Skessuhorn - 28.04.2021, Síða 31
MiðVikUDAGUR 28. ApRÍL 2021 31
Skallagrímskonur unnu góðan úti-
sigur á kR þegar liðin mættust í
Domino‘s deild kvenna í körfu-
knattleik á laugardaginn, 80-88. Í
fyrri leik vikunnar sigruðu Skalla-
grímskonur keflvíkinga sem fram
fór á heimavelli á miðvikudaginn.
Úrslitin 76-64.
Eftir jafnan fyrri hálfleik tóku
Borgnesingar stjórnina í sínar
hendur og sigruðu leikinn. kR
konur voru með forystuna fyrstu
mínútur leiksins á laugardaginn en
áttu svo tæplega þrjár stigalausar
mínútur sem Borgnesingar nýttu
vel og komust sjö stigum yfir eft-
ir rúmlega sjö mínútna leik. Vest-
urbæingar gíruðu þá upp og náðu
að minnka muninn í eitt stig, 16-17,
rétt áður en fyrsti leikhluti klárað-
ist. Í öðrum leikhluta voru Borg-
nesingar áfram með forystuna en
heimakonur fylgdu þeim fast á eft-
ir. Skallagrímskonur spiluðu vel og
voru fimm stigum yfir þegar flautað
var til hálfleiks, 34-39.
Heimakonur virtust ekki eiga
nein ráð við leik Skallagríms eftir
hléið og gestirnir spiluðu mjög vel
og voru með 62 stig gegn 53 stigum
Vesturbæinga fyrir lokafjórðung-
inn. Lítið markvert gerðist síðustu
mínútur leiksins. Borgnesingar
voru með leikinn í höndum sér og
kR konur eltu. Lokatölur í Vestur-
bænum voru 80-88 Skallagríms-
konum í vil.
keira Robinson var atkvæðamest
í liði Skallagríms með 37 stig og átta
fráköst, Sanja Orozovic var með 19
stig og sex fráköst, Embla kristín-
ardóttir skoraði 13 stig, tók sjö frá-
köst og gaf fimm stoðsendingar,
Maja Michalska skoraði níu stig,
ingibjörg Rósa Jónsdóttir var með
fimm stig, Arna Hrönn Ámunda-
dóttir skoraði þrjú stig og Gunn-
hildur Lind Hansdóttir skoraði tvö
stig og tók níu fráköst. Í liði kR var
Annika Holopainen atkvæðamest
með 30 stig og sex fráköst, Taryn
Ashley Mc Cutcheon skoraði 23
stig og gaf sex stoðsendingar.
Skallagrímur situr nú í fimmta
sæti deildarinnar með 16 stig, sex
stigum minna en Fjölnir í sætinu
fyrir ofan og sex stigum meira en
Breiðablik í sætinu fyrir neðan.
Næst mætir Skallagrímur Vals-
konum á Hlíðarenda í kvöld, mið-
vikudaginn 28. apríl, kl. 20:15.
arg
ÍA og kR áttust við í æfingaleik í
knattspyrnu á sumardaginn fyrsta
og lauk leiknum með sigri Vest-
urbæinga; 3-0. Mikill hiti var í
leiknum og leikmönnum ansi heitt
í hamsi og ákvað dómari leiksins,
Þórður Már Gylfason, að flauta
leikinn af á 75. mínútu. Samkvæmt
fótbolta.net vildu leikmenn halda
leik áfram en dómarinn var ekki
á sama máli. Ísak Snær Þorvalds-
son, leikmaður ÍA, var sakaður um
að hafa „misst hausinn“ í leiknum
og kýlt leikmann kR en vísaði því
á bug í viðtali eftir leik: „Ég kýli
aldrei leikmann kR, hann ætlaði
að keyra inn í mig vegna þess að
hann var eitthvað pirraður yfir ein-
hverju sem gerðist áður í leiknum.
Ég hoppa fyrir aftan hann og reyni
að ýta honum frá mér, ef ég fór í
andlitið á honum að þá var það ekki
ætlunin. Ég ætlaði bara að skokka í
stöðuna mína og halda áfram með
leikinn en þá koma tveir kR-ing-
ar hlaupandi að mér og byrja að ýta
í mig. Eina sem ég geri er að svara
fyrir mig, ég leyfi ekki neinum að
valta yfir mig. Einn af þeim sem
kom hlaupandi að mér baðst síð-
an afsökunar og við sættumst. Ég
ber virðingu fyrir því,“ sagði Ísak
að lokum.
Fyrsti leikur Skagamanna í pepsí
Max deildinni verður föstudaginn
30. apríl kl. 20 gegn Valsmönnum
á útivelli.
vaks
Snæfell spilaði tvo leiki í Dom-
ino‘s deild kvenna í körfuknatt-
leik í vikunni. Fyrst mættu stelp-
urnar Haukum í Stykkishólmi á
miðvikudaginn. Þar höfðu gestirn-
ir betur og sigruðu með 92 stigum
gegn 72 stigum Snæfells.
Þá máttu Hólmarar sætta sig við
tap gegn keflvíkingum þegar liðin
mættust í Domino‘s deild kvenna
í körfuknattleik á laugardaginn,
91-67. Leikið var í keflavík.
Snæfellskonur komu sterkar til
leiks og voru fljótlega komnar níu
stigum yfir heimakonur, 3-12. Þá
virtust keflvíkingar taka við sér og
minnkuðu muninn niður í eitt stig
rétt fyrir lok upphafsfjórðungsins,
18-19. Í öðrum leikhluta sigldu
keflvíkingar fram úr Snæfelli sem
náði ekki stigi síðustu fjórar mín-
útur fyrri hálfleiks. Staðan var því
45-28 þegar gengið var til klefa í
hálfleik.
Snæfellskonur voru lengi í gang
í upphafi síðari hálfleiks og tæpar
tvær mínútur voru liðnar þegar
þær náðu í fyrstu stigin. Lítið gekk
upp hjá Hólmurum í þriðja leik-
hluta og keflvíkingar héldu áfram
að auka forskotið jafnt og þétt og
staðan 66-43 fyrir lokafjórðung-
inn. Lítið markvert gerðist í loka-
leikhlutanum og keflvíkingar sigr-
uðu örugglega með 24 stigum,
91-67.
Í liði Snæfells var Haiden Den-
ise palmer atkvæðamest með 22
stig og tíu fráköst, Anna Soffía
Lárusdóttir skoraði 18 stig og tók
níu fráköst, Emesa Vida var með
14 stig og 13 fráköst, Tinna Guð-
rún Alexandersdóttir skoraði átta
stig og Rebekka Rán karlsdóttir
var með fimm stig. Í liði keflavík-
ur var Daniela Wallen Morillo at-
kvæðamest með 36 stig, 15 fráköst
og átta stoðsendingar.
Snæfell situr í sjöunda og næst
neðsta sæti deildarinnar með fjög-
ur stig, eins og kR í botnsætinu
og sex stigum minna en Breiða-
blik í sætinu fyrir ofan. Næsti leik-
ur Snæfells er við kR í kvöld, mið-
vikudaginn 28. apríl, kl. 19:15.
arg
Það voru ótrúlegar tölur sem litu
dagsins ljós í 1. Umferð Mjólkur-
bikars karla í knattspyrnu í Ólafsvík
á laugardaginn. Þá sigraði lið Vík-
ings Ó lið Gullfálkans frá Reykja-
vík með markatölunni 18:0, hvorki
meira né minna.
Það voru þeir kareem isiaka og
Harley Willard sem skoruðu sex
mörk hvor. Þorleifur Úlfarsson og
Bjartur Bjarmi Barkarson skoruðu
tvö hvor og Hlynur Sævar Jónsson
skoraði eitt mark og eitt mark var
sjálfsmark Gullfálkans. Víkingur Ó
mætir Þrótti Reykjavík á útivelli í
næstu umferð laugardaginn 1. Maí
kl.13.00.
se/ Ljósm. af. Kareem Isiaka við það að skora eitt af sínum sex mörkum.
Víkingur Ólafsvík skoraði 18 mörk í Mjólkurbikarleik
Þrumufleygur frá Harley Willard en boltinn hafnaði í netinu.
Frá leik Skallagríms og KR fyrr í vetur. Ljósm. Skallagrímur.
Skallgrímur
tók tvennuna
Frá leik Snæfells og Hauka í síðustu
viku. Ljósm. sá.
Snæfell tapaði báðum
leikjum sínum í vikunni
Leikur flautaður af þegar
fimmtán mínútur voru eftir