Víkurfréttir - 13.01.2021, Síða 19
Heimasíðan Grindavíkurbæ ekki til framdráttar
Fræðslunefnd Grindavíkurbæjar ræddi um framsetn-
ingu upplýsinga um fræðslumál á heimasíðu Grinda-
víkurbæjar á síðasta fundi sínum, sem fræðslunefnd
telur mjög ábótavant.
„Fræðslunefnd ítrekar mikilvægi þess að ljúka við
vinnuna sem var sett í gang fyrir nokkrum árum í
hönnun og framsetningu. Ljóst er að erfitt er að finna
upplýsingar á síðunni, það eru tómir tenglar þar, gamlar
upplýsingar og ekki notendavænt umhverfi fyrir stjórn-
endur. Heimasíðan er Grindavíkurbæ ekki til framdráttar
eins og hún er í dag,“ segir í afgreiðslu nefndarinnar frá
7. janúar síðastliðnum.
Fagna menn-
ingarstefnu
Grindavíkur
Fræðslunefnd Grindavíkur-
bæjar fagnar því að menn-
ingarstefna Grindavíkur-
bæjar líti dagsins ljós og að
tónlistarskóli verði í boði
fyrir nemendur á öllum aldri
og að kostnaður grunnskóla-
barna verði sambærilegur við
íþróttaæfingar. Þetta kemur
fram í fundargögnum frá síð-
asta fundi nefndarinnar sem
var haldinn 7. janúar síðast-
liðinn en unnið hefur verið
að endurskoðun á menningar-
stefnu Grindavíkurbæjar.
Í umsögn nefndarinnar
kemur fram að fræðslunefnd
telur að bókasafnið og starfsemi
þess sé ekki nægilega sýnilegt
í stefnunni og möguleikar þess
í aðkomu menningu séu ekki
fullnýttir.
Skjáskot af vef Grindavíkurbæjar.
Grindavíkurbær hefur gert
þjónustusamning við TG Raf
ehf. í Grindavík um viðhald
gatnalýsingar í Grindavík og
led-væðingu.
Niðurstöður opins útboðs
vegna viðhalds og led-væðingar
gatnalýsingar liggja fyrir. TG
Raf ehf. voru lægstbjóðandi en
tilboð þeirra var 34.859.188 kr.
sem er 78,28% af kostnaðará-
ætlun.
Samningur við TG Raf lagður
fram til kynningar á fundi bæj-
arráðs en sviðsstjóri skipulags-
og umhverfissviðs sat fundinn
undir þessum dagskrárlið í
gegnum fjarfundabúnað.
Varaaflsstöð
tengd íþrótta-
miðstöð
Grindavíkur
Grindavíkurbær hefur fjárfest í
varaaflsstöð og vinna er í gangi
við að setja hana upp til að keyra
íþróttamiðstöðina á varaafli. Hug-
mynd er einnig um að tengja vara-
aflstöðina við spennistöð nærri
íþróttamiðstöðinni þannig að hún
gæti líka keyrt Víkurbraut 62 þar
sem Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
er til húsa ásamt mögulega fleiri
mannvirkjum.
Fjöldarhjálparstöð í Grindavík
hefur verið staðsett í Hópsskóla en
er nú í íþróttamiðstöð, þó verður
Hópsskóli áfram tiltækur ef skipta
þarf upp hópum, segir í gögnum frá
fundi almannavarnanefnd Grinda-
víkur.
Þrjú forgangs-
atriði í menning-
arstefnu
Frístunda- og menningarnefnd
Grindavíkur hefur unnið að endur-
skoðun menningarstefnu Grinda-
víkurbæjar frá því í apríl 2019.
Nefndin stóð m.a. fyrir opnum
fundi með íbúum, opinni könnun
á vef sveitarfélagsins auk þess
sem drög að stefnunni voru kynnt
íbúum þar sem þeim gafst kostur á
að senda inn ábendingar og athuga-
semdir.
Nefndin telur að forgangsatriði
í framkvæmd stefnunnar til ársins
2024 ættu að vera:
1. Börnum og unglingum standi til
boða að nýta og þróa hæfileika
sína á sviði lista og menningar.
2. Kvikan verði menningarhús
Grindvíkinga með rúmgóðum
fjölnotasal.
3. Viðburðum á vegum Grindavíkur-
bæjar verði dreift yfir árið.
Frístunda- og menningarnefnd hefur
vísað stefnunni til afgreiðslu í bæjar-
ráði Grindavíkur.
Sem stendur er nú unnið að því að byggja áfanga 2 við Hópsskóla í Grindavík en um er að ræða 1.100 m2 byggingu á einni hæð auk þess verður kjallari
undir hluta byggingar. Það er Grindin ehf. sem sér um framkvæmdina. Í viðbyggingu verða m.a. fjórar heimastofur ásamt fjórum öðrum stofum fyrir
textílmennt, myndmennt, heimilisfræði og smíði. Viðbyggingin mun tengjast núverandi skóla að austanverðu og byggjast til suðurs, í átt að Hópinu.
Gert er ráð fyrir að taka áfangann í notkun í byrjun árs 2022, segir á vef Grindavíkurbæjar. Myndin var tekin á mánudag. VF-mynd: Hilmar Bragi
Útveggir viðbyggingar Hópsskóla rísa
TG Raf ehf.
viðheldur
gatnalýsingu
Íþróttamiðstöðin í Grindavík verður tengd varaaflsstöð. VF-mynd: Hilmar Bragi
Lumar þú á frétt
úr Grindavík?
Þú getur sent okkur línu á vf@vf.is
vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM Í 40 ár // 19