Víkurfréttir - 19.05.2021, Síða 24
Mundi
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
Afhending
áætluð
jan-mars
2022
Unnardalur 1-11, 260 Reykjanesbæ
Nýjar íbúðir sem uppfylla
skilyrði um hlutdeildarlán
Jóhannes Ellertsson
Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677
Júlíus M Steinþórsson
Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555
Eign Herb. Stærð Verð
101 3 88.5 43.500.000
102 2 76.2 37.500.000
103 3 88.5 43.500.000
201 3 88.5 43.500.000
202 3 88.5 43.500.000
203 3 88.5 43.500.000
6 íbúða fjölbýli. 2.og 3. herbergjaíbúðir
Staðsett við nýjan og glæsilegan grunn- og leikskóla
• Fullbúnar eignir.
• Með öllum gólfefnum.
• Öll eldhústæki (ísskápur og
uppþvottavél ), fylgja
• Silestone steinn í borðplötum.
• Klætt að utan.
• Sérinngangur.
• Gott útsýni af annarri hæð.
• Stórar geymslur innan íbúða,
sem hægt er að nota sem
herbergi.
Sölusíða unnardalur.is
Ég er svo gleyminn
að ég fékk sprautu
frá Janssen. Þeir
sem fá hana þurfa
ekki að muna eftir
að koma í seinni
sprautu ...
Þrjúbíó-
stress mið-
aldra konu
Ég áttaði mig á því í síðustu viku
að ég hef mun meiri þörf fyrir röð
og reglu en ég hef hingað til haldið.
Ég er alltaf verið frekar skipulögð,
en á sama tíma samt alltaf álitið
mig temmilega kærulausa og með
íslenska „þetta reddast“ genið mjög
framarlega í genabankanum. Ég hef
gert grín að manninum mínum sem
þolir ekki þegar það er frjálst sætaval
í bíó eða leikhúsinu, hvað þá í flug-
vélum. Hann stressast allur upp og
vill þá alltaf vera mættur löngu fyrir
opnun þannig að hann verði örugg-
lega fyrstur í röðinni til að velja sér
sæti. Í tilhugalífinu gátum við aldrei
vangað síðasta lagið á skemmti-
stöðum borgarinnar þar sem hann
þurfti alltaf að vera farinn út í síð-
asta lagi korter fyrir þrjú til að vera
örugglega fyrstur í leigubílaröðinni.
Sem, þeir sem þekkja mig vita, að er
ekki alveg í mínum anda að yfirgefa
partýið áður en ljósin eru kveikt.
Ég kalla þetta heilkenni mannsins
míns „þrjúbíóstressið“ þar sem þetta
minnti mig helst á kraðakið fyrir
framan dyrnar í Félagsbíói í þrjúbíó
þegar allir vildu ná bestu sætunum
þegar loksins var hleypt inn. Og þar
var það ekkert endilega sá sem var
fyrstur í röðinni sem náði bestu sæt-
unum, heldur sá sem var sterkari og
fljótari að hlaupa. Engin sanngirni í
því endilega.
Og í síðustu viku upplifði ég þrjú-
bíóstress á áður óþekktu háu stigi,
þegar það voru að mér fannst allir og
amma þeirra búnir að fá boð í bólu-
setningu nema ég og aðrir í mínum
góða 1967 árgangi. Ég hafði nefnilega
beðið mjög róleg eftir að það kæmi
að mér. Það var plan í gangi, byrjað
á framlínufólki og forgangshópum
og svo var farið niður eftir aldurs-
röðinni. Þolinmóð og pollróleg beið
ég í röðinni. Þangað til að samfélags-
miðlarnir fóru að fyllast af myndum
af mér miklu yngra fólki í dúndrandi
diskóstemmningu í Laugardalshöll-
inni. Allt í einu var ekkert plan, röðin
var orðin að þrjúbíókapphlaupi. Og
ég missti kúlið.
Ég vil ekki viðurkenna að ég hafi
verið haldin bólusetningaröfund,
ég samgladdist öllum sem voru á
undan mér í röðinni. Ég var að upp-
lifa eitthvað allt annað, ég var haldin
raða- og skipulagsþarfarröskun á
háu stigi. Ég lét þetta fara ótrúlega
mikið í taugarnar á mér, sá sam-
særi í hverju horni og fannst þetta
heilt yfir bara frekar ósanngjarnt. Ég
opinberaði frústrasjón mína á sam-
félagsmiðlunum og leið pínu betur
að finna að ég var ekki ein um þessa
upplifun. Jafnaldrar mínir staðfestu
samsærið – það var ekki lengur röð
og við sátum eftir. Þrjúbíóið var að
byrja og allir hinir voru fljótari að
hlaupa.
En svo kom sunnudagurinn og
sms-ið með boðinu í bólusetningu
á miðvikudaginn. Þegar þú, lesandi
góður lest þennan pistil, verð ég
nýbúin að fara í minn fallegasta
stuttermabol og fá mína langþráðu
sprautu. Og, eins og segir í hinni
helgu bók: „Þeir síðustu verða oft
fyrstir“ því mér er boðið upp á
Janssen sem þýðir að ég verð full-
bólusett eftir eina sprautu. Ég
var sum sé þessi í þrjúbíó röðinni
sem var eftir allt saman fljótust að
hlaupa.
LO
KAO
RÐ
RAGNHEIÐAR ELÍNAR
Vegna hvítasunnuhelgar opnum við aftur þriðjudaginn 25. maí
og þá er síðasti skilafrestur á greinum og öðru efni. Auglýsingar
berist í síðasta lagi á hádegi miðvikudaginn 26. maí.
Póstfang Víkurfrétta er vf@vf.is
Næsta blað kemur út
fimmtudaginn 27. maí