Fréttablaðið - 27.05.2021, Page 36

Fréttablaðið - 27.05.2021, Page 36
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Kæru ættingjar og vinir, hjartans þakkir fyrir þá hlýju og samúð sem okkur var sýnd við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, Sigfúsínu Stefánsdóttur Sínu Sérstakar þakkir eru sendar til alls starfsfólks HSN Siglufirði, fyrir einstaka umönnun og hlýju. Jón S. Björgvinsson Ingibjörg H. Kristjánsdóttir Gunnlaugur S. Vigfússon Þóra B. Jónsdóttir og fjölskyldur. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Elís Gunnar Kristjánsson húsasmíðameistari, lést á Vífilsstöðum þriðjudaginn 25. maí. Sérstakar þakkir til starfsfólks Vífilsstaða fyrir einstaka hlýju og umhyggju. Ólafur Elísson Stella Skaptadóttir Anna Björg Elísdóttir Stefán Jóhann Björnsson Atli Þór Elísson Hlynur Elísson Addý Ólafsdóttir Trausti Elísson Sif Þórsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn og bróðir okkar, Ingimar Adólfsson lést 8. maí í Malmö, Svíþjóð. Jarðarförin fer fram í Malmö 29. maí. Lotzy Adólfsson Reynir Adólfsson Friðrik Adólfsson Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ragnheiður Kristín Benediktsson (Dúlla) kennari, andaðist að Droplaugarstöðum 8. maí síðastliðinn. Útför hennar fer fram frá Neskirkju föstudaginn 28. maí kl. 13.00. Athöfninni verður einnig streymt á www.sonik.is/ragnheidur Haukur Filippusson Þórdís Hauksdóttir Benediktsson Orri Hauksson Selma Ágústsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Margrét Valtýsdóttir Ársölum 3, Kópavogi, lést á heimili sínu 22. maí. Útförin fer fram frá Lindakirkju þriðjudaginn 1. júní kl. 15. Arnar Viðar Halldórsson Valdís Arnarsdóttir Guðmundur Hrafnkelsson Halldór Arnarsson Borghildur Sigurðardóttir Sigurborg Arnarsdóttir Helgi Ólafsson og barnabörn. Elskuleg mamma mín, tengdamamma, amma, langa- og langalangamma, Helga Steinunn Jónsdóttir frá Syðstabæ í Hrísey, verður jarðsungin frá Hríseyjarkirkju laugardaginn 29. maí klukkan 14. Athöfninni verður einnig streymt á https://fb.me/e/1sKY6iDrD Jóna Jóhannsdóttir Hannes Sveinn Gunnarsson ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn. Okkar ástkæra Ásta Garðarsdóttir frá Fáskrúðsfirði, lést á Grund fimmtudaginn 6. maí. Útförin fer fram frá Háteigskirkju, föstudaginn 28. maí klukkan 13.00. Jóhanna Jakobsdóttir Dennis Magditch Björg Jakobsdóttir Ómar Eyfjörð Friðriksson Hjörleifur Jakobsson Hjördís Ásberg Herdís Jakobsdóttir Guðmundur Ingi Guðmundsson Hjördís Þóra Hólm Þór Wium barnabörn og barnabarnabörn. Sinfóníuhljómsveit áhugamanna sem stofnuð var 1990 býður upp á afmælistónleika í Seltjarnar- neskirkju á laugardag og flytur þar verk eftir Bach og Beethoven. gun@frettabladid.is „Við freistum þess nú að hefja tónleika- hald eftir hlé,“ segir Páll Einarsson, jarð- eðlisfræðingur og sellóleikari í Sinfóníu- hljómsveit áhugamanna, um veglega afmælistónleika í Seltjarnarneskirkju 29. maí. Þá átti að halda í fyrra þegar sveitin var þrítug en var frestað vegna heimsfar- aldursins. Á efnisskrá er Brandenborgar- konsert númer 6 eftir Bach og Sinfónía númer 1 eftir Beethoven. Stjórnandi verður Oliver Kentish. „Ég held það séu bara tíu manns í Brandenborgarkonsertinum, flestum er gefið frí, meira að segja fiðluleikurunum, sem er mjög óvenjulegt í svona hljóm- sveit,“ lýsir Páll, sem var einn af stofn- endum sveitarinnar 1990. En hversu fjöl- menn er hún? „Við mönnum hana eins og þarf þegar við flytjum eitthvað. Flest erum við um 60 og erum svo gjarnan í samstarfi við kóra svo oft erum við mörg á sviði. Nú er samt enginn kór, við erum bara að fikra okkur af stað eftir COVID. Byrjuðum að æfa fyrir tveimur mánuð- um, eftir því sem reglur leyfðu. Urðum að fara mjög hægt af stað en stefndum að því að vera tilbúin þegar losnaði um samkomutakmarkanir og það er núna, þannig að þetta var rétt skipulagt.“ Páll tekur undir það að í sveitinni sé fólk með ríka spádómsgáfu. „Þetta er fjölbreytilegur hópur fólks úr öllum stéttum og á öllum aldri,“ segir hann og hrósar stjórnandanum Oliver fyrir að ná að stilla hann saman. „Það er ekki öllum gefið að halda utan um svona hóp sem er þó skemmtilegur að vinna með. Við æfum reglulega eitt kvöld í viku, allir koma þreyttir eftir vinnu og fara heim glaðir og ánægðir. Þetta er eigin- lega eina hléið sem við höfum tekið á 30 ára ferli. Í venjulegu árferði eru haldnir fimm til sex tónleikar á ári, þannig að alltaf er eitthvað að stefna að og allt er það metnaðarfullt,“ lýsir Páll og bætir við að Seltjarnarneskirkja sé heimahöfn sveitarinnar. Tónleikarnir hefjast klukkan 16 á laug- ardaginn og ókeypis er inn, en gestum er boðið að styrkja starf sveitarinnar með frjálsum framlögum. n Fagna tímamótum með tónum Seltjarnarneskirkja er heimahöfn sveitarinnar og þar var þessi mynd tekin á æfingu í fyrrakvöld. MYND/SVERRIR GUÐMUNDSSON Urðum að fara mjög hægt af stað en stefndum að því að vera tilbúin þegar losnaði um samkomutak- markanir og það er núna. gun@frettabladid.is Fornleifarannsókn hefur farið fram við hinn gamla Árbæ í Árbæjarsafni undan- farin sumur. Stjórnandi hennar, Sólrún Inga Traustadóttir, mun hefja leiðsögn gesta  um uppgraftarsvæðin á bæjar- stæðinu í kvöld, fimmtudaginn 27. maí, klukkan 20. Þar mun hún segja frá rann- sókninni og þeim minjum sem hafa nú þegar komið í ljós. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á búsetusögu og þróun Árbæjar ásamt því að miðla fornleifa- fræði og niðurstöðum til almennings. Leiðsögnin er ókeypis og undir lok hennar gefst gestum kostur á að taka þátt í að móta nýjar rannsóknarspurn- ingar með því að taka þátt í könnun. n Fornar rætur Árbæjar rannsakaðar Með uppgreftrinum er reynt að varpa ljósi á búsetusögu og þróun Árbæjar. MYND/AÐSEND TÍMAMÓT 27. maí 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.