Líkt og í fyrra eru Serena og
Naomi einu konurnar á listanum
yfir þá hundrað tekjuhæstu meðal
íþróttamanna í heiminum. n
Osaka sér á báti
Osaka hefur unnið fjóra risatitla á
ferlinum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Arkitektar óskast
til að hanna með okkur
vinnustað framtíðarinnar
Nýjar höfuðstöðvar
Við leitum að arkitektum til að skapa með okkur
vinnustað framtíðarinnar – vinnustað sem veitir
innblástur og uppfyllir fjölbreyttar þarfir starfsfólks.
Nýjar höfuðstöðvar okkar munu rísa á Flugvöllum 1
í Hafnarfirði og við stefnum á flutning fyrir lok árs 2023.
Óskað er eftir frumhugmyndum og skissum sem skal
skila eigi síðar en 21.júní nk.
Hefur þú áhuga? Sendu tölvupóst á hq@icelandair.is
og við sendum þér nánari upplýsingar.
icelandair.is
ÍÞRÓTTIR 27. maí 2021 FIMMTUDAGUR