Skessuhorn - 16.06.2021, Blaðsíða 24
MiðVikudaGuR 16. júNÍ 202124
alþingi samþykkti nýverið lög um
breytingu á lögum um grunn- og
framhaldsskóla sem miða að því að
styrkja lagastoð og heimildir fag-
ráðs eineltismála. Fagráð eineltis-
mála starfar nú bæði fyrir grunn-
og framhaldsskóla en vísa má ein-
eltismálum til ráðsins þegar ekki
finnst fullnægjandi lausn á þeim
innan skóla eða sveitarfélags. Ráðið
veitir álit sín á grundvelli gagna og
upplýsinga sem því berast. Slík álit
hafa meðal annars að geyma leið-
beiningar til aðila skólasamfélagins,
svo sem foreldra, um hvernig vinna
megi að úrlausn mála með hags-
muni barna að leiðarljósi.
Í lögunum er meðal annars kveð-
ið á um skýrari heimildir ráðsins
til þess að vinna með persónuupp-
lýsingar og heimild til að takmarka
aðgang aðila að gögnum ef talið
er að slíkt geti skaðað hagsmuni
barns, til samræmis við ákvæði
barnaverndarlaga. aukinheldur er
fjallað um skipan ráðsins og hæfnis-
kröfur sem gerðar eru til þeirra sem
þar eiga sæti.
Fagráð eineltismála er ekki
stjórnvald í skilningi stjórnsýslu-
laga þar sem álit þess eru ráðgef-
andi. Niðurstöður þess eru því
ekki skuldbindandi fyrir aðila máls
gagnvart öðrum úrræðum sem lög
og reglur kunna að bjóða upp á.
mm
uppbygging gönguleiða á vegum
hins nýstofnaða Ferðafélags Borg-
arfjarðarhéraðs hófst með látum
fyrir helgi þegar sjálfboðaliðar á
vegum félagsins tóku til hendinni
í hlíðum Hafnarfjalls. Níu manns,
nefndarfólk í Stikunefnd og fleiri
félagsmenn, mættu í fjallið með
naglbíta og sleggjur. Verkefni dags-
ins var að rífa niður girðingu sem
var búin að ganga frá starfsloka-
samningi fyrir nokkru. Einnig stóð
til að hefja stikun leiðarinnar upp
á topp.
Það er skemmst frá því að segja
að sjálfboðaliðarnir voru í þvílíku
stuði að þeir fóru langt með að klára
niðurrif girðingarinnar og búið er
að stika leiðina frá upphafspunkti,
um gilið, og langleiðina upp á topp.
Sömuleiðis var leiðin gegnum
skriðuna ofan við stífluna lagfærð
lítillega. Þetta var langt fram úr öll-
um væntingum og framkvæmda-
áætlunum, enda sagði Bjarki Þor-
steinsson, formaður Stikunefndar,
að leita hafi þurft lengi að lífsmörk-
um hjá einstaka miðaldra Stiku-
nefndarmönnum!
Þess ber að geta að áður en fram-
kvæmdir í Hafnarfjalli hófust voru
stikurnar sagaðar í réttar lengd-
ir og þær málaðar rauðar á vinnu-
stofu Brákarhlíðar í Borgarnesi.
Það sem eftir er að gera er að fjar-
lægja restina af girðingarstaurun-
um og að setja síðustu stikurnar á
toppinn. Einnig er ætlunin að stika
„brattari leiðina“ upp að Steini. Þá
er eftir að setja upp skilti sem sýnir
hvar gönguleiðin beygir út af gamla
þjóðveginum. Það skilti er til hjá
uMSB.
Þessu verður lokið einhvern
tímann á næstu vikum. Þá er það
draumur FFB að setja upp upp-
lýsingaskilti um Hafnarfjall og
nágrenni á bílastæði við upphaf
gönguleiðarinnar, ef fjármagn fæst
til þess. Þetta verkefni var styrkt
af Hvalfjarðarsveit og kaupfélagi
Borgfirðinga og þakkar FFB kær-
lega fyrir stuðninginn. Þeir sem
ekki komust í fjallið í síðustu viku
þurfa ekki að örvænta því á næstu
dögum verður farið í að ljúka verk-
inu auk þess sem fleiri spennandi
verkefni eru framundan. frg
Skýrari umgjörð
um eineltismál
Vegabætur í Hafnarfjalli
Glöggir vegfarendur við Brákar-
sund í Borgarnesi hafa eflaust rek-
ið augun í nýtt hús sem verið er að
reisa á undirstöðum sem voru þegar
til staðar á lóðinni. um er að ræða
fjölbýlishús á tveimur hæðum við
Brákarsund 5. Í húsinu verða fjór-
ar íbúðir, hver um sig 90 fermetr-
ar að stærð. Borgarskjól ehf. sér um
framkvæmdir en húsið er byggt úr
timbureiningum frá Noregi. Stefnt
er á að ljúka framkvæmdum síðar á
þessu ári en allar íbúðirnar verða
leiguíbúðir.
glh
Fjölbýlishús úr norskum timbureiningum.
Framkvæmdir við
Brákarsund í Borgarnesi