Skessuhorn - 28.04.2021, Page 6
MiðVikUDAGUR 28. ApRÍL 20216
Ógætilegur
akstur
AKRANES: Um miðnæt-
urbil á fimmtudagskvöld í
síðustu viku barst Neyðar-
línu kvörtun vegna ógæti-
legs aksturslags á Vesturgötu
á Akranesi. Tilkynnandi gat
gefið upp bæði bíltegund og
lit en þrátt fyrir leit lögreglu
fannst bíllinn ekki. -frg
Eldur í gröfu
S T Y K K I S H Ó L M U R :
Síðdegis á föstudag barst
Neyðarlínu tilkynning um
að kviknað hafi í tröppum
gröfu sem stóð við Nesveg.
Þar hafði komið upp eldur í
hleðslutæki sem þó átti sam-
kvæmt framleiðanda að þola
rigningu. Greiðlega gekk að
slökkva eldinn. -frg
Þreyttur á sam-
ferðamanni
VESTURLAND: Á föstu-
dag í síðustu viku stóð lög-
regla ökumann að fram-
úrakstri á gatnamótum Akra-
fjallsvegar og Vesturlands-
vegar. Ökumaðurinn brot-
legi var stöðvaður og kvaðst
hann einfaldlega hafa verið
orðinn þreyttur á hægakstri
ökumannsins fyrir fram-
an hann og því tekið framúr
honum. -frg
Ungmenni
stukku á flótta
VESTURLAND: Aðfarar-
nótt laugardags barst Neyð-
arlínu tilkynning um að hús-
ráðandi í sumarbústað við
kiðárbotna í Húsafelli hefði
vaknað upp við að einhverj-
ir væru komnir á pallinn
hjá honum. Þegar húsráð-
andi síðan fór út á pallinn
reyndist vera um ungmenni
að ræða sem þegar stukku á
flótta. -frg
Krossarar á
reiðvegi
VESTURLAND: Um há-
degisbil á laugardag barst
lögreglu tilkynning um tvö
óskráð torfæruhjól, svokall-
aða krossara, sem ekið væri
um reiðvegi við Akrafjalls-
veg. krossararnir fundust
ekki þrátt fyrir leit. -frg
Grjóthrun í
Svínadal
VESTURLAND: Á sunnu-
dagsmorgun var Neyðarlínu
tilkynnt um grjóthrun á veg-
inn um Svínadal í Dölum.
Barst tilkynningin frá vegfar-
anda sem ók um Svínadalinn
frá Búðardal. Var um talsvert
grjóthrun að ræða og meðal
annars var það stórt grjót á
veginum að stórvirka vinnu-
vél þurfti til að fjarlægja það.
Vegagerð var látin vita og
fjarlægðu starfsmenn hennar
grjótið. -frg
Meðalíbúðin
kostar nú tólfföld
lágmarkslaun
RVK: „Ekkert lát er á hækkun
íbúðaverðs á höfuðborgarsvæð-
inu og ekki verða greind teikn
um að þeirri þróun verði snúið
við á næstunni,“ segir í frétt frá
sviði stefnumótunar og grein-
ingar hjá Alþýðusambandi Ís-
lands en þar er reglulega fjallað
um þróun húsnæðismarkað-
ar hér á landi. „Þrátt fyrir tals-
verða hækkun launa hefur verð
á húsnæði farið vaxandi umfram
tekjuþróun og er nú svo kom-
ið að 85 fermetra íbúð á höfuð-
borgarsvæðinu kostar um tólf-
föld árslaun þeirra sem lægstar
tekjur hafa borið saman við tí-
föld árslaun árið 2011. -mm
Tekinn á 132
HVALFJ.SV: Á miðvikudag-
inn í síðustu viku var ökumað-
ur stöðvaður á 132 kílómetra
hraða á Akrafjallsvegi, á móts
við kirkjuból. Sektin fyrir slíkt
brot er 120 þúsund krónur auk
tveggja punkta í ökuferilsskrá.
-frg
Kvartað yfir
malarflutningum
AKRANES: Að sögn lögreglu
hefur verið talsvert um kvart-
anir vegna malarflutninga í og
við ný íbúðahverfi Akraness.
kvartanirnar hafa meða annars
lotið að símanotkun við akstur
vörubíla auk hraðaksturs. Hef-
ur kveðið svo rammt að þess-
um kvörtunum að bæjaryfirvöld
höfðu samband við lögreglu.
Lögregla hefur í kjölfarið haft
samband við verktaka á svæðinu
og óskað eftir að rætt yrði við
ökumenn vörubíla á svæðinu.
Stutt er síðan barn varð fyrir
vörubíl í nýju hverfi á Akranesi.
-frg
Laust fyrir klukkan 10 í gærmorg-
un kom upp eldur í þaki verslun-
ar og veitingarstaðar N1 í Borg-
arnesi. Tilkynnt var um reyk úr
þaki hússins og talið að eldurinn
hafi kviknað þegar unnið var við
að hita þakpappa við framkvæmd-
ir á þaki. Slökkvistarf gekk vel, að
sögn Heiðars Arnar Jónssonar va-
raslökkviliðsstjóra hjá Slökkviliði
Borgarbyggðar. Þó reyndist snú-
ið fyrir slökkviliðsmenn að komast
að eldsupptökum í þakinu og þurfti
að rífa hluta af nýrri klæðningu.
Samhliða var húsnæðið reykræst
til að draga úr skemmdum af völd-
um reyks. Húsið var rýmt á með-
an slökkvistarf stóð yfir og því var
enginn í hættu.
mm/ Ljósm. glh
Vorverkin eru hafin hjá starfsmönn-
um Vegagerðarinnar á Snæfells-
nesi, eins og annarsstaðar. Nýttu
þeir góðviðrisdag í síðustu viku til
að fylla í holur í malbikinu. Þetta
eru kannski ekki einungis vorverk
enda hafa þeir farið reglulega til að
fylla í holur í vetur þar sem vetur-
inn hefur verið óvenju mildur þetta
árið. Það má segja að vegir á Snæ-
fellsnesi koma þokkalega undan
vetri en komið er að töluverðu við-
haldi á sumum köflum. Á myndinni
er Haukur Berg Guðmundsson að
holufylla í Staðarsveitinni.
þa
Eldur kom upp í þaki N1 í Borgarnesi
Hefðbundin vorverk vegagerðarfólks