Skessuhorn - 16.06.2021, Blaðsíða 22
MiðVikudaGuR 16. júNÍ 202122
Fyrir um þremur vikum birti Skessu-
horn frétt um illa merktar gang-
brautir á akranesi. Það hefur lítið
breyst á þessum tíma og enn þá er
það þannig að á ansi mörgum stöð-
um við helstu umferðargötur bæj-
arins eru gangbrautamerkingar lítt
sýnilegar. Þegar rætt var við jón
Brynjólf Ólafsson, verkefnastjóra
akraneskaupstaðar, um miðjan maí
sagði hann að yfirleitt væri það fyrsta
af vorverkum sumarsins að mála
gangbrautirnar og ætti þeirri vinnu
að ljúka á næstu vikum. Ekki náðist í
jón við vinnslu fréttarinnar. vaks
Sirkushópurinn Hringleikur legg-
ur nú land undir fót og sýnir allra
veðra von utandyra um allt land í
sumar. Sýningin var sýnd í Tjarn-
arbíói í vor og hlaut góðar viðtökur
áhorfenda á öllum aldri. allra veðra
von hlaut á dögunum Grímuverð-
launin fyrir dans- og sviðshreyf-
ingar ársins 2021. Sýningin hér á
Vesturlandi verður sýnd á akra-
nesi, á Varmalandi, Stykkishólmi
auk náttúrusýningar á Snæfells-
nesi og sirkus námskeiði fyrir börn
á aldrinum 8-16 ára í Frystiklefan-
um á Rifi.
allra veðra von er ný sirkussýn-
ing þar sem sirkuslistin er notuð til
að skoða tengsl mannsins við veðr-
ið. Tungumál sirkuslistarinnar er
myndrænt og hrífandi form sem
nær til áhorfanda á breiðum aldri,
gjarnan óháð tungumáli. akróba-
tík, áhætta, grín og glens, ljóðrænar
myndir og loftfimleikar flétta sam-
an sögur af mönnum og veðri.
Mikil gróska er í sirkusstarfi á Ís-
landi með vaxandi hópi atvinnusirk-
uslistafólks á landinu. „Okkur lang-
ar að kynna fjölbreytni sirkuslistar
fyrir fólki um allt land og sérstak-
lega sýna börnum og ungmennum
að það er hægt að vinna sem sirkus-
listafólk á Íslandi. Sirkuslistaform-
ið er fjölbreytt og reynir á samhæf-
ingu, samvinnu og sköpun,“ segir
Eyrún Ævarsdóttir, einn af höfund-
um og leikendum allra veðra von í
samtali við Skessuhorn.
Gera má ráð fyrir að hið íslenska
ófyrirsjáanlega veðurfar hafi tölu-
verð áhrif á sýninguna: „Við leggj-
um upp með að sýna í, svo gott
sem, hvaða veðri sem er. Til þess er
leikurinn gerður! Sýningin á akra-
nesi verður frumraun okkar að sýna
utandyra og það verður áhugavert
að vita hvernig veðrið ætlar að leika
við okkur þar,“ segir Eyrún að lok-
um.
Sýningin er unnin í samstarfi
við leikhópinn Miðnætti sem sér
um leikstjórn, tónlist, búninga og
leikmynd. Miðnætti hefur meðal
annars gefið okkur sögurnar um
tröllastrákinn Þorra og álfastelp-
una Þuru. Sýningarferðin um Vest-
urland er styrkt af Sóknaráætlun
Vesturlands og unnin í samstarfi
við Snæfellsbæ, Svæðisgarðinn
Snæfellsnes, Frystiklefann á Rifi,
akraneskaupstað, Borgarbyggð og
Tjaldsvæðið á Varmalandi.
Áhugasamir eru hvattir til að
fylgjast með Hringleik á Facebook
og instagram sem er helsta upplýs-
ingaveitan um sirkusferðalagið.
Sýningaráætlun &
Námskeið ALLRA
VEÐRA VON:
18. júní - akranes
19. júní - Varmaland
10. júlí - Stykkishólmur
11. júlí - Náttúrusýning á Snæ-
fellsnesi í boði Sóknaráætlunar
Vesturlands
Miðasala og nánari upplýsingar
á tix.is
Loks verður boðið upp á sirkus-
námskeið í Frystiklefanum á Rifi í
samstarfi við Snæfellsbæ 12.-13.
júlí (8-16 ára). Skráning og nánari
upplýsingar á tix.is mm
Á heimasíðu Lyfjastofnunar hefur
verið birt sundurliðun á tilkynn-
ingum vegna gruns um alvarleg-
ar aukaverkanir í kjölfar bólusetn-
ingar við Covid-19. Samkvæmt
þeim gögnum sem stofnunin birti
þriðjudaginn 8. júní höfðu þá 100
tilkynningar vegna gruns um al-
varlegar aukaverkanir borist Lyfja-
stofnun. alls hafa 23 tilkynningar
borist um dauðsföll í kjölfar bólu-
setningar en flestar þeirra bárust í
janúar, þegar elsti og hrumasti hóp-
urinn var bólusettur.
45 alvarlegar tilkynningar hafa
borist vegna bóluefnis Pfizer, 20
varðandi andlát, þar af 16 and-
lát einstaklinga 75 ára eða eldri
og voru 13 þeirra með undirliggj-
andi sjúkdóma. Þrjú andlát voru hjá
fólki á aldrinum 65-74 ára og voru
tveir þeirra með undirliggjandi
sjúkdóma. Þá barst ein tilkynning
um andlát einstaklings á aldrinum
60-64 ára sem var með undirliggj-
andi sjúkdóm. 17 tilkynningar bár-
ust um sjúkrahúsvist í kjölfar bólu-
setningar og þar af voru fimm til-
felli um lífshættulegt ástand. Átta
tilkynningar sem metnar voru sem
klínískt mikilvægar en ekki kom til
innlagnar á sjúkrahúsi.
Tólf tilkynningar hafa borist
vegna Moderna bóluefnisins en
engin vegna andláts. Tíu þeirra
voru vegna einstaklinga sem þurftu
að leggjast inn á sjúkrahús og þar af
var ein tilkynningin um lífshættu-
legt ástand. Ein tilkynning barst
varðandi lífshættulegt ástand og ein
sem flokkast sem klínískt mikilvægt
tilfelli sem þó kom ekki til innlagn-
ar á sjúkrahúsi.
Vegna astraZeneca bóluefnis-
ins hafa borist 42 alvarlegar til-
kynningar. Þrjár hafa tengst andláti
og þar af tvær hjá einstaklingum á
aldrinum 65-74 ára sem voru með
undirliggjandi sjúkdóma og ein til-
kynning um einstakling á aldrin-
um 60-64 ára. 32 tilkynningar hafa
borist um sjúkrahúsvist vegna bólu-
efnisins og þar af tíu tilfelli af lífs-
hættulegu ástandi. Sex tilkynning-
ar töldust klínískt mikilvægar en þó
kom ekki til innlagnar á sjúkrahúsi.
Ein tilkynning var vegna tímabund-
innar lömunar í útlim ásamt öðrum
tímabundnum einkennum.
aðeins ein alvarleg tilkynning
hefur borist vegna janssen bólu-
efnisins og það var vegna sjúkra-
húsvistar.
Lyfjastofnun bendir á að ekki sé
hægt að benda á orsakasamband
milli tilkynntra andláta og bólu-
setninga. Ólíkt samsettir hópar
hafa fengið mismunandi bóluefni
og því ekki hægt að gera beinan
samanburð. Fyrst voru bólusettir
hópar eins og t.d. heilbrigðisstarfs-
fólk sem ber skylda til þess að til-
kynna um aukaverkanir og gæti
það haft áhrif á fjölda tilkynninga á
þeim tíma. En auk þeirra voru aldr-
aðir í hópi þeirra sem fengu fyrst
bólusetningu og hafa margir þeirra
undirliggjandi sjúkdóma. Þar má
því búast við fleiri tilkynningum en
það þarf ekki að vera orsakasam-
band þar á milli.
arg
Við Kirkjubraut.
Hringleikur ferðast um Vesturland
Tilkynningar um
aukaverkanir
Ennþá illa merktar gangbrautir víða á Akranesi
Við Garðabraut. Þjóðbraut.
Hraðahindrun við Garðagrund.