Mosfellingur - 14.01.2021, Blaðsíða 4
www.lagafellskirkja.is
kirkjustarfið HelgiHald næstu vikna
- Bæjarblaið í Mosfellsbæ4
Helgihald Lágafellssóknar verður áfram
rafrænt næstu vikur en birtist á heima-
síðu og Facebook-síðu Lágafellskirkju.
Endilega fylgist með á heimasíðunni
okkar vegna breytinga á safnaðarstarf-
inu vegna COVID-19 faraldursins.
guðsþjónustur/helgihald
Vegna faraldursins verða ekki sunnu-
dagsguðsþjónustur kl. 11 í kirkjunum
okkar en prestar kirkjunnar munu
skiptast á að flytja kveðjur
á netinu í ýmsu formi.
sunnudagaskóli
Rafrænn alla sunnudaga kl. 13.
æskulýðsfélagið ósoM
fyrir 8.–10. bekk
Hefst þriðjudaginn 19. janúar kl. 20
– nánara fyrirkomulag og dagskrá er í
vinnslu, sjá heimasíðu.
Fermingarfræðslan
Fermingarbörn í Lágafellssókn mættu
aftur á nýju ári til fermingarfræðslu
í safnaðarheimilið. Hópunum var
skipt upp í 10 hópa og allar þekktar
sóttvarnareglur virtar og gekk vel.
Fermingarfræðslan hefur farið fram fyrir
áramót í gegnum netið.
www.lagafellskirkja.is
Nafnið tilkynnt í Mosfellingi í dag • Aron Þór fæddist laugardaginn 2. janúar kl. 00.55
fyrsti Mosfellingur ársins 2021
– fær nöfn landsliðsfyrirliðanna
Fyrsti Mosfellingur ársins fæddist
kl. 00.55 þann 2. janúar. Það er
hraustur og flottur drengur sem
mældist 50 cm og 3.300 gr.
Foreldrar hans eru handbolta-
maðurinn Gunnar Malmquist Þór-
isson og Elín Huld Sigurðardóttir,
drengurinn er þeirra fyrsta barn.
„Við ákváðum að nota tækifærið og
tilkynna nafnið hans í Mosfellingi
þar sem þetta er fyrsti en örugglega
ekki síðasti titillinn sem hann fær.
Hann heitir Aron Þór Malmquist
Gunnarsson, það er í höfðuðið á
frændum mínum, landsliðsfyrir-
liðunum Aroni Einari knattspyrnu-
manni og Arnóri Þór handknatt-
leiksmanni. Þórsnafnið er líka í
höfuðið á pabba mínum og svo er
Þór Akureyri uppeldisfélagið mitt.
Fyrsti titillinn kominn í hús
Hann átti ekki að fæðast fyrr en
7. janúar en hefur viljað ná þessum
titli, ætli hann eigi svo ekki eftir að
verða fyrirliði í framtíðinni,“ segir
Gunnar stoltur.
Fjölskyldan flutti nýverið í Mos-
fellsbæ en Gunnar hefur spilað
handbolta með Aftureldingu sl. 6
ár. „Það er algjör draumur að búa
hérna, ég sá það strax þegar ég
byrjaði að spila hér að þetta væri
fullkomið samfélag til að ala upp
barn, íþróttalífið er frábært, allir
vilja gera allt fyrir alla.
Aron Þór dafnar vel, hann er
ákveðinn og lætur í sér heyra þegar
hann er svangur en annars er hann
vær og góður,“ segir Gunnar.
gunnar malmquist,
aron þór og elín huld
Mynd/RaggiÓla
Í vor verður verður lýðræðisverkefninu
Okkar Mosó 2021 hleypt af stokkunum í
þriðja sinn frá árinu 2017.
Verkefnið tókst mjög vel síðast og þátt-
taka íbúa sló Íslandsmet þegar 19,1% íbúa
tók þátt í kosningu milli þeirra verkefna
sem lögð voru fram til umræðu og út-
færslu.
upplýst sleðabrekka við varmárskóla
Um þessar mundir eru síðustu verkefnin
sem íbúar vildu koma í framkvæmd í Okk-
ar Mosó 2019 að komast til framkvæmda.
Þannig er nú búið að opna sleðabrekku í
Ævintýragarði Mosfellsbæjar rétt norðan
við Varmárskóla fyrir neðan tjaldsvæðið.
Sleðabrekkan er um 100 metra löng og
hentar bæði til sleðaferða og skíðaiðkunar
um leið og snjórinn lætur sjá sig.
Brekkan er upplýst með ljósköstur-
um þegar þurfa þykir yfir vetrartímann.
Aðkoma að svæðinu er frá bílastæði við
Varmárskóla.
Einnig hafa nú verið sett upp leiktæki
við Miðbæjartorg Mosfellsbæjar. Um er að
ræða hengirúm og klifurdýr sem falla vel
að umhverfinu og eru til þess fallin að auka
aðdráttarafl miðbæjarsvæðisins, sérstak-
lega fyrir yngri kynslóðina.
Sleðabrekka og leiktæki tilbúin • Síðustu verkefni Okkar Mosó 2019 í framkvæmd
Okkar Mosó í þriðja sinn í vor
beðið er eftir snjó
í nýja sleðabrekku
Lionsklúbbar hjálpa
Seyðfirðingum
Lionsklúbbur Mosfellsbæjar og
Lionsklúbburinn Úa Mosfellsbæ
ákváðu að rétta Seyðfirðingum
hjálparhönd með 300.000 kr. fram-
lagi, 150.000 frá hvorum klúbbi.
Framlagið var sent til
Lkl. Seyðisfjarðar
með ósk um að
þeir meti hvernig
framlaginu
er best varið.
Lionsfélagar í
Mosfellsbæ senda
Seyðfirðingum góðar
kveðjur með von um að
framlagið komi að góðum notum.
Einnig er gaman að geta þess að
starfsmaður Alþjóðahjálparsjóðs
Lions (Lions Clubs International
Foundation) hafði samband við
umdæmisstjóra Lions fyrir Suður-
og Austurland og bauð fram aðstoð
sjóðsins. Nú er unnið að umsókn
um svokallaðan uppbyggingarstyrk
frá sjóðnum og von er á þeim styrk
fljótlega.
Nýjar takmarkanir
hafa tekið gildi
Í gær, þann 13. janúar, voru
samkomutakmarkanir vegna
COVID-19 rýmkaðar. Fjöldatak-
markanir verða 20 manns, heilsu-
og líkamsræktarstöðvum verður
gert kleift að hefja starfsemi á ný en
með ströngum skilyrðum og skíða-
svæðunum sömuleiðis. Íþróttastarf
barna og fullorðinna verður
heimilað að uppfylltum skilyrðum
og sömuleiðis íþróttakeppnir án
áhorfenda. Fjöldamörk í sviðslistum
verða aukin og sama gildir um aðra
menningarviðburði. Þetta er megin-
efni breyttra reglna sem gilda til 17.
febrúar. Sóttvarnalæknir leggur til
þessar tilslakanir þar sem vel hafi
gengið að sporna gegn útbreiðslu
COVID-19 hér á landi. Hann bendir
á að víða erlendis sé faraldurinn í
mikilli uppsveiflu, meðal annars
vegna nýs afbrigðis veirunnar sem
til þessa hafi ekki náð að breiðast út
hérlendis.
MOSFELLINGUR
keMur næst
út 11. febrúar
mosfellingur@mosfellingur.is