Skessuhorn - 28.04.2021, Side 21
MiðVikUDAGUR 28. ApRÍL 2021 21
Ratleikjaappið er símaapp sem er
aðgengilegt bæði á App Store og
Google play öllum að kostnaðar-
lausu. Það kom út í fyrra frá Sýslu,
menningu og listum, sem er lítið
sprotafyrirtæki sem hefur verið að
vinna með íslenskt hand- og hug-
verk þar sem áhersla er lögð á að
útbúa spil, leiki, þrauta- og hljóð-
bækur og snjallforrit. Ratleikjaapp-
ið er auðvelt og skemmtilegt leikja-
app fyrir alla fjölskylduna og býður
appið upp á ratleik í alls átta bæj-
arfélögum á landinu. Þau eru auk
Akraness; Vogar, Suðurnesjabær,
Reykjanesbær, Reykjavík, Hafnar-
fjörður, Stykkishólmur og Selfoss.
Markmið ratleiksins er að ferðast
um bæinn hvort sem er gangandi
eða á hjóli og kynnast skemmti-
legum stöðum í bænum ásamt því
að safna stjörnum sem birtast í for-
ritinu við hin ýmsu kennileiti víðs
vegar um bæinn. Til þess að finna
ratleikjastoppin og vinna stjörnu
þarf að smella á hnappinn „Byrja
leitina“. Um leið og smellt er á
hnappinn opnast myndavél í sím-
anum þar sem þú skannar með sím-
anum yfir svæðið þar sem þig grun-
ar að rétta stoppið sé. Ef þú hefur
valið rétt svæði birtist stjarna og til
að halda áfram á næsta stopp þarf
að smella á stjörnuna.
Leikurinn hleður ekki niður
neinum upplýsingum um notend-
ur en til að geta spilað leikinn þarf
að gefa appinu aðgang að staðsetn-
ingu og myndavél símtækisins (það
er mjög mikilvægt því annars gerist
ekki neitt). Ekki er alveg nauðsyn-
legt að vera kunnugur öllum stað-
háttum í hverjum bæ fyrir sig þó
það hjálpi vissulega. Alltaf er hægt
að finna staðsetninguna með GpS
korti í leiknum og einnig hægt að
fá vísbendingu á hverjum stað í
símanum. Appið er afþreying fyrir
fólk á öllum aldri en er hugsað fyrir
krakka frá á að giska sjö ára aldri og
upp úr og er hvatning til útiveru og
góðra samverustunda.
Hjólatúr á Skaganum
Blaðamaður Skessuhorns ákvað að
skella sér í þennan ratleik síðasta
sunnudag í mildu vorveðri á Akra-
nesi í hjólatúr með konunni og ein-
um sjö ára gutta sem var aldeilis
spenntur. Fyrsta stoppið var Ljós-
kerið á Akurshól svo ég gefi smá vís-
bendingu þannig að fólk komist nú
af stað í leiknum og síðan var mað-
ur leiddur á hina ýmsu staði á Akra-
nesi, allt frá þekktum kennileitum,
flottum listaverkum, styttum, úti-
vistarsvæðum og á staði sem mað-
ur hafði ekki komið á ansi lengi.
Ef maður var ekki alveg viss hvert
ætti að fara næst að þá eru allskyns
skemmtilegar vísbendingar sem
koma upp í appinu til að hjálpa fólki
að komast á næsta stað. Eins og t.d.
listaverk Margeirs Guðmundsson-
ar í hjarta Akraness, „Heimili“ Spi-
derman í nálægð við grunnskóla,
Hoppað á Neðri-Skaga, leiksvæði
tjaldbúa og elsta steinsteypta íbúð-
arhúsið á Íslandi. Þá er einnig hægt
ef allt þrýtur að nota GpS kortið í
leiknum en innfæddum er strang-
lega bannað að nota það! Alls eru
þetta 20 staðir víðsvegar um bæinn
og gefa góða mynd af Skaganum en
ég verð þó að segja að ég saknaði
þess að fá ekki að kíkja á Breiðina
og á Akranesvita og ég er viss um að
Hilmar vitavörður er sammála mér
þar. Alls tók hjólatúrinn um tvo og
hálfan tíma og vegalengdin er rúm-
ir 12 kílómetrar og því er upplagt
að taka með sér nesti fyrir ferðina
eða kíkja í bakarí jafnvel á miðri
leið og taka gott nestisstopp til að
safna kröftum fyrir seinni hluta
ferðarinnar. Ég mæli virkilega með
þessum stórskemmtilega ratleik og
við fjölskyldan stefnum á að kíkja
á fleiri staði í sumar og líklegt að
næsti viðkomustaður verði sá fal-
legi bær Stykkishólmur. Því segi ég:
Gleðilegt ratleikjasumar!
vaks
Steinn Steinar.
Ratleikjaappið er hvatning til
útiveru og góðra samverustunda
Ljóskerið á Akurshól.
Heimili Köngulóarmannsins.
Lóa Katrín með mömmu sinni, Krist-
jönu, í bátsferð.
trúi því að einn af lykilþáttum þess
að bæta þessa stöðu sé að landsvæð-
in eigi sér málsvara og rödd við
borðið þar sem ákvarðanirnar eru
teknar. Við tölum ekki alltaf fallega
um kjördæmapot en ég held að við
þurfum að snúa því við, það þurfa
allir hópar að eiga sína rödd og þar
finn ég að ég hef eitthvað að gefa,“
segir Guðmundur. „Ég hef mikinn
áhuga á byggðamálum almennt og
hvernig samfélögin tikka, verða til
og eflast,“ bætir hann við.
Fjölbreyttara atvinnulíf
Guðmundur segist vilja sjá aukna
fjölbreytni og nýsköpun á lands-
byggðinni svo minni þorp hafi
fleiri en eina atvinnustoð. „Þegar
atvinnustoðirnar eru fáar eru sam-
félögin veikburða og völt. Ég vil
sjá okkur byggja upp fjölbreytt-
ari atvinnu á landsbyggðinni þar
sem við vinnum markvisst að því
að efla atvinnuuppbyggingu,“ seg-
ir Guðmundur. „Síðustu áratugi
hafa samfélög úti á landi mikið ver-
ið að reiða sig á eitt gullegg en við
þurfum að setja eggin í fleiri körf-
ur,“ bætir hann við. Þá segir hann
samgöngumál vera ofarlega á lista
yfir það sem þurfi að koma í lag í
Norðvesturkjördæmi. „Það er eitt-
hvað sem öll sveitarfélögin á þessu
svæði eiga sammerkt. Við þurfum
líka að horfa til þess að samgöngur
eru ekki bara fyrir ferðaþjónustu,
við megum ekki gleyma fólkinu
sem býr og starfar á þessum svæð-
um. Það þarf líka að fara í heljarinn-
ar uppbyggingu í samgöngumálum
innan sveita. Það væri nú bara til að
æra óstöðugan að telja upp allt sem
þarf að bæta í samgöngum í kjör-
dæminu. Þarna eru svæði sem hafa
verið svelt í þessum efnum alltof
lengi,“ segir Guðmundur.
Fjölmenningin styrkir
samfélögin
Heilbrigðismálin segir Guðmundur
einnig vera honum ofarlega í huga.
„Við þurfum að gera framtíðarplan
í heilbrigðismálum á landsbyggð-
inni. Það hefur verið skorið niður
lengi og er enn verið að skera nið-
ur. Það þarf að snúa þessu við,“ seg-
ir hann og bætir við að þetta sé bara
lítið brot af því sem þurfi að gera til
að bæta kjör íbúa á landsbyggðinni.
„Grunnþjónusta er víða á lands-
byggðinni mjög skert og það þarf
að breytast. Það eru grunnstoðirn-
ar sem ég vil fyrst og fremst verja
minni orku í að berjast fyrir. Ég hef
líka mikinn áhuga á fjölmenningar-
málum og finnst við þurfa að setja
meiri fókus á þau auðæfi sem fel-
ast í fjölmenningu. Fjölmenning-
in styrkir samfélögin en við þurf-
um líka að huga vel að fólkinu. Við
þurfum að gæta þess hvernig skóla-
kerfið tekur á móti fólki og hvergi
þjónustu við bjóðum upp á fyrir
fólk sem kemur annars staðar frá,“
segir Guðmundur.
Viðreisn samrýmist
skoðunum hans
Aðspurður segist hann hafa valið að
ganga til liðs við Viðreisn því mál-
efni flokksins samrýmist því sem
hann standi fyrir. „Hjá Viðreisn er
rauði þráðurinn að almannahags-
munir trompi sérhagsmuni og allt
sem við stöndum fyrir snýr að því
að stuðla að réttlæti og jafnrétti.
En ég hef líka sterkar skoðanir á
að við þurfum að efla alþjóðasam-
starf. Það skiptir ekki máli hvar þú
átt heimili eða hvar þú byggir upp
þína fjölskyldu, vaxtaumhverfi okk-
ar og þessi örgjaldmiðill gerir okk-
ur öllum þyngra að koma þaki yfir
höfuðið og bítur jafn sárt hvort
sem þú átt heima í Bolungarvík eða
Garðabæ. Þetta þarf að breytast.
Við þurfum að gera öllum kleift að
eignast heimili,“ segir Guðmund-
ur Gunnarsson oddviti Viðreisnar í
Norðvesturkjördæmi.
arg/ Ljósm. aðsendar
Guðmundur og Lóa Katrín tíu ára dóttir hans.