Skessuhorn - 28.04.2021, Blaðsíða 30
MiðVikUDAGUR 28. ApRÍL 202130
Hver er þinn
uppáhalds fugl?
Spurning
vikunnar
(Spurt í síma)
Guðrún Fjeldsted
„Það er náttúrulega lóan.“
Helga Ólöf Oliversdóttir
„Hrossagaukurinn.“
Erna Kristín Hjaltadóttir
„Maríuerla.“
Guðrún Guðbjarnadóttir
„Jaðrakan.“
Ingi Hans Jónsson
„Uppáhalds fuglinn minn er
náttúrulega krumminn.“
Skallagrímur úr Borgarnesi sigraði
Snæfell úr Stykkishólmi örugglega
5:1 í Mjólkurbikarleik í knattspyrnu
á sunnudaginn. Spilað var í Ólafs-
vík. Skallagrímur mætir því kára
í Vesturlandsslag í annarri umferð
Mjólkurbikarsins í leik sem fram
fer í Akraneshöllinni laugardag-
inn 1. Maí kl. 14. kári slapp auð-
veldlega í gegnum fyrstu umferðina
þar sem Vængir Júpíters drógu sig
úr keppni áður en leikurinn átti að
fara fram.
Í leiknum á sunnudag náðu
Skallagrímsmenn þriggja marka
forystu á fyrsta hálftímanum með
mörkum þeirra Snorra kristleifs-
sonar, Hervars Gunnarssonar og
Sigurjóns Ara Guðmundssonar.
En aðeins tveimur mínútum síð-
ar misstu Skallagrímsmenn Ástþór
Ými Alexandersson af velli með
rautt spjald. En það kom ekki í veg
fyrir að Skallagrímsmenn bættu
fjórða markinu við fyrir leikhlé og
var Viktor Már Jónasson þar að
verki.
Snæfell náði að klóra í bakkann
þegar tíu mínútur voru liðnar af
seinni hálfleik með marki Mateusz
Roman kubas en mínútu síðar
gulltryggðu Borgnesingar sigurinn
með fimmta markinu og var Fabian
Jan Zawiszewski þar að verki. se
Víða um land var plokkdagurinn
haldinn um liðna helgi. Ungir sem
aldnir héldu þá út í góða veðrið á
gönguskónum vopnaðir pokum,
ruslaklemmum og góða skapinu
til að hreinsa upp rusl sem einhver
hafði „gleymt“ í náttúrunni. Með-
al þeirra voru félagar í Hollvina-
samtökum Borgarness. Þeir komu
saman á laugardagsmorgni í frá-
bæru veðri, logni og hlýju, við kaffi
kyrrð í Skúlagötu. Skipt var liði og
tínt rusl um gamla bæinn. Endaði
svo mannskapurinn í kaffi og kakói
á kaffihúsinu eftir útiveruna og
ruslahreinsun. glh
Skallagrímsmenn máttu játa sig sigr-
aða gegn Vestra þegar liðin mætt-
ust í 1. deild karla í körfuknattleik
á föstudagskvöldið, 102-85. Leikið
var á Ísafirði. Lið Vestra var sterk-
ara liðið á vellinum allan tímann.
Snemma í upphafsfjórðungnum
voru heimamenn búnir að ná for-
skotinu og voru komnir níu stigum
yfir gestina áður en leikhlutinn rann
út. Í öðrum leikhluta áttu Borgnes-
ingar ágætan kafla og náðu aðeins
að ógna forskoti heimamanna. En
þegar leikhlutinn var hálfnaður
voru aðeins tvö stig sem skildu lið-
in að. Lið Vestra var engu að síður
sterkara liðið og þegar flautað var
til hálfleiks voru þeir með 55 stig
gegn 49 stigum Skallagríms.
Skallagrímsmenn áttu erfitt upp-
dráttar eftir hléið og á fimm mín-
útna kafla náðu þeir engu stigi og
staðan var 73-65 fyrir lokafjórð-
unginn. Lokafjórðungurinn byrj-
aði aðeins betur hjá Borgnesingum
og þeir náðu að halda í við Vestra
fyrstu mínúturnar. Um miðjan
leikhlutann misstu þeir svo heima-
menn frá sér og náðu aldrei að bæta
það upp og lokatölur 102-85 fyrir
Vestra.
Í liði Skallagríms var Nebojsa
knezevic atkvæðamestur með 22
stig, kristján Örn Ómarsson var
með 15 stig, Marques Oliver með
14 stig og sex fráköst, Davíð Guð-
mundsson var með tólf stig, Eyjólf-
ur Ásberg Halldórsson skoraði ell-
efu stig, tók sex fráköst og gaf átta
stoðsendingar, kristófer Gíslason
skoraði sex stig, Ólafur Þorri Sig-
urjónsson var með fjögur stig og
Marinó Þór pálmason skoraði eitt
stig. Í liði Vestra var ken-Jah Bos-
ley atkvæðamestur með 28 stig og
sex fráköst og Nemanja knezevic
með 23 stig, 14 fráköst og sex stoð-
sendingar.
Skallagrímur er nú í fimmta sæti
deildarinnar með 16 stig, eins og
Sindri í sætinu fyrir ofan og tveim-
ur stigum frá Vestra í sætinu fyrir
neðan.
Næst mætir Skallagrímur Álfta-
nesi í Borgarnesi föstudaginn 30.
apríl kl. 19:15. arg
keilufélag Akraness mun eiga tvö
lið í efstu deild á næsta keppnis-
tímabili. Lið ÍA í 2. deild karla sigr-
aði á mánudaginn sinn síðasta leik
í deildinni og tryggðu sér þá fyrsta
sætið og farmiða upp í efstu deild á
næsta tímabili. Fyrir var keilufélag
Akraness með lið sem er sem stend-
ur í öðru sæti í efstu deild og öruggt
í úrslitakeppnina.
Liðið sem færist nú upp um deild
er skipað þeim Ársæli Erlingssyni,
Einari Jóel ingólfssyni, Matthíasi
Leó Sigurðssyni, Sigurði Þorsteini
Guðmundssyni og Valdimar Guð-
mundssyni. arg
Kári mætir Skallagrími
í Mjólkurbikarnum
Sigurður Þorsteinn Guðmundsson, Matthías Leó Sigurðsson og Einar Jóel Ingólfs-
son. Á myndina vantar Ársæl Erlingsson og Valdimar Guðmundsson.
Keilufélagið tryggði
sér sæti í efstu deild
Nebojsa Knezevic var atkvæðamestur í liði Skallagríms. Ljósm. Skallagrímur
Tap hjá Skallagrímskörlum á Ísafirði
Plokkað í góða veðrinu
F.v. Hafþór Ingi, Katrín Huld, Heiðrún Helga, Ingibjörg, Hekla og Gunnhildur Lind.
F.v. Fjóla, Ingibjörg, María Erla, Sigurbjörg og Þórdís Sif sveitarstjóri Borgar-
byggðar.
En það var víðar flokkað.
Í Grundarfirði fór
Ingibjörg Eyrún Bergvins-
dóttir með strákana sína
þrjá út að plokka þó svo
að einn þeirra hafi ekki
mátt vera að því að sitja
fyrir á mynd, en þeir
Kristján og Hafþór eru
hér með móður sinni en á
myndina vantar Hilmar.
Ljósm. tfk.