Víkurfréttir - 19.05.2021, Page 21
DEILDARSTJÓRI FRÆÐSLUÞJÓNUSTU SUÐURNESJABÆJAR
SUÐURNESJABÆR AUGLÝSIR STÖÐU DEILDARSTJÓRA
FRÆÐSLUÞJÓNUSTU Á FJÖLSKYLDUSVIÐI LAUSA TIL UMSÓKNAR
Suðurnesjabær er næst stærsta sveitafélagið á Suðurnesjum með um 3.700 íbúa
og um 280 starfsmenn. Í Suðurnesjabæ eru tveir leikskólar, tveir grunnskólar og
tónlistarskólar. Áhersla er að hjá sveitarfélaginu starfi fólk sem getur veitt bestu
þjónustu sem völ er á af þekkingu, ábyrgð og metnaði. Fjölskyldusvið er samþætt
þjónustueining og til þess heyrir félags-, frístunda- og fræðsluþjónusta. Þá sinnir
fjölskyldusvið einnig félags- og fræðslumálum fyrir sveitarfélagið Voga á grundvelli
samnings, þar sem er einn leikskóli og grunnskóli.
Helstu verkefni og ábyrgð
■ Stýra og bera ábyrgð á rekstri og dag-
legri starfsemi fræðsludeildar.
■ Eftirfylgni með lögum um leik-,
grunn- og tónlistaskóla og viðeigandi
reglugerðir.
■ Eftirlit og umsjón með aðbúnaði,
skipulagi og árangri skólastarfs í sam-
vinnu við skólastjórnendur.
■ Stuðningur og ráðgjöf við skólastjórn-
endur og aðra forstöðumenn sem
undir deildina heyra.
■ Tengiliður skóla við mennta- og
menningarmálaráðuneytið og Sam-
band íslenskra sveitarfélaga.
■ Teymisvinna þvert á deildir og stofn-
anir sveitarfélagsins.
■ Starfmaður fræðsluráðs Suðurnesja-
bæjar og sveitarfélagsins Voga.
Menntunar- og hæfniskröfur
■ Leyfi til að nota starfsheitið grunn-
skólakennari.
■ Framhaldsnám í stjórnun eða mennt-
unarfræðum æskileg.
■ Farsæl reynsla af kennslu, stjórnun
og mannaforráðum.
■ Haldbær reynsla af áætlunargerð og
greiningum.
■ Þekking og reynsla í opinberri stjórn-
sýslu er æskileg.
■ Leiðtogahæfni og góð færni í mann-
legum samskiptum.
■ Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnu-
brögðum.
■ Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á
íslensku og ensku.
Umsóknarfrestur er til og með 30. maí 2021
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er
grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starf
deildarstjóra fræðsluþjónustu.
Umsjón með starfinu hefur Guðrún Björg Sigurðardóttir,
sviðsstjóri fjölskyldusviðs, netfang gudrun@sudurnesjabaer.is
eða í síma 425-3000.
Umsóknum skal skilað á rafrænu formi á netfangið
afgreidsla@sudurnesjabaer.is
Ný fjallahjólabraut var opnuð í hlíðum Ásbrúar á uppstigningar-
dag en þá stóð yfir yfir barna- og ungmennahátíðin BAUN
og opnun brautarinnar var hluti af þeirri dagskrá. Markmið
Baun-hátíðarinnar er að gera sköpun barna og ungmenna
hátt undir höfði auk þess að draga fram allt það jákvæða sem
stendur börnum og fjölskyldum til boða í Reykjanesbæ, þeim
að kostnaðarlausu.
„Starfsfólk umhverfissviðs Reykja-
nesbæjar með dyggri aðstoð Arnalds
og Kára frá Hjólaleikfélaginu hafa út-
búið hér skemmtilega og krefjandi
fjallahjólabraut og þar með fjölgað
afþreyingarmöguleikum í bænum.
Ég vil þakka þeim framtakið og verk-
tökunum fyrir að gera svona flotta
braut. Brautin er staðsett á verðandi
skólalóð á Ásbrú og bráðlega verður
hér settur upp ærslabelgur og spark-
völlur,“ sagði Eysteinn Eyjólfsson,
formaður umhverfis- og skipulags-
ráðs Reykjanesbæjar við opnun
brautarinnar.
Fjölmörg ungmenni mættu á
svæðið og léku sér í brautinni sem
þykir vel lukkuð og skemmtileg
viðbót við afþreyingu.
Fjallahjólabraut
opnuð á Ásbrú
Eysteinn Eyjólfsson, formaður umhverfis- og skipulagsráðs
Reykjanesbæjar, opnaði brautina formlega.
Fjallahjólabrautin er bæði krefjandi og skemmtileg
sega þau sem hafa profað að hjóla hana.
Nýja fjallahjólabrautin í hlíðum Ásbrúar. VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Frá opnun fjallahjólabrautarinnar á Ásbrú á uppstigningardag.
víkurFrÉttir á SuðurNESJuM í 40 ár // 21