Skessuhorn - 28.04.2021, Qupperneq 5
MiðVikUDAGUR 28. ApRÍL 2021 5
Skaga
menn
umhv
erfis
jörð
ina
Taktu
þátt!
3.- 30
. maí
Heilsueflandi samfélag á Akranesi
stendur fyrir hreyfingarátakinu
Skagamenn umhverfis jörðina
Brottför eru þann 3. maí næstkomandi og heim-
koma væntanleg 30. maí. Teknar hafa verið saman
gagnlegar upplýsingar fyrir þátttakendur:
Hversu langt er ferðalagið?
Já það er ekki nema 40.075,017 km.
Hvernig ferðast ég?
Þú reimar á þig góðan skóbúnað og klæðir þig eftir
veðri og ferð út að ganga, hlaupa eða hjóla. Öll
hreyfing utandyra telur!
Hvernig skrái ég hreyfinguna?
Þú byrjar á því að sækja appið Strava í símann þinn.
Þar er hópur sem heitir „Skagamenn umhverfis
jörðina". Stillir forritið á „run" og leggur af stað.
Saman söfnum við kílómetrum og förum umhverfis
jörðina á 27 dögum.
Hvert er markmiðið?
Það er að ganga frá Akranesi og umhverfis jörðina í
því markmiðið að efla lýðheilsu skagamanna.
Taktu þátt í skemmtilegu
ferðalagi og förum
SAMAN umhverfis jörðina! Akranes
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
Óskað er eftir tillögum um bæjar-
listamann Akraness árið 2021
Árlega útnefnir Akraneskaupstaður bæjarlistamann til eins
árs í senn. Menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar
óskar eftir tillögum frá almenningi um bæjarlistamann
Akraness árið 2021.
Menningar- og safnanefnd mun fara yfir allar tillögur sem
berast og verða niðurstöður kynntar á Þjóðhátíðardaginn, þann
17. júní. Frestur til að skila inn tillögu er til og með
23. maí næstkomandi.
Nánari upplýsingar má finna á www.akranes.is
Nýverið auglýsti Heilbrigðisstofn-
un Vesturlands laust til umsóknar
starf yfirmanns sjúkraflutninga hjá
stofnuninni. Gísli Björnsson hef-
ur gegnt starfinu frá því HVE varð
til við sameiningu átta heilbrigðis-
stofnana árið 2010 en lætur nú af
störfum. Sjö umsóknir bárust um
starfið og var ákveðið að ráða Þórð
Guðnason á Akranesi. Byrjar hann
störf 13. júní næstkomandi.
Margar starfsstöðvar
Hjá Heilbrigðisstofnun Vestur-
lands eru nú átta starfsstöðvar þar
sem sjúkrabílar eru staðsettir og
55 starfsmenn sem standa vaktir
og sinna akstri samtals 16 sjúkra-
bíla. Auk þess eru sex svokallaðar
hjálparstöðvar á fámennari stöðum
og sjötíu bakverðir til taks á þeim
ef eitthvað kemur uppá. Yfirmaður
sjúkraflutninga hjá HVE hefur um-
sjón með hjálparstöðvunum. Þær
eru á Reykhólum, Flatey, Húsafelli,
Reykholti, Hvanneyri og Laugar-
gerðisskóla. Starfið er því býsna
víðfeðmt landfræðilega og um-
fangsmikið hvað mannaforráð og
tækjabúnað snertir. Gísli Björnsson
hóf störf hjá Sjúkrahúsinu á Akra-
nesi árið 1995 og gegndi í upp-
hafi starfi deildarstjóra. Vann þá
að flutningi sjúkrabílaþjónustunn-
ar frá lögreglunni til sjúkrahússins
á Akranesi. Árið 2010 þegar Heil-
brigðisstofnun Vesturlands varð
til var hann ráðinn sem yfirmaður
sjúkraflutninga hjá stofnuninni og
hefur gegnt því starfi síðan. Hann
segir ánægjulega þróun hafa átt sér
stað á síðasta ári þegar fjórir nýir
og vel búnir Benz sjúkrabílar komu
í flota HVE og leystu af hólmi bíla
sem voru komnir „fram yfir síðasta
söludag,“ svo ekki sé fastar kveð-
ið að orði. Gísli segir að von sé á
fjórum nýjum bílum á þessu ári og
verði það mikill léttir að þá verður
helmingur sjúkrabílaflotans búinn
að fara í gegnum endurnýjun.
Björgunarmaður
Þórður Guðnason kveðst afar
ánægður að taka við nýju starfi og
fullur tilhlökkunar. Hann telur sig
vera að taka við góðu búi hjá Gísla
og þekkir auk þess vel til starfsum-
hverfisins. Þórður hefur undanfar-
in ár átt og rekið verktakafyritækið
Íslandsgáma, ásamt Guðna Þórðar-
syni föður sínum, en hyggst hætta
þeim rekstri nú. Þórður hefur aflað
sér víðtækrar reynslu sem björgun-
armaður. Verið í sjúkraflutningum,
virkur í björgunarsveit og slökkvi-
liðsmaður frá 2010. „Ég byrjaði
sem sjúkraflutningamaður hér hjá
Heilbrigðisstofnun Vesturlands og
var ýmist í föstu- eða hlutastarfi. Þá
starfaði ég m.a. í tvö ár við sjúkra-
flutninga í Osló. Ég hef aflað mér
réttinda sem EMT-i sjúkraflutn-
ingamaður, en það stendur fyrir
Advanced emergency medical tec-
hnician intermediate. Eftir björg-
un á dreng úr sprungu í Langjökli
2010, sem björgunarsveitarmaður,
var mér boðið til Sviss árið eftir þar
sem ég fékk að starfa í þyrlusveit
við björgun á fólki. Þar eru þyrlur
notaðar nær eingöngu sem sjúkra-
flutningatæki, afar hentugar til að
komast í fjöllin. Loks hef ég ýmsa
aðra reynslu og hef lokið nám-
skeiðum sem snerta starf björgun-
arsveita, slökkviliða og bráðaliða.
Allt er þetta reynsla sem nýtist vel
í því starfi sem ég er nú að taka að
mér,“ segir Þórður.
mm
Þórður ráðinn yfirmaður
sjúkraflutninga hjá HVE
Þórður Guðnason tekur í júní við starfi Gísla Björnssonar sem yfirmaður
sjúkraflutninga hjá HVE.
Lagnaþjònusta
Vesturlands ehf.
Alhliða þjónustufyrirtæki
á sviði pípulagna
Sendu okkur verkbeiðni à
lagnavest@gmail.com eða hafðu samband
við okkur í síma 787-2999