Skessuhorn - 16.06.2021, Blaðsíða 36
MiðVikudaGuR 16. júNÍ 202136
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Pennagrein Pennagrein
Á næstu dögum munu Sjálfstæðis-
menn í Norðvesturkjördæmi ganga
til prófkjörs. úrslit þessi munu
ráða uppstillingu í fyrstu fjögur
sæti lista flokksins í alþingiskosn-
ingunum í september. Níu fram-
bjóðendur bjóða fram krafta sína
til setu á listanum, sjö þeirra bú-
settir í kjördæminu en tveir fram-
bjóðendur búa utan þess, annar í
kópavogi og hinn í Reykjavík.
Eins og fylgir prófkjörum sækj-
ast frambjóðendur eftir ákveðnum
sætum á listanum eins og öllum er
frjálst að gera í samræmi við eig-
inn metnað og stöðumat. að von-
um getur verið erfitt að samræma
persónulegan metnað hvers og
eins frambjóðanda heildarhags-
munum framboðsins. Einnig er
engin trygging fyrir því að niður-
stöður prófkjörs hverju sinni end-
urspegli þá breidd er margir telja
að framboðslistar þurfi að hafa,
ekki síst í víðfeðmum og ólíkum
landsbyggðarkjördæmum.
Ég vona að ég sé ekki mjög
skrýtinn þegar ég segi að þeg-
ar forysta Sjálfstæðisflokksins fer
gegn sitjandi oddvita í kjördæmi
þurfa að vera til þess ríkar ástæð-
ur. Á svo við nú þegar gengið er til
prófkjörs í Norðvesturkjördæmi?
Núverandi oddviti flokksins nýt-
ur trausts langt út fyrir raðir eig-
in flokksmanna. Er ekki ástæða til
þess að halda í slíkt? Varaformað-
ur flokksins segist þurfa skýrara
umboð frá flokksmönnum. Hvaða
áhrif eru það sem sóst er eftir
og ekki fást úr öðru sæti listans?
Nefnt er að ekki sé rétt að forysta í
kjördæmum sé í höndum miðaldra
karla. Það eru kaldar kveðjur til
Bjarna Benediktssonar, Guðlaugs
Þórs Þórðarsonar og Njáls Trausta
Friðbertssonar og þeirra þúsunda
flokksmanna sem kosið hafa þá
til forystu í kjördæmum sínum.
Varaformaður flokksins segist
hafa metnað til þess að gegna for-
mennsku í Sjálfstæðisflokknum og
því sé nauðsynlegt að vera í for-
ystusæti í sínu kjördæmi. Þó það
embætti sé ekki laust og verður
tæplega á næstunni má benda á að
sá er nú gegnir því, Bjarni Bene-
diktsson, hlaut til þess kosningu
þegar hann var í öðru sæti á lista
flokksins í Suðvesturkjördæmi.
Sitjandi oddviti var einn einung-
is þriggja þingmanna sem töld-
ust geta skipað sérstaka siðanefnd
sem skipuð var í kjölfar klaustur-
smálsins svokallaða. Er það veik-
leikamerki? Núverandi oddviti gaf
kost á sér til áframhaldandi setu
eftir fjölda áskorana. Meðal þeirra
er vógu þyngst voru áskoranir frá
flestum bæjarfulltrúum og for-
ystu flokksins á akranesi, baklandi
þeirra beggja. Er það ekki styrk-
leikamerki?
Eftir breytingar á framboðslist-
um í landsbyggðarkjördæmunum í
kjölfar þess að þingmenn flokksins
hafa hætt þingmennsku er sitjandi
oddviti orðinn lang reynslumestur
þingmanna landsbyggðarinnar. Er
ekki rétt að nýta þá reynslu?
Endurnýjun þarf að eiga sér stað
er nefnt. Þó núverandi oddviti hafi
miklu áorkað hefur hann samt sem
áður einungis setið í átta ár á þingi.
Ekki heyrðust þær raddir frá for-
ystu flokksins þegar Bjarni Bene-
diktsson, Guðlaugur Þór Þórðar-
son og Birgir Ármannsson sótt-
ust eftir og fengu áframhaldandi
stuðning á dögunum. Hafa þeir
þó allir setið á þingi í 18 ár hver.
Skiptir máli hver á í hlut þegar
rætt er um þörf á endurnýjun?
Þegar oddvitasætið losnaði í
Suðurkjördæmi var kosinn nýr og
glæsilegur oddviti. Fyrir valinu
varð afar reynslumikil kona úr at-
vinnulífinu. Ekki setti fólk þar fyr-
ir sig að hún er miðaldra. Er fólk
ekki miðaldra um svipað leyti óháð
kynjum? Núverandi oddviti deilir
kjörum með íbúum kjördæmisins.
Er það ekki styrkleikamerki?
Þá er sú skýring fleyg að fái
varaformaður flokksins ekki góða
útkomu úr prófkjörinu veiki það
flokkinn á landsvísu. Það er í raun
viðurkenning á því að varaformað-
ur flokksins hafi ofmetið stöðu sína
þegar ákveðið var að fara gegn sitj-
andi oddvita. Það má orða þetta
öðruvísi. Nú gerir varaformaður
flokksins mistök og skal þá oddviti
flokksins í kjördæminu víkja sæti?
Er nú ekki heldur langt seilst með
svona eftiráskýringum?
Svo er það sýnileikinn. Sitjandi
oddviti er sagður lítt sýnilegur og
gumi ekki nægilega af verkum sín-
um. allt of fáir viti af verkum hans.
Þetta er að sumu leyti rétt. Sitj-
andi oddviti er með starfsömustu
þingmönnum og sinnir skyldum
sínum á vinnustað af mikilli sam-
viskusemi. Hefur frá upphafi þing-
mennsku setið í fjárlaganefnd sem
ein og sér krefst nánast allrar at-
hygli þeirra er í henni sitja hverju
sinni. Ekki síst á tímum eins og við
lifum nú. að auki hefur oddvitinn
setið í atvinnuveganefnd. Vissu-
lega er sitjandi oddviti lítt gefinn
fyrir skrautsýningar og endalaust
glamur um eigið ágæti. Á meðan
verkin tala er ég sem almennur
flokksmaður sáttur.
Þar komum við að kjarna máls-
ins. Þegar flokksmenn þurfa að
velja í oddvitasætið ber þeim
skylda til þess að líta yfir farinn
veg. Meta verk og reynslu fram-
bjóðenda. Áhrif þeirra og áhuga á
málefnum kjördæmisins alls. Geri
flokksmenn það kvíði ég ekki nið-
urstöðunni. Það er ekki á hvers
manns færi að standast atlögu for-
ystu flokks. Þar verða almennir
flokksmenn að koma til.
af því bara, eru ekki nægileg rök
til þess að kasta frá okkur reynslu,
áhrifum og vinnusemi Haraldar
Benediktssonar. Tryggjum honum
oddvitasætið áfram.
Sigþór Sigurðsson
Höfundur er viðskiptafræðingur
og meistaranemi við Háskóla Ís-
lands.
Ég var orðinn leiður á stjórnmál-
um. Fyrir u.þ.b fimm árum síðan
fór að heyrast rödd sem vakti at-
hygli mína. Þetta var rödd Þórdís-
ar kolbrúnar Reykfjörð Gylfadótt-
ur. Í kjölfar þessa fór ég aðeins að
fylgjast með hvað hún var að gera
og fyrir hvað hún stóð. Þegar hún
tók tímabundið við embætti dóms-
málaráðherra stuttu síðar þurfti ég
starfi mínu vegna að fylgjast mjög
vel með því sem hún var að gera.
Síðan þá hef ég verið aðdáandi.
En af hverju er ég aðdáandi? Þór-
dís er leiðtogi sem hrífur fólk með
sér. Hún hefur sterka sýn á það í
hvernig landi við viljum búa og hún
hefur lyft grettistaki í að færa íbú-
um þessa lands tækifæri til aukinna
lífsgæða óháð búsetu. Þetta eru stór
orð en ég ætla að reyna að útskýra
þau aðeins.
Málaflokkar þeir sem Þórdís
stendur fyrir eru einkum nýsköpun,
ferðaþjónusta og iðnaður.
Sem ráðherra nýsköpunarmála
hefur Þórdís kolbrún verið óhrædd
við að taka stórar ákvarðanir. Í fljótu
bragði man ég ekki eftir ráðherra á
Íslandi sem lagt hefur niður ríkis-
stofnun og sett peningana í vinnu
til fólksins í landinu óháð búsetu.
Með stofnun kríu, hvatasjóðs
til nýsköpunar er lagður grunn-
ur að öflugu nýsköpunarstarfi um
land allt. Það er undir okkur íbúum
þessa kjördæmis að nýta okkur þetta
og snúa byggðarþróun við. Á tím-
um þegar hefðbundinni þjónustu
er skipt út fyrir rafræn samskipti er
öflug tækniþróun lífsspursmál fyrir
blómlegar byggðir. ungt fólk þarf
í dag ekki að fara til Reykjavíkur
til að finna áhugaverð störf heldur
getur annað hvort skapað þau sjálft
eða sinnt þeim í heimabyggð. Þór-
dís hefur sýnt hugrekki og framsýni
með því að færa okkur tæki til að
efla okkar byggðir.
Staða ferðaþjónustunnar er vel
þekkt. Á erfiðum tíma þar sem lagst
hefur verið á árarnar til þess að
halda þessari mikilvægu atvinnu-
grein á floti, hefur ráðherra mála-
flokksins aldrei gleymt því að hugsa
til framtíðar. Á þeim tímum sem
nú eru að ganga í garð, með von
um betra líf fyrir þessa mikilvægu
atvinnugrein, hafa verið kynnt-
ar framtíðarhugmyndir um þró-
un greinarinnar. Það er ekki piss-
að í skóinn til að safna atkvæðum
heldur er hugað að framtíðinni og
hvernig við viljum að greinin þró-
ist til framtíðar óháð tímabundnum
erfiðleikum. Með þessu hefur ráð-
herra málaflokksins sýnt staðfestu í
ólgusjó.
Það er ekki beinlínis í tísku að
tala máli iðnaðarins í dag. Í verkum
sínum hefur ráðherra málaflokksins
þó sýnt fram á að umhverfismál og
iðnaður fara vel saman. Nú nýverið
var kynnt verkefni á Grundartanga,
sem ráðherra málaflokksins hefur
stutt um langt skeið, þar sem saman
fara verðmætasköpun, fjöldi starfa
og umbætur í umhverfismálum. Í
þessum málum eins og svo mörg-
um öðrum hefur ráðherra mála-
flokksins verið óhrædd að ganga
gegn straumnum og stutt öfluga at-
vinnuuppbyggingu í kjördæminu í
sátt við náttúruna. Án iðnaðar væri
kjördæmið okkar fátæklegt og ráð-
herrann okkar veit það. Hún er trú
sínum uppruna og er óhrædd við
að styðja við málefni sem falla ekki
endilega vel að rétttrúnaðinum í
101 Reykjavík.
Það er gríðarlega mikið af góðu
fólki sem er að bjóða sig fram fyr-
ir hönd Sjálfstæðisflokksins í kjör-
dæminu okkar. Fólki sem hefur
unnið gott starf. Það skal engin
efast um það. Það er hins vegar bara
einn leiðtogi. Þórdísi hefur verið
treyst til æðstu starfa á landsvísu
fyrir flokkinn þrátt fyrir skamman
tíma í sviðsljósinu, af hverju ætti
hún ekki að sækjast eftir því í okkar
kjördæmi?
Þórdís kolbrún er minn leiðtogi
og leiðtogar leiða lista. Setjum Þór-
dísi kolbrúnu í fyrsta sæti í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins í Norð-
vesturkjördæmi.
Örn Gunnarsson
Þegar kasta skal
áhrifum og reynslu
Minn
leiðtogi