Skessuhorn - 16.06.2021, Blaðsíða 6
MiðVikudaGuR 16. júNÍ 20216
Mesta lækkun
atvinnuleysis
LANDIÐ: atvinnulausum
fækkaði um tæplega 2.400
milli mánaða á landsvísu og
hefur ekki fækkað meira frá
aldamótum, en fjöldatölur
Vinnumálastofnunar ná ekki
lengra. atvinnuleysi mæld-
ist 9,1% í maí og lækkaði úr
10,4% í apríl. Nemur lækk-
unin milli mánaða 1,3% og
hefur atvinnuleysi ekki lækk-
að um jafn mörg prósentu-
stig milli mánaða síðan X
6í janúar og febrúar 1994.
Þetta kemur fram í skýrslu
Vinnumálastofnunar um
stöðu og horfur á íslenskum
vinnumarkaði. -mm
Óbreytt á
landamærunum
LANDIÐ: Svandís Svav-
arsdóttir heilbrigðisráð-
herra hefur ákveðið að halda
óbreyttu fyrirkomulagi sótt-
varnaraðgerða á landamær-
um til 1. júlí. Slakað verður
á aðgerðum eftir þann tíma
og hætt að skima þá sem geta
framvísað vottorði um bólu-
setningu eða fyrri sýkingu
á Covid auk þess sem hætt
verður að skima börn við
komuna til landsins. -arg
Ók út af við
Akranes
AKRANES: Ökumaður
missti vald á bíl sínum við
vegamót akrafjallsvegar og
akranesvegar á miðvikudag
í síðustu viku. Ökumaður
sem var einn í bílnum slapp
ómeiddur en bíllinn er mikið
skemmdur. -frg
Átta ára á vespu
HELLISSANDUR: Lög-
reglu bárust í vikunni kvart-
anir vegna aksturs ungra
barna á vespum á Hellissandi.
Lögregla hafði í framhaldinu
afskipti af 8 ára dreng sem
var stöðvaður á vespu. Lög-
regla segir alltof algengt að
börn, sem ekki hafa aldur til,
þeysist um bæði á vespum og
hlaupahjólum og oft án þess
að vera með hjálm eða ann-
an öryggisbúnað. Börn þurfa
að vera að lágmarki 13 ára
fyrir slík farartæki og yngri
ökumönnum en 20 ára er
óheimilt að reiða farþega.
-frg
Ölvaður
ökumaður
STYKKISH: Lögreglu-
menn á eftirlitsferð í Stykk-
ishólmi á miðvikudag í síð-
ustu viku veittu bifreið at-
hygli og stöðvuðu för öku-
mannsins í kjölfarið. Öku-
maður blés yfir mörkum.
Hann var handtekinn og mál
hans fór í hefðbundið ferli.
-frg
Tveir
frisbígolfvellir
SNÆFELLSBÆR: Starfs-
menn áhaldahúss Snæfellsbæjar
vinna nú að því að setja upp tvo
varanlega frisbígolfvelli í sveit-
arfélaginu þar sem hægt verður
að stunda þessa íþrótt allt árið
um kring. Vellirnir verða við
tjaldsvæðið í Ólafsvík og í Tröð-
inni á Hellissandi. -vaks
Skemmdarverk í
skógrækt
AKRANES: Enn einu sinni
hafa verið unnin skemmdarverk
á salernum við skógræktina á
akranesi. Á þriðjudag í síðustu
viku voru salerni og vaskur brot-
in og er marka má ummerkin
voru þau skemmd með flugeld-
um. Þrír piltar á leiguhlaupa-
hjólum sáust yfirgefa vettvang.
Verið er að kanna hvort hægt sé
að finna sökudólgana með því
að skoða hverjir voru á ferðinni
á leiguhjólum á þessum stað og
tíma. -frg
Slaka á
samkomutak-
mörkunum
LANDIÐ: Slakað var á sam-
komutakmörkunum vegna Co-
vid-19 í gær, þriðjudag. al-
mennar fjöldatakmarkanir
fóru þá úr 150 manns í 300 og
nándarreglan úr tveimur metr-
um í einn. Á sitjandi viðburð-
um er engin krafa um nándar-
mörk en áfram er grímuskylda í
gildi og að hámarki 300 manns
í hverju sóttvarnahólfi. Sitjandi
viðburðir eru leikhús, íþrótta-
viðburðir, athafnir hjá trúar- og
lífsskoðunarfélögum, ráðstefn-
ur og slíkt. Veitingastaðir mega
vera opnir klukkutíma lengur en
áður, eða til miðnættis, og þurfa
gestir að hafa yfirgefið staðinn
fyrir klukkan 01:00. -arg
Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir
hönd heilbrigðisráðuneytisins og
Stykkishólmsbæjar, auglýsti á dög-
unum opið útboð á innréttingum
og breytingu á nýju hjúkrunarheim-
ili á 2. og 3. hæð St. Fransiskusspít-
alans við austurgötu 7 í Stykkis-
hólmi. um er að ræða 18 ný ein-
staklingshjúkrunarrými, samkvæmt
viðmiðum HRN, með sameigin-
legum matsal og setustofu ásamt
starfsmannaaðstöðu og tilheyrandi
stoðrýmum. Tilboð í verkið voru
opnuð síðastliðinn þriðjudag og
barst eitt tilboð. Það var frá Skipa-
vík í Stykkishólmi og hljóðaði upp
á 543,6 milljónir. kostnaðaráætl-
un var 466 milljónir. Tilboðið er til
skoðunar hjá verkefnastjóra FSR.
Verkið felur m.a. í sér að fjarlægja
-núverandi innréttingar, rífa niður
milliveggi, fjarlægja núverandi lyftu
og koma fyrir nýrri og stærri lyftu í
nýjum lyftustokk ásamt því að inn-
rétta ný hjúkrunarrými. Einnig skal
gera nýjan inngang á 1. hæð húss-
ins sem mun þjónusta nýtt hjúkr-
unarheimili. Endurbætur sjúkra-
hússins ná yfir um 1.280 fermetra
ásamt lóðarfrágangi við bílastæði
og aðkomu fyrir hið nýja hjúkrun-
arheimili.
Leysir af hólmi núver-
andi hjúkrunarrými
Á vef Framkvæmdasýslu ríkisins
segir um verkefnið: „Í desember
2017 var farið í vettvangsskoðun
vegna fyrirhugaðra framkvæmda
við að koma fyrir 18 hjúkrunarrým-
um í núverandi húsnæði Heilbrigð-
isstofnunar Vesturlands í Stykk-
ishólmi. Hjúkrunarrýmin eiga að
leysa af hólmi núverandi hjúkrun-
arheimili. um er að ræða alls 1.170
fm gólfflöt miðað við 18 rými og 65
fm fyrir hvert rými. Hluti af þess-
um gólffleti tilheyrir núverandi
rýmum, eins og matreiðslueld-
húsi, sjúkraþjálfunarrými, þvotta-
rými, starfsmannarými og gestasal-
ernum.
Endurskipuleggja þarf bygg-
inguna fyrst til þess að hægt sé
að koma hjúkrunarrýmum fyr-
ir í byggingunni. Fyrsta skrefið í
endurskipulagningunni er að færa
þvottahúsið frá jarðhæð í kjallara
þar sem gera þarf þó nokkrar breyt-
ingar. annað skrefið er að færa
sjúkraþjálfunina, sem nú er í gömlu
prentsmiðjunni á 1. hæð, í rýmið
þar sem þvottahúsið var. Einnig er
gert ráð fyrir þó nokkrum breyting-
um á jarðhæðinni. Þriðja skrefið er
að taka ákvörðun um endurbætur á
gömlu prentsmiðjunni. Gert er ráð
fyrir því að nota alla aðra hæðina
fyrir 12 rými og eldri hluta þriðju
hæðar fyrir sex rými.“
frg
Heilbrigðisstofnun Vesturlands í Stykkishólmi, séð frá höfninni. Ljósm. sá.
Átján ný hjúkrunarrúmi á
St. Fransiskuspítala
Skipavík var með eina tilboðið í verkið