Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.05.2021, Page 24

Víkurfréttir - 19.05.2021, Page 24
Mundi Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is Afhending áætluð jan-mars 2022 Unnardalur 1-11, 260 Reykjanesbæ Nýjar íbúðir sem uppfylla skilyrði um hlutdeildarlán Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555 Eign Herb. Stærð Verð 101 3 88.5 43.500.000 102 2 76.2 37.500.000 103 3 88.5 43.500.000 201 3 88.5 43.500.000 202 3 88.5 43.500.000 203 3 88.5 43.500.000 6 íbúða fjölbýli. 2.og 3. herbergjaíbúðir Staðsett við nýjan og glæsilegan grunn- og leikskóla • Fullbúnar eignir. • Með öllum gólfefnum. • Öll eldhústæki (ísskápur og uppþvottavél ), fylgja • Silestone steinn í borðplötum. • Klætt að utan. • Sérinngangur. • Gott útsýni af annarri hæð. • Stórar geymslur innan íbúða, sem hægt er að nota sem herbergi. Sölusíða unnardalur.is Ég er svo gleyminn að ég fékk sprautu frá Janssen. Þeir sem fá hana þurfa ekki að muna eftir að koma í seinni sprautu ... Þrjúbíó- stress mið- aldra konu Ég áttaði mig á því í síðustu viku að ég hef mun meiri þörf fyrir röð og reglu en ég hef hingað til haldið. Ég er alltaf verið frekar skipulögð, en á sama tíma samt alltaf álitið mig temmilega kærulausa og með íslenska „þetta reddast“ genið mjög framarlega í genabankanum. Ég hef gert grín að manninum mínum sem þolir ekki þegar það er frjálst sætaval í bíó eða leikhúsinu, hvað þá í flug- vélum. Hann stressast allur upp og vill þá alltaf vera mættur löngu fyrir opnun þannig að hann verði örugg- lega fyrstur í röðinni til að velja sér sæti. Í tilhugalífinu gátum við aldrei vangað síðasta lagið á skemmti- stöðum borgarinnar þar sem hann þurfti alltaf að vera farinn út í síð- asta lagi korter fyrir þrjú til að vera örugglega fyrstur í leigubílaröðinni. Sem, þeir sem þekkja mig vita, að er ekki alveg í mínum anda að yfirgefa partýið áður en ljósin eru kveikt. Ég kalla þetta heilkenni mannsins míns „þrjúbíóstressið“ þar sem þetta minnti mig helst á kraðakið fyrir framan dyrnar í Félagsbíói í þrjúbíó þegar allir vildu ná bestu sætunum þegar loksins var hleypt inn. Og þar var það ekkert endilega sá sem var fyrstur í röðinni sem náði bestu sæt- unum, heldur sá sem var sterkari og fljótari að hlaupa. Engin sanngirni í því endilega. Og í síðustu viku upplifði ég þrjú- bíóstress á áður óþekktu háu stigi, þegar það voru að mér fannst allir og amma þeirra búnir að fá boð í bólu- setningu nema ég og aðrir í mínum góða 1967 árgangi. Ég hafði nefnilega beðið mjög róleg eftir að það kæmi að mér. Það var plan í gangi, byrjað á framlínufólki og forgangshópum og svo var farið niður eftir aldurs- röðinni. Þolinmóð og pollróleg beið ég í röðinni. Þangað til að samfélags- miðlarnir fóru að fyllast af myndum af mér miklu yngra fólki í dúndrandi diskóstemmningu í Laugardalshöll- inni. Allt í einu var ekkert plan, röðin var orðin að þrjúbíókapphlaupi. Og ég missti kúlið. Ég vil ekki viðurkenna að ég hafi verið haldin bólusetningaröfund, ég samgladdist öllum sem voru á undan mér í röðinni. Ég var að upp- lifa eitthvað allt annað, ég var haldin raða- og skipulagsþarfarröskun á háu stigi. Ég lét þetta fara ótrúlega mikið í taugarnar á mér, sá sam- særi í hverju horni og fannst þetta heilt yfir bara frekar ósanngjarnt. Ég opinberaði frústrasjón mína á sam- félagsmiðlunum og leið pínu betur að finna að ég var ekki ein um þessa upplifun. Jafnaldrar mínir staðfestu samsærið – það var ekki lengur röð og við sátum eftir. Þrjúbíóið var að byrja og allir hinir voru fljótari að hlaupa. En svo kom sunnudagurinn og sms-ið með boðinu í bólusetningu á miðvikudaginn. Þegar þú, lesandi góður lest þennan pistil, verð ég nýbúin að fara í minn fallegasta stuttermabol og fá mína langþráðu sprautu. Og, eins og segir í hinni helgu bók: „Þeir síðustu verða oft fyrstir“ því mér er boðið upp á Janssen sem þýðir að ég verð full- bólusett eftir eina sprautu. Ég var sum sé þessi í þrjúbíó röðinni sem var eftir allt saman fljótust að hlaupa. LO KAO RÐ RAGNHEIÐAR ELÍNAR Vegna hvítasunnuhelgar opnum við aftur þriðjudaginn 25. maí og þá er síðasti skilafrestur á greinum og öðru efni. Auglýsingar berist í síðasta lagi á hádegi miðvikudaginn 26. maí. Póstfang Víkurfrétta er vf@vf.is Næsta blað kemur út fimmtudaginn 27. maí

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.