Víkurfréttir - 13.01.2021, Síða 4
Átta stórar rúður sprungu í Sigurjónsbakaríi
„Við vorum að baka í mestu rólegheitum þegar hurðin
fauk upp og rúðurnar sprungu,“ segir Sigurjón Héðinsson,
bakarameistari í Sigurjónsbakaríi.
Mikið tjón varð í bakaríinu síðast-
liðinn föstudagsmorgun þegar
gegnumtrekkur um framreiðslurými
bakarísins varð til þess að útihurð
fauk upp og á sama tíma sprungu
átta stórar rúður og nokkrar minni.
Gruggapóstarnir enduðu úti á gang-
stétt og glerið kastaðist langt út á
bílastæði. Tjón varð á bílum á bíla-
stæðinu.
Aðkoman að vettvangi við bak-
aríið var eins og sprenging hafi orðið
inni í bakaríinu. Smiðir sem komu á
vettvang á föstudagsmorgun segjast
aldrei hafa séð annað eins. Þeirra
verk var að hreinsa upp gler og svo
að slá upp grind og klæða.
Sigurjón þakkar fyrir að enginn
var á gangi framhjá húsinu þegar
ósköpin urðu. Þá hefði getað farið
illa.
Tjónið er mikið en starfsemin
hefur þrátt fyrir ósköpin lítið raskast.
Kökur og brauð voru í ofnunum og
bleiku snúðarnir komnir fram í
búðina.
Ánægja og ham-
ingjuóskir frá
bæjarstjórn
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar
óskar verðlaunahöfum jólahúss
og ljósahúss 2020 til hamingju
með viðurkenningar. Jólahús
var valið Dynhóll 6 og ljósahús
Hlíðargata 43.
Þá lýsir bæjarstjórn Suður-
nesjabæjar ánægju með og
þakkar fyrir jólaþátt Suðurnesja-
bæjar sem sendur var út í sam-
starfi við Víkurfréttir fyrir jólin.
Reykjavíkurborg
leitar til Suður-
nesjabæjar
Reykjavíkurborg hefur leitað til
Suðurnesjabæjar varðandi sam-
starf um greiðslu gistináttagjalds
í neyðarathvörfum Reykjavíkur-
borgar fyrir heimilislausa. Fjöl-
skyldu- og velferðarráð Suður-
nesjabæjar leggur til að gengið
verði til samninga við Reykja-
víkurborg um greiðslu gisti-
náttagjalds í neyðarathvörfum
fyrir heimilislausa þjónustuþega
Suðurnesjabæjar.
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar
samþykkti samhljóða á síðasta
fundi sínum að ganga til samn-
inga við Reykjavíkurborg, sbr.
samþykkt ráðsins.
Atvinnustaða kvenna á Suður-
nesjum slæm vegna Covid-19
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar lýsir enn og aftur miklum áhyggjum vegna fjölda atvinnulausra einstaklinga í
sveitarfélaginu og beinir því til stjórnvalda að leggja enn meiri áherslu á úrlausnir fyrir atvinnulífið og ein-
staklinga, í samstarfi við sveitarfélög og aðra aðila. Þetta kemur fram í afgreiðslu bæjarstjórnar á fundargerð
fjölskyldu- og velferðarráðs bæjarins.
„Jafnframt er vakin athygli á þeirri staðreynd að mikið atvinnuleysi af völdum heimsfaraldurs kórónuveiru hefur
mest áhrif á atvinnustöðu kvenna á Suðurnesjum, sem er mikið áhyggjuefni,“ segir í afgreiðslu bæjarstjórnar
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Ljósahúsið Hlíðargata 43.
Jólahúsið Dynhóll 6.
Iðnaðarmenn mættu strax til
að hreinsa upp glerbrot og
glugga. VF-mynd: Hilmar Bragi
4 // vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM Í 40 ár