Mosfellingur - 14.01.2021, Side 6
Vinstri græn halda
forval í Kraganum
Kjördæmisþing Vinstri hreyfingar-
innar græns framboðs í Suðvest-
urkjördæmi (Kraganum) hefur
ákveðið að hafa forval í efstu sæti
á framboðslista hreyfingarinnar
fyrir Alþingis-
kosningarnar 25.
september. VG í
Suðvesturkjördæmi
kaus sér stjórn
um síðustu helgi.
Björg Sveinsdóttir,
Hafnarfirði, er nýr formaður kjör-
dæmisráðsins, en aðrir í stjórn eru
Ásbjörn Þ. Björgvinsson, Kópavogi,
Ástvaldur Lárusson, Hafnarfirði,
Egill Arnarsson, Seltjarnarnesi,
Gunnsteinn Ólafsson, Garðabæ
og Kolbrún Ýr Oddgeirsdóttir,
Mosfellsbæ. Stjórninni var falið að
ákveða hvenær og hvernig forvalið
verður útfært.
- Bæjarblað allra Mosfellinga6
Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Umsóknarfrestur er til og með 24. janúar 2021.
Sækja skal um starfið á ráðningarvef Mosfellsbæjar, www.mos.is/storf. Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá og
kynningarbréf sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Nánari upplýsingar
um starfið veitir Pétur J. Lockton fjármálastjóri í síma 525 6700. Um framtíðarstöðu er að ræða. Öllum umsóknum verður
svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í öll störf óháð
kyni.
Aðalbókari óskast í fjármáladeild Mosfellsbæjar
VIÐ LEITUM AÐ DRÍFANDI OG METNAÐARFULLUM EINSTAKLINGI Í STARF AÐALBÓKARA
Fjármáladeild Mosfellsbæjar er stoðdeild sem sér um umsýslu fjármála bæjarins. Deildin sinnir bókhaldi, greiðslu
reikninga, innheimtu og álagningu gjalda. Fjármáladeild hefur með höndum verkstjórn við fjárhagsáætlanagerð,
árshlutauppgjör og gerð ársreiknings. Í deildinni starfa fjármálastjóri, verkefnastjóri, innheimtufulltrúi,
aðalbókari og bókari. Aðalbókari ber ábyrgð á bókhaldi Mosfellsbæjar, stýrir bókhaldsvinnu sveitarfélagsins og
gerð uppgjörs. Fjárhagskerfi fjármáladeildar er Microsoft Dynamics 365 Business Central (NAV).
Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru
leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Viðskiptafræðimenntun af fjármála- eða
endurskoðunarsviði og/eða meistarapróf í
reikningsskilum er skilyrði
• Þekking á lögum og reglum um bókhald og
reikningsskil sveitarfélaga ásamt lögum um
virðisaukaskatt og reglum um undanþágur
fyrir sveitarfélög
• Þekking og reynsla á færslu, skipulagningu og
uppgjöri bókhalds er skilyrði
• Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
• Gerð verkferla og samþætting Dynamics BC
(NAV) við önnur kerfi
• Samskiptahæfni, jákvætt viðhorf og
lausnamiðuð hugsun
• Nákvæmni í vinnubrögðum og talnagleggni
• Frumkvæði sjálfstæði og skipulagshæfni
• Mjög góð tölvukunnátta og færni í Excel
• Mjög góð þekking og reynsla af Dynamics BC
(NAV) er kostur
• Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg
Framkvæmdum við tvöföldun Vesturlands-
vegar á kaflanum milli Skarhólabrautar og
Langatanga lauk nú fyrir jól.
Um er að mikilvæga framkvæmd fyrir
Mosfellinga og landsmenn alla þar sem
oft hafa myndast raðir í og úr bænum á
annatímum. Hluti framkvæmdarinnar er
jafnframt auknar hljóðvarnir í formi nýrra
hljóðveggja, stærri hljóðmana og biðstöð
strætisvagna norðan vegarins.
Öflugri lýsing og betri hljóðvist
Vegfarendur hafa væntanlega tekið eftir
því að lýsingin á veginum er öflugri en áður
en um LED-lýsingu er að ræða sem gefur
betri birtu fyrir vegfarendur og jafnframt
ættu íbúar í aðliggjandi hverfum að hafa
tekið eftir betri hljóðvist en áður. Í vor lýk-
ur svo endanlegum frágangi á gróðri auk
timburklæðningar á hluta hljóðveggja sem
mýkir ásýnd þeirra.
Tvöföldun Vesturlandsvegar á kaflanum milli Skarhólabrautar og Langatanga er lokið
Tvöföldunin Tilbúin
mikilvæg framkvæmd
fyrir mosfellinga
Fljótum og njótum
í Varmárlaug
Undanfarin tvö ár hefur Ágústa
Hjaltadóttir boðið upp á notalega
flotviðburði í Varmárlaug, sem hún
kallar Fljótum og njótum. Eins og
allir vita þá hefur ekki verið hægt að
bjóða upp á þessa viðburði undan-
farna mánuði en nú ætlar hún að
byrja aftur og verður fyrsti við-
burðurinn á dagskrá sunnudaginn
17. janúar kl. 16.30. Tímarnir hafa
verið í boði á sunnudögum eftir
lokun og er þá laugin hituð upp í ca.
35-37° svo laugin er virkilega heit
og notaleg til að fljóta í. Flotslökun
dregur úr streitu, bætir svefn, gefur
innri ró og frið og styrkir ónæm-
iskerfið. Gæðastund í Varmárlaug
og boðið upp á létt nudd, ilmsánu
andlitsmaska, heilsute og notalega
samveru. Skráning fer fram í gegn-
um netfangið agusta@heilogsael.
is og verður næsta flot 17. janúar
en það er fyrsta og þriðja hvern
sunnudag í mánuði.
Skora á Gleðisprengjur
að ganga 1.000 km
Þær Berta Þórhalladóttir og Halla
Karen Kristjánsdóttir halda utan um
Gleðisprengjurnar sem er hópur 67
ára og eldri. Nú skora þær á hópinn
sinn að ganga samanlagt 1.000 km
næsta mánuðinn. Áskorunin hófst
7. janúar og stendur til 7. febrúar.
„Okkur langaði að senda þeim hrós
fyrir góðar undirtektir,“ segir Berta
en þegar þetta er skrifað er hópur-
inn kominn upp í 413 kíkómetra.
„Okkur langaði líka að vekja athygli
allra Mosfellinga á áskoruninni og
hvetja okkur hin til að vera duglegri
að hreyfa okkur. Við hlökkum til
að sjá hversu langt við komumst
saman.“