Skessuhorn - 28.04.2021, Page 18
MiðVikUDAGUR 28. ApRÍL 202118
Sigrún Ríkharðsdóttir gefur
venjulega allt í það sem hún tek-
ur sér fyrir hendur. Það fer ekki
framhjá nokkrum manni þegar
hún er mætt á völlinn að styðja
Skagamenn í boltanum. Hvatn-
ingahróp hennar bergmála í stúk-
unni og inn á völlinn. Hún og
þéttur kjarni stuðningsmanna
hafa haldið hópinn til margra
ára og láta vel í sér heyra á öll-
um leikjum sem þau mæta á. Þessi
hópur er svo sannarlega í farar-
broddi stuðningsmanna Skagal-
iðsins. Á sama tíma á ört vaxandi
starfsemi Fimleikafélags Akraness
hug Sigrúnar. Hún er starfsmað-
ur félagsins og hefur setið í stjórn
þess. Að loknu spjalli við tíðinda-
mann Skessuhorns var hún rokin
af stað til þess að skipuleggja fjár-
öflun sem var að fara af stað hjá
fimleikafélaginu.
Ólst upp í kringum
fótboltann
„Það má segja að ég hafi alist upp
við að lifa og hrærast í kringum
fótboltann. pabbi var auðvitað
leikmaður og þjálfari liðsins um
árabil og síðan viðloðandi félagið
á margan hátt í stjórn og öðrum
trúnaðarstörfum. Ég man eftir
því að vinkonur mínar í þá daga
fóru með foreldrum sínum í úti-
legur á sumrin en ég komst auð-
vitað ekki þar sem að þetta var
háannatími fótboltans og pabbi
við þjálfun. Ég var ekkert súr út
af þessu, fannst þetta bara forrétt-
indi að fá að fylgja honum á leiki.
En það var helst að við færum í
stutta útilegu þegar keppnistíma-
bilinu var lokið eða ef eitthvert
hlé varð á sumrin,” sagði Sigrún.
Gulir og glaðir
Ragnheiður Ríkharðsdóttir elsta
systir Sigrúnar lét vel í sér heyra á
áttunda áratugnum þegar hún hvatti
sína menn til dáða úr stúkunni
og gaf ekkert eftir. „Það má alveg
segja að ég hafi tekið við keflinu af
henni en ég byrjaði með stuðnings-
mannahópnum „Gulum og glöð-
um“ á sínum tíma um 1980. Þá var
mikið fjör enda hressir einstakling-
ar í þeim hópi. Í seinni tíð erum við
nokkur saman sem reynum að fara
á alla leiki og styðja Skagamennina.
Þar á meðal má nefna séra Guðna
Harðarson og Gísla bróður hans,
Brynjólf Þór Guðmundsson frétta-
mann á RÚV, Sillu karen og Elfu
Björk sem var starfsmaður á skrif-
stofu félagsins og að ógleymd-
um Ólafi Elíasi Harðarsyni sem er
dyggur og ómetanlegur stuðnings-
maður og hefur komið með mér á
flesta leiki liðsins. Þarna eru aðeins
nokkrir nefndir en þetta er allt frá-
bær hópur.“
Eftirminnileg ferð
til Ísafjarðar
Sigrún segir að þau hafi ekkert hik-
að við að fylgja liðinu hvert á land
sem var. „Við fórum til Ólafsfjarð-
ar, Grenivíkur og fram og til baka
til Akureyrar á einum degi til að
sjá fótboltaleik. En eitt eftirminni-
legasta ferðalagið var til Ísafjarð-
ar á sínum tíma þegar við lékum í
1. deild og áttum leik í miðri viku.
Það var ákveðið með stuttum fyrir-
vara að fara og koma aftur til baka
um nóttina. En ferðin var algerlega
þess virði því við sigruðum BÍ 6:0
fyrir vestan.“
Stig hafði aldrei heyrt
jafn háa kvenmannsrödd
Sigrún segir að það hafi verið marg-
ar skemmtilegar ferðir sem hún
hefur farið með Skagaliðinu. Ein
þeirra eftirminnilegri var þegar hún
sem formaður kFÍA fór með liðinu
á Evrópuleik gegn Randers í Dan-
mörku árið 2007. „Þrátt fyrir að ég
sæti í heiðursstúkunni á leiknum þá
lét ég samt vel í mér heyra. Í hálf-
leik kom formaður Randers til mín
og sagði að það væri hérna maður
sem vildi fá að ræða aðeins við mig.
Sá var Stig Töfting. Hann átti að
baki 41 landsleik með Dönum og
lék með Aarhus, Duisburg í Þýska-
landi og Bolton Englandi á sínum
leikmannsferli. Hann sat hjá mér í
síðari hálfleik og sagðist aldrei hafa
heyrt svona áberandi og háa kven-
mannsrödd á ævi sinni. Höfðum
við bæði gaman af þessu.
Ungu mennirnir
aðalsmerki félagsins
En hvernig lýst Sigrúnu á Íslands-
mótið sem nú er að hefjast? Svo-
kallaðir knattspyrnusérfræðing-
ar spá Skagamönnum hreint ekki
góðu gengi í sumar. Jafnvel spáð
botnbaráttu og einhverjir spá þeim
falli úr deildinni. Sigrún hins veg-
ar spáir því að Skagamenn verði
um miðja deild og tekur ekki undir
svartsýnisraddir.
„Ég er ekki svo svartsýn. Ég held
að Skagamenn verði mun ofar í
stigatöflunni en spáð er. Ég hika
ekki við það að spá þeim um miðja
deild. Ég held að þetta ráðist svo-
lítið af því hvernig ungu strákarn-
ir standa sig. Það hefur verið okk-
ar aðalsmerki hérna á Skaganum að
ala upp efnilega stráka og gefa þeim
tækifæri. Ef þeir hafa sjálfstraustið
til að takast á við liðin í efstu deild
þá geta þeir látið mikið að sér kveða
en ef ekki þá óttast ég að þeir gætu
orðið okkar helsti veikleiki. Þá hef
ég trú á því að endurkoma Arnars
Más Guðjónssonar í liðið eigi eftir
að styrkja okkur mikið. En auðvitað
hef ég mestar áhyggjur af sóknar-
línunni. Við höfum misst Tryggva
Hrafn Haraldsson og Stefán Teit
Þórðarson sem komu að stærstum
hluta að markaskoruninni í fyrra.
En ég treysti Jóhannes karli til þess
að ná því besta út úr Viktori Jóns-
syni og nýja leikmanninum Hákoni
inga Jónssyni. Þá fannst mér allt
annað að sjá til Arons kristófers
Lárussonar þegar hann var færður
framar á völlinn. Hann getur skap-
að usla með hraða sínum. Þá hef-
ur vörnin verið styrkt með komu
Finnans Elias Tamburini og Skot-
anum Alex Davey. Ég sagði fyr-
ir tveimur árum síðan á uppskeru-
hátíð ÍA að ég vildi sjá Skagamenn
verða Íslandsmeistara árið 2021 og
fagna þar með 70 ára afmæli fyrsta
Íslandsmeistaratitils okkar Skaga-
manna árið 1951. En ég þori samt
ekki að vera svo bjartsýn í ár. Það
verður væntanlega að bíða aðeins
lengur,” segir Sigrún.
Hlutastarfið hefur
undið upp á sig
Sigrún hefur tekið virkan þátt í
starfsemi Fimleikafélags Akraness
og hefur setið í stjórn félagsins og
nú sem starfsmaður þess. „Þetta
byrjaði þannig að Ninja dóttir
mín hóf að æfa með félaginu og ég
fylgdi henni eftir og fór í stjórn og
síðan í hlutastarf hjá félaginu sem
hefur undið upp á sig. Ég sé um
reksturinn á félaginu, samskipti við
foreldra og að skipuleggja mót svo
eitthvað sé nefnt. Í dag er Þórdís
Þráinsdóttir yfirþjálfari hjá okkur
og hefur staðið sig frábærlega. Við
erum með alls um 30 þjálfara hjá
okkur, þar af tvo í fullu starfi.
Fimleikafélagið með
flesta iðkendur
iðkendur eru tæplega sex hundruð
og er Fimleikafélag Akraness orð-
ið það félag innan ÍA sem er með
flesta iðkendur í dag. „Síðan verður
alger bylting með tilkomu nýja fim-
leikahússins við Vesturgötu. Húsið
er afar vel heppnað og get ég ekki
beðið eftir því að sýna almenningi
þetta glæsilega hús þegar aðstæður
leyfa. Húsið er mikil lyftistöng fyrir
íþróttalífið í bænum.“
Íslandsmót á Akranesi
í byrjun júní
Framundan er stórt verkefni hjá fé-
laginu sem er Íslandsmótið í hóp-
fimleikum sem fram fer á Akranesi
4.-6 .júní næstkomandi. „Þá var Gk
mótið í hópfimleikum haldið hérna
á Akranesi í vetur og tók ÍATV að
sér að senda beint frá mótinu og
voru um ellefu þúsund manns sem
horfðu á þessa útsendingu, sem er
ótrúlegur fjöldi og sýnir áhugann
fyrir þessari íþrótt. Þetta var frá-
bært framtak hjá forsvarsmönn-
um ÍATV. Þá er félagið með árlega
sýningu iðkenda sem var í íþrótta-
húsinu og verður svo í nýja húsinu
í framtíðinni. Við höfum fyllt hús-
ið tvisvar á þessum sýningum ár
hvert. Það er selt inn á sýninguna
og er um leið fjáröflun hjá okkur.
Þátttakendur hjá félaginu eru frá
fimm ára aldri og upp úr. Við erum
núna komin með meistaraflokk
sem er farinn að keppa við Stjörn-
una og Gerplu í 1. deild. Við höf-
um nú eignast okkar fyrstu lands-
liðsstúlku, sem er Guðrún Júlianne
Unnarsdóttir, og er hún í unglinga-
landsliðinu. Hún varð síðan þriðja í
kjöri íþróttamanns Akraness í fyrra.
Þannig að framtíðin er björt hjá
fimleikafólki á Akranesi,“ segir Sig-
rún Ríkharðsdóttir að endingu.
se
Kunnugleg sjón á pöllunum. „Stig
Töfting sat hjá mér í síðari hálfleik
og sagðist aldrei hafa heyrt svona
áberandi og háa kvenmannsrödd á
ævi sinni.“
„Brenn fyrir fótboltanum og fimleikafélaginu“
segir Sigrún Ríkharðsdóttir - einn harðasti stuðningsmaður Skagamanna
Sigrún Ríkharðsdóttir.
„Ég man eftir því að vinkonur mínar í þá daga fóru með foreldrum sínum í útilegur
á sumrin en ég komst auðvitað ekki þar sem að þetta var háannatími fótboltans
og pabbi við þjálfun,“ rifjar Sigrún upp. Við látum hér fylgja með mynd úr safni
Skessuhorns. „Á kynslóðaleiknum vorið 2008 var pabbi fremstur og leiddi nafna
sinn og son minn. Ég felldi tár, mér fannst þetta svo stórkostleg stund,“ sagði
Sigrún. Ljósm. mm.
Helgina 20.-21. febrúar síðastliðinn var GK mót í hópfimleikum haldið á Akranesi.
Var það jafnframt fyrsta fimleikamótið sem haldið er í nýja fimleikahúsinu við
Vesturgötu á Akranesi. „Húsið er afar vel heppnað og get ég ekki beðið eftir því að
sýna almenningi þetta glæsilega hús þegar aðstæður leyfa,“ segir Sigrún.
Sigrún með vini sínum Ólafi Elíasi
Harðarsyni á heimaleik ÍA.