Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.05.2021, Page 11

Víkurfréttir - 19.05.2021, Page 11
Aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurnesja 2021 verður haldinn föstudaginn 4. júní kl. 10:00 á Hótel Park Inn, Hafnargötu 57, Reykjanesbæ. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. AÐALFUNDUR - breyttur fundartími Stjórn Eignarhaldsfélags Suðurnesja Herborg Svana Hjelm og Birgir Rafn Reynisson hafa tekið við rekstri Geo Hótel í Grindavík. Hót- elið skiptir um nafn og heitir í dag Hotel Volcano. Þá er að opna nýr veitingastaður á hótelinu sem hefur fengið nafnið Festi bistro. Fjárfestar keyptu nýverið fast- eignina sem hýsir hótelið en þau Herborg og Birgir keyptu reksturinn. Þau eru viðskiptafélagar en þau reka einnig veitingastaðina Fjárhúsið á Granda og Hlemmi í Reykjavík. Nýir eigendur hótelsins sjá mikil tækifæri í hótelrekstrinum í Grindavík um þessar mundir þar sem eldgos mallar í bakgarðinum. Þau tóku við rekstrinum fyrir rúm- lega viku og bókanir hafa farið vel af stað og fram úr björtustu vonum. „Bókanir í júní eru lygilegar. Við trúðum því ekki að þetta yrði svona mikið,“ segir Herborg. Þegar þau tóku við lyklunum af hótelinu höfðu þau fjóra sólarhringa til að standsetja hótelið áður en fyrstu gestir komu en hótelið hefur staðið autt í vel á annað ár. Birgir er Grindvíkingur og þekkir vel til Festi, félagsheimilisins sem áður var starfrækt í húsinu. Útlit hússins fékk að halda sér þegar Festi var breytt í hótel og Birgir segir að það sé góður andi í húsinu. Herbergi eru í báðum endum hússins, sam- tals 36 herbergi. Þá er miðrýmið, þar sem áður var dansað á laugardögum, veitingarými og móttaka. Fyrstu gestirnir eru komnir og þeir koma nær allir frá Bandaríkj- unum. Þá hljóma bókanirnar sem eru að berast flestar upp á gistingu í tvær til þrjár nætur, þannig að ferðamennirnir ætla sér að stoppa lengi við á Suðurnesjum. Eldgosið er reyndar að heilla gesti Hotel Volcano og þau vita um gesti sem höfðu jafnvel farið tvisvar að gosinu sama daginn og voru algjörlega heill- aðir. Þá hefur Grindavík upp á allt að bjóða. Þar eru bæði Bláa lónið og eldgosið. Þá er stutt út á Reykjanes og í aðra afþreyingu á Suðurnesjum. „Við erum mjög bjartsýn á fram- haldið miðað við hver staðan er í dag,“ segir Herborg og Birgir bætir við: „Þetta leggst vel í okkur og ég hef fulla trú á þessu verkefni“. Festi mun ganga í endurnýjun líf- daga sem nafn á veitingastað hót- elsins. Hann mun heita Festi bistro. „Þetta nafn á heima hérna,“ segir Birgir. Veitingastaðurinn verður opinn síðdegis milli kl. 17–21. Á staðnum verður í boði léttari matur. Þau hafa reynsluna úr Fjárhúsinu sem þau reka á tveimur stöðum í Reykjavík. Fólk er að fara oftar út að borða en er ekki að klæða sig upp fyrir stíft borðhald, það sé ekki þró- unin í dag. „Við ætlum að vera með það sem virkar en við teljum okkur orðið þekkja það hvað virkar og hvað ekki,“ segir Herborg. Birgir gerir ráð fyrir því að sjá um eldhúsið á Festi bistro. „Ætli ég verði svo ekki að fá Bibbann með mér,“ segir hann og hlær. Bibbinn, Bjarni Ólafsson, starfaði lengi með Birgi á veitingahúsi sem stóð við gamla Bláa lónið. Í tengslum við Festi bistro stendur einnig til að byggja myndarlegan sólpall utan við hótelið þannig að hægt sé að sitja úti og njóta veitinga í góðu veðri. Hótelið er við ein fjöl- förnustu gatnamót Grindavíkur þar sem leiðin austur að gosstöðvunum liggur. Pallurinn verður vel sýnilegur þeim sem aka hjá og verður að sögn hótelhaldara vonandi til að draga fólk að hótelinu og veitingastaðnum. „Við viljum geta tekið á móti fólki með miðbæjarstemmningu,“ segir Birgir og Herborg bætir við að þau séu á besta stað í bænum til að gera eitthvað skemmtilegt. Hotel Volcano mun skapa sex til átta störf þegar allt verður komið í gang. Hótelreksturinn sjálfur er þekkt stærð en þau vita ekki alveg hvað veitingastaðurinn mun kalla á mörg störf. Þar sé í dag gert ráð fyrir tveimur til þremur starfsmönnum en ef traffíkin verði meiri verði að bæta við fólki. Mikil tækifæri í opnun hótels og veitinga- staðar með eldgos í bakgarðinum Hotel Volcano opnar í gamla Festi í Grindavík: Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is Birgir Rafn Reynisson og Herborg Svana Hjelm inni á svítu hótelsins. Þarna hafa listaverk úr Festi fengið að njóta sín. Félagsheimilið Festi í Grindavík í árdaga þess. Mynd af vef Grindavíkurbæjar. Eitt af 36 herbergjum hótelsins. Svítan á Hotel Volcano. Setustofan í anddyri hótelsins. Séð inn á veitingastaðinn Festi bistro á Hotel Volcano. víkurFrÉttir á SuðurNESJuM í 40 ár // 11

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.