Víkurfréttir - 19.05.2021, Blaðsíða 11
Aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurnesja 2021 verður haldinn
föstudaginn 4. júní kl. 10:00 á Hótel Park Inn, Hafnargötu 57, Reykjanesbæ.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
AÐALFUNDUR
- breyttur fundartími
Stjórn Eignarhaldsfélags Suðurnesja
Herborg Svana Hjelm og Birgir
Rafn Reynisson hafa tekið við
rekstri Geo Hótel í Grindavík. Hót-
elið skiptir um nafn og heitir í dag
Hotel Volcano. Þá er að opna nýr
veitingastaður á hótelinu sem hefur
fengið nafnið Festi bistro.
Fjárfestar keyptu nýverið fast-
eignina sem hýsir hótelið en þau
Herborg og Birgir keyptu reksturinn.
Þau eru viðskiptafélagar en þau reka
einnig veitingastaðina Fjárhúsið á
Granda og Hlemmi í Reykjavík.
Nýir eigendur hótelsins sjá
mikil tækifæri í hótelrekstrinum í
Grindavík um þessar mundir þar
sem eldgos mallar í bakgarðinum.
Þau tóku við rekstrinum fyrir rúm-
lega viku og bókanir hafa farið vel
af stað og fram úr björtustu vonum.
„Bókanir í júní eru lygilegar. Við
trúðum því ekki að þetta yrði svona
mikið,“ segir Herborg. Þegar þau
tóku við lyklunum af hótelinu höfðu
þau fjóra sólarhringa til að standsetja
hótelið áður en fyrstu gestir komu
en hótelið hefur staðið autt í vel á
annað ár.
Birgir er Grindvíkingur og þekkir
vel til Festi, félagsheimilisins sem
áður var starfrækt í húsinu. Útlit
hússins fékk að halda sér þegar Festi
var breytt í hótel og Birgir segir að
það sé góður andi í húsinu. Herbergi
eru í báðum endum hússins, sam-
tals 36 herbergi. Þá er miðrýmið, þar
sem áður var dansað á laugardögum,
veitingarými og móttaka.
Fyrstu gestirnir eru komnir og
þeir koma nær allir frá Bandaríkj-
unum. Þá hljóma bókanirnar sem
eru að berast flestar upp á gistingu
í tvær til þrjár nætur, þannig að
ferðamennirnir ætla sér að stoppa
lengi við á Suðurnesjum. Eldgosið
er reyndar að heilla gesti Hotel
Volcano og þau vita um gesti sem
höfðu jafnvel farið tvisvar að gosinu
sama daginn og voru algjörlega heill-
aðir. Þá hefur Grindavík upp á allt
að bjóða. Þar eru bæði Bláa lónið og
eldgosið. Þá er stutt út á Reykjanes
og í aðra afþreyingu á Suðurnesjum.
„Við erum mjög bjartsýn á fram-
haldið miðað við hver staðan er í
dag,“ segir Herborg og Birgir bætir
við: „Þetta leggst vel í okkur og ég
hef fulla trú á þessu verkefni“.
Festi mun ganga í endurnýjun líf-
daga sem nafn á veitingastað hót-
elsins. Hann mun heita Festi bistro.
„Þetta nafn á heima hérna,“ segir
Birgir. Veitingastaðurinn verður
opinn síðdegis milli kl. 17–21. Á
staðnum verður í boði léttari matur.
Þau hafa reynsluna úr Fjárhúsinu
sem þau reka á tveimur stöðum í
Reykjavík. Fólk er að fara oftar út
að borða en er ekki að klæða sig upp
fyrir stíft borðhald, það sé ekki þró-
unin í dag. „Við ætlum að vera með
það sem virkar en við teljum okkur
orðið þekkja það hvað virkar og hvað
ekki,“ segir Herborg.
Birgir gerir ráð fyrir því að sjá um
eldhúsið á Festi bistro. „Ætli ég verði
svo ekki að fá Bibbann með mér,“
segir hann og hlær. Bibbinn, Bjarni
Ólafsson, starfaði lengi með Birgi á
veitingahúsi sem stóð við gamla Bláa
lónið.
Í tengslum við Festi bistro stendur
einnig til að byggja myndarlegan
sólpall utan við hótelið þannig að
hægt sé að sitja úti og njóta veitinga
í góðu veðri. Hótelið er við ein fjöl-
förnustu gatnamót Grindavíkur þar
sem leiðin austur að gosstöðvunum
liggur. Pallurinn verður vel sýnilegur
þeim sem aka hjá og verður að sögn
hótelhaldara vonandi til að draga
fólk að hótelinu og veitingastaðnum.
„Við viljum geta tekið á móti fólki
með miðbæjarstemmningu,“ segir
Birgir og Herborg bætir við að þau
séu á besta stað í bænum til að gera
eitthvað skemmtilegt.
Hotel Volcano mun skapa sex til
átta störf þegar allt verður komið
í gang. Hótelreksturinn sjálfur er
þekkt stærð en þau vita ekki alveg
hvað veitingastaðurinn mun kalla á
mörg störf. Þar sé í dag gert ráð fyrir
tveimur til þremur starfsmönnum en
ef traffíkin verði meiri verði að bæta
við fólki.
Mikil tækifæri í opnun
hótels og veitinga-
staðar með eldgos í
bakgarðinum
Hotel Volcano opnar í gamla Festi í Grindavík:
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
Birgir Rafn Reynisson og Herborg Svana Hjelm inni á svítu
hótelsins. Þarna hafa listaverk úr Festi fengið að njóta sín.
Félagsheimilið Festi í Grindavík í árdaga þess.
Mynd af vef Grindavíkurbæjar.
Eitt af 36 herbergjum hótelsins.
Svítan á Hotel Volcano.
Setustofan í anddyri hótelsins.
Séð inn á veitingastaðinn Festi bistro á Hotel Volcano.
víkurFrÉttir á SuðurNESJuM í 40 ár // 11