Skessuhorn - 16.06.2021, Blaðsíða 23
MiðVikudaGuR 16. júNÍ 2021 23
Á forsendum
byggðanna
Akranes, Sunnubraut 13
Miðvikudaginn 16. júní kl. 16—19
Laugardaginn 19. júní kl. 12—19
Borgarfjörður, Skemman
Hvanneyri
Miðvikudaginn 16. júní kl. 16—19
Laugardaginn 19. júní kl. 16—19
Borgarnes, Borgarbraut 54
Miðvikudaginn 16. júní kl. 17—20
Laugardaginn 19. júní kl. 12—17
Búðardalur, Vesturbraut 12
Miðvikudaginn 16. júní kl. 15—17
Laugardaginn 19. júní kl. 12—17
Stykkishólmur, Freyjulundur 24
Miðvikudaginn 16. júní kl. 17-21
Laugardaginn 19. júní kl. 14-19
Grundarfjörður, Borgarbraut 2
(Vinahúsið)
Miðvikudaginn 16. júní kl. 17-20
Laugardaginn 19. júní kl. 11-16
Ólafsvík, Mettubúð 2
Miðvikudaginn 16. júní kl. 17-19
Laugardaginn 19. júní kl. 11-16
Ég óska eftir stuðningi ykkar í 2. sætið.
Nánari upplýsingar á www.teiturbjorn.is.
16.
19. júní.
Útför fer fram frá Grundarfjarðarkirkju
laugardaginn 26. júní kl. 15:00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Pieta samtökin
eða önnur mannúðarsamtök.
Kristín Soffaníasdóttir, Rúnar Sigtryggur Magnússon
Rut Rúnarsdóttir, Hafsteinn Mar Sigurbjörnsson
Leon Logi Hafsteinsson
Hulda Vilmundardóttir
Aimée Zeinab Diallo
Okkar elsku besti Soffi
Kristinn Soffanías Rúnarsson
Lést á heimili sínu þann 6. júníSigurður Már Harðarson og krist-
in kötterheinrich búa á Garða-
brautinni á akranesi. undanfarna
mánuði hefur svartþrastarpar glatt
fjölskylduna með nærveru sinni á
veröndinni og í garðinum þeirra.
Sigurður Már sagði frá því á fés-
bókarsíðu sinni um miðjan maí að
svo mjög virtist þeim líka vistin að
kvenfuglinn hefði ákveðið að ráð-
ast í hreiðurgerð í blómapotti við
stofugluggann. Fyrirhugaður varp-
staður þeirra var í alfaraleið heim-
ilisfólksins um veröndina út í garð
og að grillinu sem er í eins metra
fjarlægð.
Viku síðar var kvenfuglinn búinn
að verpa fimm eggjum og sat síð-
an sem fastast á hreiðrinu á meðan
stórviðri geisaði úti og uppskar tvo
unga af fimm mögulegum tveimur
vikum síðar. Sigurður Már sagði
fyrir nokkrum dögum að þau ætli
ekki að láta þessa blómapotta liggja
þarna í hirðuleysi næsta vor heldur
reyni frekar að lokka þá á aðra fýsi-
legri varpstæði fyrir bæði mannfólk
og fugla. Fjölskyldan er kannski
ekki alveg sloppin þetta sumarið
því svartþrestir verpa jafnvel nokk-
ur skipti yfir sumarið og þá helst ef
varpið misferst. Því er ljóst að fjöl-
skyldan á Garðabrautinni gæti átt
von á fallegum fuglasöng á verönd-
inni í allt sumar.
vaks
Kerla skýlir nú tveimur stálpuðum ungum og dúar undan ákafa ungviðisins til
lífsins.
Svartþrastarpar á verönd
Hreiðurgerð í blómapottinum.
Fimm egg komu í fyrsta varpi sumarsins.
Karlinn leggur sitt af mörkum í uppeldinu.