Víkurfréttir - 13.01.2021, Síða 24
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga frá kl. 09:00 til 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
S t æ r s t a f r é t t a - o g a u g l ý s i n g a b l a ð i ð á S u ð u r n e s j u m
Mundi
Engir Fávitar
... á Víkurfréttum!
HEILSUSAMLEGAR
VÖRUR FRÁ COSTCO
Barónsstíg 4, 101 Reykjavík • Mýrarvegi, 600 Akureyri • Hafnargata 51-55, 230 Reykjanesbæ
Twenty
twenty
won
Ég er klárlega ekki í markhópi þeirra
sem horfir á TikTok öllum stundum.
Fyrir þá lesendur sem vita ekki vita
hvað TikTok er þá verða þeir bara
að gúggla það. Sem árvökul móðir
tveggja ungra kvenna sem eru mjög
virkir notendur þessa miðils er ég
auðvitað komin með aðgang þar til
þess að geta fylgst með. Það getur
verið áhugavert að gleyma sér við
það að horfa á það sem fólk víðs-
vegar að er að birta þarna inni. Eitt
af því sem ég hnaut oft um eftir
áramótin var einmitt það sem fékk
mig til þess að staldra við og er efni
þessa pistils.
Twenty twenty won (lesist 2021)
er það ár sem við mannfólkið tökum
fagnandi á móti eftir þær hörmungar
sem dundu á okkur á síðasta ári. Árið
sem allt á að verða betra. Árið sem
allt á að verða venjulegt aftur. Aldrei
aldrei hef ég orðið vitni að öðru eins
gamlárskvöldi, ljósadýrð í flugeldum
lýstu upp himininn og á sama tíma
skall á myrkvuð og reykjarmett
þokan. Við Íslendingar settum met
í flugeldakaupum og kepptumst við
að sprengja þetta ár í loft upp. Ár sem
leikið hefur okkur illa, eins og komið
hefur ítrekað fram í fjölmiðlum. Bráð-
smitandi Covid hefur haft þau áhrif
að efnahagur landa hefur aldrei verið
verri, heimilisofbeldi hefur aukist til
muna, skilnuðum hefur fjölgað og
síðast en alls ekki síst hefur veiran
dregið tæpar tvær milljónir jarðarbúa
til dauða. Fordæmalausir tímar. Öll
vitum við þetta og meira til en í upp-
hafi nýs árs langar mig til þess að
horfa á hina hliðina á peningnum – og
þá kemur að því sem titill pistilsins
vísar í og TikTok notendur kepptust
við að birta; Twenty twenty won
eða 2020 vann! Hvaða skilaboð
eru það að árið 2020 hafi unnið?
Það er jú ansi margt sem breyttist
í okkar eðlilega lífi sem fékk mann
til þess að horfa á þessa fordæmu-
lausu tíma út frá öðru sjónarhorni og
endurmeta marga hluti. Við vörðum
meiri tíma inn á heimilinu og með
„kúlunni“ okkar. Það hefur auðvitað
reynt meira á alla en á sama tíma
hafa tengslin styrkst og okkar allra
nánasta „kúla“ er orðin ennþá nánari
og tengslin sterkari. Þessi þvingaða
samvera hefur neytt okkur til að vera
umburðarlyndari við hvert annað.
Tengsl okkar við náttúruna og okkar
nærumhverfi hafa sjaldan verið
meiri. Íslendingar hafa stundað úti-
vist og hreyft sig utandyra sem aldrei
fyrr í skugga lokana á skipulögðum
líkamsræktarstöðum. Við þurfum að
sækjast sérstaklega eftir félagsskap
annarra í raunheimi og spakmælið
„maður er manns gaman“ úr Eddu-
kvæðum hefur öðlast nýja og dýpri
merkingu fyrir okkur. Já, þetta er ekki
alslæmt eftir allt. Svo hefur losun
gróðurhúsalofttegunda snarminnkað
í þokkabót.
Ekki misskilja mig. Ég sakna þess
að faðma fólk utan „kúlunnar“, geta
ekki stundað mitt yoga utan heim-
ilisins, félagslegra samskipta og alls
hins sem er of langt mál að telja upp
en allir vita hvað ég á við. En hvernig
sem á það er litið þá höfum við, sem
og heimurinn allur, haft gott af því
að líta okkur nær og jafnvel inn á við.
Kannski verður heimurinn betri eftir
2020 og það verði 2021 sem hafi
vinninginn að lokum?
LOKAORÐ
Ingu Birnu Ragnarsdóttur