Víkurfréttir - 13.01.2021, Síða 20
Lífsvenjur og bláu svæðin
Eflaust hafa margir komið sér upp ákveðnum lífs-
reglum í lífinu, meðvitað eða ómeðvitað. Þessar reglur
hafa haldið sér í gegnum ár og áratugi meðan aðrar
hafa stoppað stutt við og lognast út af. Í byrjun árs er
ágætis tími til að fara yfir helstu lífsreglur, festa góðar
reglur enn betur í sessi en ýta öðrum út sem hafa lítinn
sem engan tilgang eins og reykingar eða kyrrsetu lífs-
stíll.
Margir hafa séð þætti Helgu Arnardóttur, Lifum lengur,
sem fjallar um bláu svæðin (Blue Zones). Bláu svæðin
eru Loma Linda í Kanada, Nicoya Peninsula í Kosta
Ríka, Sardinía á Ítalíu, Ikaria við strendur Grikklands og
á eyjunni Okinawa við Japan. Á þessum svæðum býr fólk
við meira langlífi en gengur og gerist á öðrum stöðum
í heiminum og margir íbúar verða yfir 100 ára gamlir.
Sérfræðingar og almenningur velta þess vegna fyrir sér:
Hver getur verið lykillinn að langlífi?
Það sem er sameiginlegt með fólki sem býr á bláu
svæðunum eru sérstaklega sex lífsstílseinkenni. Þessi
eftirfarandi einkenni virðast stuðla að langlífi þeirra:
• Fjölskyldan er sett í fyrsta sæti
• Lítið er um reykingar
• Meirihluti matar sem er neyttur
er fenginn úr plönturíkinu
• Stöðug dagleg hreyfing er óaðskiljan-
legur hluti af daglegu lífi
• Almenn félagsleg þátttaka fólks
í samfélaginu er mikil
• Belgjurtir eru mikið notaðar í matargerð
Það er ekkert eitt atriði sem hentar öllum varðandi mat-
aræðið. Leyndarmálið er að borða úrval af fersku og litríku
fæði sem unnið er úr plönturíkinu, eins og ávexti, græn-
meti, baunir og fleira. Hópar sem lifa að mestu á plöntu-
fæði eru heilbrigðastir og lifa einna lengst. Íbúar á bláu
svæðunum verja miklum tíma undir beru lofti. Þeir ganga
og njóta fersks lofts og birtu allan daginn. Hreyfing er mjög
áberandi á bláu svæðunum þar sem íbúar hreyfa sig mikið
utandyra. Hreyfingin er þeim eins náttúruleg eins og borða
eða sofa. Það sama á við um svefninn. Þau leggja mikla
áherslu á að fá góðan svefn og taka jafnvel miðdegislúr.
Fólk sem býr á þessum svæðum er meðvitað um ákveðinn
tilgang með lífinu. Þau læra frá unga aldri að setja sér
markmið, sýna ákveðni og temja sér þakklæti. Öll bláu
svæðin hafa sterkar samfélagslegar fjölskylduhefðir sem
eru leiðandi í gegnum allt þeirra líf. Góð vináttu- og fjöl-
skyldusambönd hafa góð áhrif á heilsu þeirra og hamingju.
Þetta er einn sá þáttur sem þau setja í forgang. Á bláu
svæðunum er borin virðing fyrir þeim sem eldri eru. Þau
taka þátt í samfélaginu og hafa hlutverk sem skipta máli
þar sem reynsla þeirra miðlast til yngri kynslóða. Ákveðið
viðhorf er ríkjandi á svæðunum og má nefna seiglu, jafnað-
argeð, þolinmæði og kímni.
Í því umhverfi sem við lifum í dag er bæði æskilegt
og hollt að velta þessum þáttum fyrir sér, mynda okkur
skoðun um lífsstíl sem æskilegt væri að fylgja eftir eða
styrkja þann lífsstíl enn frekar sem við þegar búum við.
Ef til vill inniheldur þinn lífsstíll eitthvað af þessum at-
riðum. Ef svo er þá getur verið gott að festa þessi atriði
enn betur í sessi samhliða því að finna ákveðinn tilgang
með tilveru þinni. Hugmynd okkar með heilsueflingu
eldri aldurshópa sem og yngri er að styrkja þá enn frekar
í sínu jákvæða lífsstílsferli og efla einstaklinginn og hvetja
til enn frekari dáða.
Anna
Sigríður
Jóhannes-
dóttir,
BA sálfræði
og MBA
Janus Guð-
laugsson,
PhD-íþrótta-
og heilsu-
fræðingur
Fjölmennasti fjarnámshópur Háskólabrúar Keilis
Ásókn í fjarnám Háskólabrúar heldur áfram
að aukast og hefja í janúar um eitt hundrað
nýnemar nám við skólann sem eru umtals-
vert fleiri en á sama tíma í fyrra. Bætast þeir
við núverandi nemendahóp Háskólabrúar
sem hóf nám síðastliðið haust en það var
metár í umsóknum. Aldrei hafa því jafn-
margir einstaklingar lagt stund á frumgrein-
anám innan Keilis en í ársbyrjun 2021.
Keilir hefur boðið upp á aðfaranám til há-
skóla frá árinu 2007 og hafa á þeim tíma átt
sér stað miklar framfarir í kennsluháttum
samhliða breyttum þörfum og kröfum nem-
enda. Nú geta nemendur því valið að sækja
Háskólabrú í staðnámi eða fjarnámi, bæði með
og án vinnu. Tekið er við nýnemum í fjarnám
tvisvar árlega (í janúar og ágúst), bæði með
og án vinnu, og einu sinni á ári í staðnám Há-
skólabrúar (í ágúst).
Boðið er upp á Háskólabrú í samstarfi við Há-
skóla Íslands og gildir námið til inntöku í allar
deildir háskólans. Keilir hefur markað sér sér-
stöðu í að veita einstaklingsmiðaða þjónustu
og stuðning við nemendur. Kennsluhættir taka
mið af þörfum fullorðinna nemenda, miklar
kröfur eru gerðar um sjálfstæði í vinnubrögðum
og eru raunhæf verkefni lögð fyrir.
Samkvæmt nýlegri eftirfylgnikönnun Keilis
til útskrifaðra nemenda hefur mikill meirihluti
nemenda Háskólabrúar hafið háskólanám og
telja sig hafa fengið góðan undirbúning fyrir
nám á háskólastigi að aðfaranámi loknu.
Margrét hvarf
Umræður á rafrænum bæjarstjórnar-
fundi 5. janúar urðu mjög líflegar
þar sem Margrétarnar Sanders og
Þórarinsdóttir fóru nokkuð mikinn.
Margrét Sanders afneitaði þar m.a.
bæjarstjóranum en í miðri ræðu
Margrétar Þórarinsdóttur, þar sem
hún var að fjalla um ummæli bæjar-
stjórans, slitnaði sambandið og hún
komst ekki aftur í samband við
fundinn fyrr en nokkru síðar. Þegar
þetta gerðist „í beinni“ og ljóst að
Margrét var dottin úr netsambandi
sagði Guðbrandur Einarsson, forseti
bæjarstjórnar og fundarstjóri: „Hvað
varð um bæjarfulltrúann? Forseti
bæjarstjórnar frestaði umræðum um
þetta mál en þegar Margrét komst í
ræðustól aftur sagðist hún ekki hafa
meira um málið að segja. Skemmst
er frá því að segja að ummæli Mar-
grétar Þórarinsdóttur á bæjarstjórn-
arfundi í desember urðu landsfræg
en þá sagði hún á miðjum rafrænum
bæjarstjórnarfundi svo allir heyrðu:
„Krakkar – mig vantar hleðslutæki
strax!“ Því er spurn? Hvernig stóð
á því að bæjarfulltrúi Miðflokksins
komst ekki í áramótaskaupið?
Rafmagnað andrúmsloft
Það er óhætt að segja að það hafi
ekki ríkt eins góður andi á bæjar-
stjórnarfundum í Reykjanesbæ að
undanförnu eins og var kjörtíma-
bilinu 2014–2018. Þá var snerist allt
um að koma fjárhag Reykjanesbæjar
í rétt horf og þá voru sjálfstæðis-
menn miklu þægari enda þeir sem
fengu skammirnar fyrir að koma
bæjarfélaginu í slæma fjárhagsstöðu.
Nú er ekki sama uppi á teningnum
og óhætt að segja að andrúmsloftið á
undanförnu rafrænu bæjarstjórnar-
fundunum hafi verið rafmagnað.
Nú er aðeins eitt ár í það að bæjar-
pólitíkin fari að hreyfast meira enda
kosningar áætlaðar vorið 2022.
Hvað gerist þá?
Guðbrandur á þing
Meira um pólitíkina. VF heyrði
nýlega frá sitjandi þingmönnum í
Suðurkjördæmi og flestir eru að
bjóða sig fram að nýju. Einn þeirra
sem er að velta þingframboði fyrir
sér er Guðbrandur Einarsson, for-
seti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar
og oddviti Beinnar leiðar. Vitað er að
Viðreisn hefur áhuga á að hann leiði
lista þeirra í kjördæminu. Bubbi mun
vera að íhuga málið.
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Skrifstofa fjármála – Rekstrarfulltrúi
Velferðarsvið - Liðveisla
Almenn umsókn - Reykjanesbær
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum
vef Reykjanesbæjar, Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru
jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf.
Hægt er að leggja inn almenna umsókn
á sama stað. Þeim er komið til stofnana
sem eru í leit að starfsfólki. Almennar
umsóknir fyrnast að sex mánuðum liðnum.
Viðburðir
í Reykjanesbæ
Listasafn Reykjanesbæjar - Á sjó
Á sjó er pop-up sýning úr safneign listasafnsins og að
þessu sinni er þemað sjómennskan, sem er tenging við
sögu Suðurnesja og staðsetningu Duus Safnahúsa við
sjóinn og smábátahöfnina. Listasafnið á mikið safn verka
sem sýna sjómenn að störfum, báta í höfn og sjósett skip.
Sýninginn var áður sett upp í stuttan tíma, ágúst árið 2020,
því sáu færri Á sjó, en vildu hafa í Reykjanesbæ.
Sýningastjóri, Á sjó, er Helga Arnbjörg Pálsdóttir,
listfræðingur, sem nú starfar hjá Listasafni Reykjanesbæjar.
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verður ekki hefðbundin
sýningaropnun, en Á sjó opnar fyrir almenna sýningu
miðvikudaginn 13. janúar og stendur til 9. febrúar 2021.
Yfir tvö þúsund
einstaklingar hafa lokið
Háskólabrú Keilis frá fyrstu
brautskráningunni árið 2008.
SVART OG SYKURLAUST
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HELGI SVEINBJÖRNSSON
Smáratúni 44, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 9. janúar.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 21. janúar kl. 13.
Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur
vera viðstaddir athöfnina.
Athöfninni verður streymt á
www.facebook.com/groups/helgisveinbjornsson
Sveinbjörn Helgason Riina Elisabet Kaunio
Þorbergur Grétar Helgason Anna Bryndís Óskarsdóttir
Sæþór Helgason
Sólveig Harpa Helgadóttir
Skúli Helgason Tatiana Matejová
Andri Helgason Kristjana Hjaltadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
20 // vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM Í 40 ár