Skessuhorn - 28.04.2021, Qupperneq 13
MiðVikUDAGUR 28. ApRÍL 2021 13
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Sérfræðingar í uppsetningu
og viðhaldi loftræstikerfa!
Eigum allar helstu pokasíur á lager•
Veitum ráðgjöf og gerum tilboð•
www.blikkgh.is
blikkgh@blikkgh.is
Akursbraut 11b • 431-2288
Starfsmannafélag Dala– og
Snæfellsnessýslu
Sendum félagsmönnum okkar og öllu launafólki
baráttukveðjur í tilefni dagsins.
Það er nóg til!
Stofnað 8. mars 1987
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
Gatnaviðhald 2021
Akraneskaupstaður óskar eftir tilboði í viðhald
gatna á Akranesi.
Um er að ræða viðgerðir steyptra gatna, yfirlögn með malbiki og
gerð gönguþverana á Garðagrund, Leynisbraut, Smiðjuvöllum,
Hagaflöt og Holtsflöt.
Helstu magntölur:
Uppbrot steypu 1.000 m• 2
Malbikun 2.800 m• 2
Útboðsgögn eru einungis afhent á stafrænu formi, með því að
senda tölvupóst á netfangið akranes.utbod@mannvit.is, þar
sem fram kemur nafn bjóðanda ásamt netfangi, nafni og
símanúmeri tengiliðs.
Tilboð verða opnuð á bæjarskrifstofu Akraneskaupstaðar að
Stillholti 16-18, þriðjudaginn 18. maí 2021 kl. 11:00.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Hermína kristín Lárusdóttir hefur
verið ráðin nýr leikskólastjóri við
leikskóla Snæfellsbæjar en frá þessu
er greint í frétt á vef sveitarfélags-
ins. Hermína tekur við starfinu
af ingigerði Stefánsdóttur 1. júní
næstkomandi. Í fréttinni er sagt frá
því að Hermína, sem er fædd og
uppalin í Snæfellsbæ, hefur starfað
við leikskólann í Ólafsvík frá árinu
2003. Hún var fyrst leikskólakenn-
ari við skólann í þrjú ár en hef-
ur verið aðstoðarleikskólastjóri frá
árinu 2006. Að auki hefur hún verið
aðstoðar- og sérkennslustjóri síðan
árið 2008. „Hún útskrifaðist sem
leikskólakennari frá kennarahá-
skóla Íslands árið 2004 og sem sér-
kennari frá Háskóla Íslands árið
2018. Auk þess er hún með leyfis-
bréf sem grunnskólakennari,“ segir
í fréttinni á vef Snæfellsbæjar.
arg
kjörnefnd kaus á sunnudaginn
séra Hildi Björk Hörpudóttur í
starf sóknarprests í Reykholts- og
Hvanneyrarprestakalli og hefur
sr. Agnes M Sigurðardóttir bisk-
up Íslands staðfest ráðningu henn-
ar. Auglýst var eftir sóknarpresti til
þjónustu og miðað við að viðkom-
andi gæti hafið störf sem fyrst eða í
síðasta lagi þremur mánuðum eftir
að ákvörðunum um ráðningu lægi
fyrir. Starfi sóknarprests í Reyk-
holti fylgja viðbótarskyldur við
önnur prestaköll í prófastsdæm-
inu, við Þjóðkirkjuna – Biskups-
stofu, þ.á.m., vegna umsýslu jarðar-
innar Reykholts. prestssetur verður
í Reykholti. Í Reykholtsprestakalli
eru sex sóknir; Bæjarsókn, Fitja-
sókn, Hvanneyrarsókn, Lundar-
sókn, Reykholtssókn og Síðumúla-
sókn. 1. desember 2019 var heild-
arfjöldi íbúa í prestakallinu 988.
prestakallið var auglýst með þeim
fyrirvara að vera mætti að biskupa-
fundur legði tillögur fyrir kirkju-
þing er snertu m.a. Reykholts-
prestakall og sem kynnu að leiða til
breytinga á skipan prestakalla í pró-
fastsdæminu, hljóti þær samþykki
kirkjuþings.
Sr. Hildur Björk er fædd í Reykja-
vík 1980. Hún starfar nú sem sviðs-
stjóri fræðslusviðs Biskupsstofu. Hún
lauk mag. theol prófi frá Háskóla Ís-
lands 2015 og MA-gráðu í praktískri
guðfræði frá sama skóla árið 2017.
Þá lauk hún námi árið 2019 frá Clif-
ford College í „Family Ministry.“
Jafnframt er hún með kennslurétt-
indi og meistarapróf í mannauðs-
stjórnun. Hildur Björk er einnig
með próf í sáttamiðlun, áfallafræð-
um og hefur réttindi sem alþjóðleg-
ur jógakennari.
„Sr. Hildur Björk á fimm börn.
Hún hefur margháttaða starfsreynslu
á sviði félags, kirkju- og mannúðar-
mála. Hún hefur meðal annars ver-
ið formaður Jafnréttisnefndar þjóð-
kirkjunnar, átt sæti í stjórn Félags
prestvígðra kvenna, setið í stjórn
Skálholtsútgáfunnar og verið aðal-
maður í Vernd, félags um fanga-
hjálp. Hildur Björk var vígð til þjón-
ustu í Reykhólaprestakalli og var þar
sóknarprestur frá 2016-2019,“ segir
í tilkynningu frá Biskupsstofu. mm
Hermína Kristín Lárusdóttir tekur við sem leikskólastjóri við leikskóla Snæfells-
bæjar 1. júní næstkomandi. Ljósm. Snæfellsbær
Hermína hefur verið ráðin nýr
leikskólastjóri í Snæfellsbæ
Hildur Björk
ráðin sóknarprestur
í Reykholt
Séra Hildur Björk Hörpudóttir verðandi sóknarprestur í Reykholti.