Skessuhorn - 28.04.2021, Blaðsíða 26
MiðVikUDAGUR 28. ApRÍL 202126
Lið Umf. Reynis Hellissands í
knattspyrnu, sem leikur í fjórðu
deildinni í sumar, lék á mánudags-
kvöldið í fyrstu umferð Mjólkurbik-
arsins og fór leikurinn fram á Hell-
issandi. Andstæðingurinn var lið
Aftureldingar sem leikur í Lengju-
deildinni, sem er næstefsta deild Ís-
landsmótsins. Heimamenn áttu í
fullu tré við Mosfellinga og stað-
an var markalaus í hálfleik. Á 58.
mínútu komst Afturelding yfir með
marki Valgeirs Árna Svanssonar og
hann var aftur á ferðinni á 90. mín-
útu og lokastaðan því 0-2.
Leikurinn var merkilegur fyrir
þær sakir að þetta var fyrsti leikur
Reynis Hellissands í Meistaraflokki
á Íslandsmóti frá upphafi og var
þetta sömuleiðis vígsluleikur þeirra
á hinum glæsilega heimavelli þeirra
á Hellissandi og því mikið um dýrð-
ir í bænum. Þjálfari liðsins og for-
sprakki er Sandarinn kári Viðars-
son sem hefur vakið mikla athygli
fyrir stofnun og rekstur Frystiklef-
ans í Rifi og ljóst að það verður
meira en bara menning á Hellis-
sandi í sumar.
Mikil og góð stemning var á
vellinum fyrir leikinn en þetta var
fyrsti opinberi heimaleikur Reynis
frá því að völlurinn var vígður árið
1994. En sem viðbót við hefðbund-
inn fótboltaleik voru tekin upp at-
riði í kvikmyndina Heimaleikurinn.
karlakórinn kári söng fyrir leikinn
lagið Ég er kominn heim.
Fjölmargir áhorfendur mættu á
leikinn og hvöttu sína menn áfram.
Ekki var annað að sjá en að Reynis-
menn börðust til hinsta blóðdropa
og með hinum sanna ungmenna-
félagsanda að vopni og höfðu gam-
an af.
af/vaks/ Ljósmyndir
Alfons Finnsson.
Karlakórinn Kári söng
Ég er kominn heim, áður
en leikurinn hófst. Ekki
er útsýnið á Hellissand-
svelli að skemma fyrir.
Fyrsti opinberi leikurinn á Hellissandsvelli
Afturelding sótti án afláts en Reynismenn tóku vel á móti í sóknum þeirra.
Vörn Reynismanna var ekkert til að leika sér að. Leikgleðin skein úr heimamönnum og meðal liðsmanna var Aron Baldursson
framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Íslands.
Stuðningsmenn Reynis mættu vel dúðaðir á leikinn og tóku vel þátt í leiknum
fánum prýddir. Áhorfendur streyma á völlinn.