Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.05.2021, Side 4

Víkurfréttir - 19.05.2021, Side 4
Rétturinn Ljúengur heimilismatur í hádeginu Opið: 11-13:30 alla virka daga   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is „Móttökurnar eru framar okkar bestu væntingum,“ segir Willy Nielsen, verslunarstjóri Rúmfa- talagersins í Reykjanesbæ, í samtali við Víkurfréttir. Strax við opnun verslunarinnar síðasta föstudag myndaðist röð út á götu og vegna samkomutakmarkana þurfti að telja viðskiptavini inn í búðina allan daginn. Willy segir að það hafi verið brjálað að gera alla helgina og þegar Víkurfréttir kíktu í nýja Rúmfata- lagerinn síðdegis á mánudag var verslunin full af fólki. Rúmfatala- gerinn bauð tilboð og afslætti í tilefni opnunarinnar og þá voru fjölmargir viðskiptavinir leystir út með gjafa- kortum. Verslun Rúmfatalagersins á Fitjum í Reykjanesbæ er sjöunda verslun Rúmfatalagersins og sú fyrsta á Ís- landi sem byggir á nýju útliti frá JYSK þar sem notast er við ný hillu- kerfi og uppstillingar. Willy segir að útlitið sé eins og í dönskum versl- unum JYSK. „Verslunin er hönnuð með þægindi og notagildi fyrir við- skiptavini í huga og það gleður okkur að verslunin að Fitjum sé sú fyrsta í þessu nýja útliti,“ segir í tilkynningu frá Rúmfatalagernum. „Það var mikil spenna fyrir opnun búðarinnar og fólk var greinilega búið að bíða lengi eftir því að fá Rúmfatalagirnn til bæjarins. Allar vinsælustu vörur Rúmfatalagersins fást hér hjá okkur,“ segir Willy. Í versluninn er úrval af hús- gögnum en enginn húsgagnalager er hins vegar á Fitjum, heldur koma þær vörur með flutningabílum úr Reykjavík og eru afgreiddar frítt á flutningamiðstöð Flytjanda í Reykja- nesbæ. Þangað getur fólk sótt hús- gögnin eða fengið sendar heim með sendibíl gegn gjaldi. Rúmfatalagerinn í Reykjanesbæ er með sex starfsmenn í fastri vinnu og svo eru helgarstarfsmenn. Mikil ásókn var í að fá starf hjá Rúmfata- lagernum í Reykjanesbæ en 470 manns sóttu um starf í verslunni á Fitjum. „Það eru margir sem hafa áhuga á að vinna hjá Rúm- fatalagernum sem er ánægjulegt,“ sagði Willy Nielsen, verslunarstjóri Rúmfatalagersins í Reykjanesbæ að endingu. Úr nýrri verslun Rúmfatalagersins á Fitjum í Reykjanesbæ. VF-myndir: Hilmar Bragi – ný verslun Rúmfatalagersins opnuð á Fitjum í Reykjanesbæ Móttökurnar framar væntingum og 470 sóttu um starf í versluninni FIMMTUDAG KL. 19:30 Á HRINGBRAUT OG VF.IS Suðurnesjasögur Tomma í þætti vikunnar Kaupa ný sæti fyrir tvær milljónir króna Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að verja tveimur millj- ónum króna til kaupa á nýjum sætum í stúkuna á knattspyrnu- vellinum við Hringbraut í Keflavík. Bæjarráð telur rétt að sætin verði keypt í samráði við Kristin Jak- obsson innkaupastjóra og Knatt- spyrnudeild Keflavíkur. Leita leiða til að dagvöruverslun verði starfrækt að nýju í Vogum Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti á fundi sínum í lok apríl að festa kaup á húsnæði því sem áður hýsti Verslunina Voga, þ.e. í sama húsi og bæjarskrifstofurnar eru til húsa. Verslunin hætti starf- semi fyrir nokkru, en síðan þá hefur verið starfræktur veitinga- staður í húsnæðinu. Nú hafa eig- endur þess staðar ákveðið að loka og hætta starfseminni. „Bæjaryfirvöldum fannst mikil- vægt við þessar aðstæður að leggja sitt að mörkum, og hyggst með kaup- unum á húsnæðinu leita leiða til að dagvöruverslun verði starfrækt að nýju í sveitarfélaginu. Þegar hefur verið leitað til nokkurra aðila sem starfa á dagvörumarkaði, og standa vonir okkar til að þær skili árangri. Mikilvægt er fyrir íbúa sveitar- félagsins að hafa aðgang að verslun með helstu vörur í nærumhverfi sínu, og vill sveitarfélagið því með þessari aðgerð leggja sitt að mörkum til að svo geti orðið,“ segir Ásgeir Ei- ríksson, bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Vogum. Verslunarplássið er í Iðndal í Vogum. vf is 4 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM í 40 ár

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.