Fréttablaðið - 27.05.2021, Page 44

Fréttablaðið - 27.05.2021, Page 44
Í LOFTINU REYKJAVÍK SÍÐDEGIS VIRKA DAGA 16:00-18:30 Sækja frá SÆKTU NÝJA APPIÐ! Sýning á verkum grínistans og myndlistarmannsins Ladda verður opnuð í Ármúlanum í dag. Laddi segist hafa byrjað að mála fyrir um áratug, þegar konan hans byrjaði að mála. Hann nýtti tímann í heims- faraldrinum í myndlistina. Í dag verður opnuð sýning á verkum Þórhalls Sigurðssonar, betur þekkts sem Ladda, eins ástsælasta leikara landsins. Hann segist spenntur enda hefur hann þurft að bíða í marga mánuði eftir að halda sýninguna vegna heimsfaraldursins. „Það eru komin tvö ár frá síðustu sýningu, lítið verið hægt að gera síðan. Ég ætlaði að hafa hana í febrú- ar en svo erum við bara búin að bíða. Í kvöld fer fram opnun á sýningunni og hún stendur yfir út 10. júní,“ segir hann. Nýtti tímann vel Hann segir verkin í súrrealískum stíl og portettmyndir inni á milli, af skemmtilegum fígúrum. „Svo kemur expressjónisminn inn í þetta. Súrrealískt og skemmtilegt, alls ekki abstrakt.“ Laddi nýtti tímann vel í Covid-19 til að sinna listinni. „Já, klárlega, maður hafði meiri tíma og gat meira verið að mála. Ég prufaði líka ýmislegt nýtt. Þetta eru fleiri verk núna en ég var með á síðustu sýningu, þannig að maður kom þeim nú ekki öllum upp í einu. En það verður þá hægt að bæta á ef að þess þarf.“ Hann byrjaði að mála fyrir alvöru fyrir áratug. „Ég hef verið að teikna mikið í gegnum tíðina en byrjaði að mála um það leyti sem ég varð sextugur. Þá fannst mér vera kominn tími á það og byrjaði að fikta mig áfram. Það stóð alltaf til að verða mynd- listarmaður en ég mátti aldrei vera að því, þar sem það kom alltaf eitt- hvað annað upp á. Tónlist og grín, Stóð alltaf til að verða myndlistarmaður Laddi lýsir verkum sínum sem nokkuð súrrealískum. Hann málar alls konar fígúrur að eigin sögn. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Eitt af verkunum sem verða á sýningunni. Steingerður Sonja Þórisdóttir steingerdur @frettabladid.is og maður fór í þann bransa, hljóm- sveita- og skemmtibransann,“ útskýrir Laddi. Kom með sprengingu En hvað kom til að þú gafst þér loks- ins tíma til að byrja að mála? „Á þessum tíma var ég með sýn- inguna Laddi 6-tugur, sem gekk nú í tvö ár. Þá byrjaði konan mín allt í einu að mála af því ég var svo mikið í burtu öll kvöld. Ég hafði ekki einu sinni hugmynd um að hún hefði áhuga á þessu. Þá fór ég að mála með henni. Hún kom mér af stað.“ Það eru eflaust ekki margir sem vita af þessu áhugamáli Ladda. „Fólk veit fæst af því, að ég sé að mála og hafi alltaf teiknað mikið. Ég fór voðalega leynt með þetta,“ segir hann sposkur. „Svo bara kom þetta svolítið með sprengingu, eins og ég sagði áðan, þá stóð þetta alltaf til. Ég sagði alltaf að ég yrði að bíða með þetta þar til að ég yrði gamall. Og svo þegar konan byrjaði þá hugsaði ég bara ókei, nú er kominn rétti tíminn og ég hef verið að mála síðan,“ segir hann. Sýningin er í Smiðjunni Galleríi, Ármúla 36, og opnunin hefst klukk- an 20.00. Sýningin stendur yfir til 10. júní. n Ég hef verið að teikna mikið í gegnum tíðina en byrjaði að mála um það leyti sem ég varð sextugur. 28 Lífið 27. maí 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.