Skessuhorn - 28.04.2021, Page 28
MiðVikUDAGUR 28. ApRÍL 202128
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Íslandsmeistaramót í sundi í 50m
laug fór fram í Laugardalslaug um
síðustu helgi. Alls tóku þátt 175
sundmenn frá 13 félögum, þar af
voru níu keppendur frá Sundfélagi
Akraness. Sundgarparnir frá Akra-
nesi stóðu sig með prýði á mótinu
og komu heim með tvö silfur og
fimm Akranesmet auk þess sem
persónulegar bætingar voru 33
talsins.
Settu Akranesmet
Enrique Snær Llorens Sigurðs-
son tók silfur í 200m og 400m fjór-
sundi. En keppnin var hörð á milli
hans og Veigars frá SH í 400m
fjórsundinu. Enrique var aðeins 0,9
sekúndum frá gullinu en hann synti
á tímanum 4.43.86 og bætti um leið
eigið Akranesmet frá því í fyrra um
sex sekúndur. Þá bætti hann einnig
Akranesmet Hrafns Traustasonar
frá árinu 2009 í 200m fjórsundi um
3 sekúndur þegar hann synti á tím-
anum 2.12.81. Í 100m flugsundi
lenti Enrique í 5. sæti með tímann
59.22, sem er í fyrsta sinn sem hann
fer það sund á undir mínútu.
Sindri Andreas Bjarnason setti
tvö ný Akranesmet á mótinu, ann-
ars vegar þegar hann hafnaði í 4.
sæti í 200m skriðsundi með tímann
2.00.97 og bætti Akranesmet sem
Enrique hafði sett tveimur dög-
um áður, og hins vegar þegar hann
lenti í 5. sæti í 400m skriðsundi á
tímanum 4.17.16 og bætti Akra-
nesmet sem Enrique setti í fyrra.
Þá var Sindri í 5. sæti í 100m skrið-
sundi á tímanum 54.80.
Þá bættu strákar í sveit Sund-
félags Akraness Akranesmet í
4x200m skriðsundi á tíman-
um 8.19.87 og höfnuðu um leið
í 4. sæti. Þá lentu þeir í 5. sæti í
4x100m skriðsundi. Sveitina skipa
Einar Margeir Ágústsson, Enrique
Snær Llorens Sigurðsson, krist-
ján Magnússon og Sindri Andreas
Bjarnason.
Önnur úrslit í
flokki karla
Einar Margeir Ágústsson bætti sig
um sex sekúndur í 100m bringu-
sundi og tók 5. sæti með tím-
ann 1.09.84. Hann bætti sig einn-
ig í 50m bringusundi og hafn-
aði í 6. sæti með tímann 32.23 og
í 200m bringusundi synti hann á
sínum besta tíma. Þá bætti hann
sig í 100m skriðsundi þegar hann
synti á 58.18. Guðbjarni Sigþórs-
son bætti sig um ellefu sekúndur í
400m skriðsundi þegar hann fór á
4.40.17. Þá bætti hann sig um fjór-
ar sekúndur í 200m skriðsundi með
tímann 2.09.35 og í 100m skrið-
sundi bætti hann sig um eina sek-
úndu með tímann 57.50 auk þess
sem hann fór á sínum besta tíma
í 200m fjórsundi. Alex Benjam-
in Bjarnason synti 50m skriðsund
á tímanum 26.40 og bætti sig um
0,34. Í 100m skriðsundi bætti hann
tímann um eina sekúndu þegar
hann fór á tímanum 58.52. krist-
ján Magnússon bætti sig um hálfa
sekúndu í 50m skriðsundi þegar
hann fór á tímanum 26.34 en hann
þurfti að draga sig úr keppni vegna
veikinda.
Úrslit í flokki kvenna
Ragnheiður karen Ólafsdóttir
synti sig oft inn í úrslit. Hún tók
til að mynda 5. sæti í 50m skrið-
sundi með tímann 28.71 og bætti
sig um leið um rúmlega sekúndu.
Hún hafnaði í 6. sæti í 50m flug-
sundi. Þá var hún í úrslitum í 50m
bringusundi og eftir undanúrslit-
in var ljóst að hún væri í baráttu-
sæti um verðlaun. Því miður varð
hún of fljót á sér og var því ógild
fyrir þjófstart. Ragnheiður komst
líka í úrslit í 200m fjórsundi en
dró sig úr keppni til að einbeita
sér að 50m bringusundi. karen
káradóttir synti þrisvar í úrslitum
en hún var í 7. sæti í 50m bringu-
sundi með tímann 38.61 og 8. sæti
í 200m bringusundi með tímann
3.03.02 sem er hennar besti tími.
Hún synti einnig í 100m bringu-
sundi og hafnaði í 9. sæti á tím-
anum 1.24.58 sem er hennar besti
tími. ingibjörg Svava Magnúsar-
dóttir synti á tímanum 1.05.97 í
100m skriðsundi auk þess sem
hún átti sína bestu tíma í bæði
200m og 400m skriðsundi. En
vegna meiðsla varð ingibjög að
draga sig úr keppni í 800m skrið-
sundi.
Þá voru stelpurnar í boðsund-
sliði Sundfélags Akraness í 9. sæti
í 4x100m skriðsundi og í 10. sæti
í 4x100m fjórsundi. En liðið skipa
þær ingibjörg Svava Magnúsar-
dóttir, karen káradóttir, Lára
Jakobina Ringsted og Ragnheiður
karen Ólafsdóttir.
arg/Ljósm. Sundfélag Akraness
Sundkappar hvattir áfram.
Skagamenn stóðu sig vel á
Íslandsmeistaramóti í sundi um helgina
Enrique Snær Llorens Sigurðsson náði í
tvö silfur á mótinu.
Sundkappar frá Akranesi náðu góðum árangri á mótinu.
Boðsundslið stelpna.
Sindri Andreas Bjarnason setti tvö ný Akranesmet á mótinu.
Enrique á sundi. Kristján að verða klár fyrir sundið.
Komið í mark.