Mosfellingur - 14.01.2021, Qupperneq 10
Mosfellingur ársins 2020 er veitinga- og
athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson.
Simmi, eins og hann er alltaf kallaður, er
fæddur og uppalinn á Egilsstöðum en hefur
búið í Mosfellsbæ frá árinu 2007. „Ég var
að leita eftir þessum bæjarbrag og langaði
að synir mínir myndu alast upp í svona
samfélagi. Ég kann vel við það að þekkja
nágranna mína og það fólk sem ég rekst
á í búðinni. Það er hluti af því að tilheyra
samfélagi að gefa af sér. Ég hef reynt að
vera virkur í kringum íþróttastarf strákanna
minna og er alltaf opinn fyrir góðum hug-
myndum og skemmtilegu samstarfi,“ segir
Simmi sem segist alls ekki getað flutt úr
bænum núna eftir þessa nafnbót.
Út fjölmiðlum í veitingarekstur
Simmi hefur verið einn af okkar þekkt-
ustu fjölmiðlamönnum til margra ára en
að undanförnu hefur hann átt mikilli vel-
gengni að fagna í veitingarekstri.
„Ég hef brallað ýmislegt í gegnum tíðina
en minn fyrsti sjálfstæði rekstur var þegar
ég stofnaði Hamborgarafabrikkuna. Ég hef
víðtæka reynslu og þegar ég stóð frammi
fyrir því ásamt viðskiptafélaga mínum hon-
um Óla Val að skipuleggja hvað skyldi gera
við gamla Arion banka húsið þá kviknaði sú
hugmynd að opna hverfisstað í Mosfellsbæ.
Úr varð að við opnuðum Barion í lok árs
2019 ásamt því að reka Hlöllabáta í sama
húsnæði.
Barion - hverfisstaður Mosfellinga
„Úr varð að við ákváðum að fara alla leið
með hugmyndina, ég segi alltaf að þú færð
ekki annað tækifæri á fyrstu hughrif. Það er
skemmst frá því að segja að viðbrögðin við
Barion hafa verið fram út björtustu vonum,
þrátt fyrir að standa frammi fyrir stórum
rekstraráskorunum vegna COVID-19.
En í svona aðstæðum er einmitt spurning
um að fara í var og bíða af sér storminn eða
læra að dansa í rigningunni. Við fórum t.d. í
gott samstarf við Aftureldingu. Það var fjár-
öflun fyrir félagið, bæjarbúar fengu aukna
þjónustu og við náðum að halda dampi.“ Þá
hafa Mömmumatur og Þristamús einnig átt
vinsældum að fagna auk þess sem afurðir
Barion og Hlöllabáta fást nú í verslunum.
Líf skapar líf
„Við lögðum upp með að skapa stað fyrir
alla Mosfellinga, bjóðum upp á fjölbreyttan
matseðil á góðu verði, góða þjónustu ásamt
því að standa fyrir alls konar viðburðum.
Okkur hefur verið tekið rosalega vel og
fyrir það erum við þakklátir. Á árinu opn-
uðum við einnig Barion Bryggjuna og Mini-
garðinn, en þess má geta að höfuðstöðvar
fyrirtækisins eru og verða í Mosó.
Simmi hefur að undanförnu vakið mikla
athygli á Instagram þar sem hann er dug-
legur að deila frá sínu daglega lífi.
„Þetta gerðist nú eiginlega óvart og er bara
skemmtileg viðbót við lífið. Ég kalla þetta
mínar daglegu stuttmyndir,“ segir Simmi og
er þakklátur fyrir viðurkenninguna.
- Mosfellingur ársins 10
Sigmar Vilhjálmsson er Mosfellingur ársins • Hefur skapað hverfisstað á skrýtnum tímum
Það er hluti af því að tilheyra
samfélagi að gefa af sér
2019 Hilmar Elísson
Bjargaði sundlaugargesti frá drukkn-
un í Lágafellslaug sem var við köfun.
2010 Steinþór Hróar Steinþórsson
Steindi Jr. slær í gegn með Steindanum
okkar og á vinsælasta lag landsins.
2011 Hanna Símonardóttir
Sjálboðaliði hjá Aftureldingu í 14 ár
og aðal driffjöðurin í starfi félagsins.
2012 Greta Salóme Stefánsdóttir
Ævintýralegt ár hjá söngkonunni sem
m.a. keppti fyrir Ísland í Eurovision.
2013 Hljómsveitin Kaleo
Skaust upp á stjörnuhimininn eftir
sína fyrstu plötu og Vor í Vaglaskógi.
2014 Jóhanna Elísa Engelhartsd.
Snéri við blaðinu og varð fyrsti
sigurvegari Biggest Loser á Íslandi.
2005 Sigsteinn Pálsson
Stórbóndi á Blikastöðum sem
fagnaði 100 ára afmæli sínu á árinu.
2006 Hjalti Úrsus Árnason
Kraftakarl sem frumsýndi heimildar-
myndina um Jón Pál Sigmarsson.
2007 Jóhann Ingi Guðbergsson
Sundlaugarvörður í Lágafellslaug
sem bjargar lífi tveggja ára stúlku.
2008 Albert Rútsson
Athafnamaður sem opnaði glæsilegt
hótel í Mosfellsbæ, Hótel Laxnes.
2009 Embla Ágústsdóttir
Lætur fötlun ekki stöðva sig í að lifa
lífinu. Miðlar af reynslu sinni og lífssýn.
2015 Sigrún Þ. Geirsdóttir
Vann þrekvirki að verða fyrst íslenskra
kvenna til að synda yfir Ermarsundið.
2016 Guðni Valur Guðnason
Kringlukastari og Ólympíufari sem
náði miklum árangri á stuttum tíma.
2017 Jón Kalman Stefánsson
Einn fremsti rithöfundur þjóðarinnar
til fjölda ára. Orðaður við Nóbelinn.
2018 Óskar Vídalín Kristjánsson
Einn af stofnendum Minningarsjóðs
Einars Darra eftir fráfall sonar hans.
Simmi Vill tekur við viðurkenningunni
úr höndum Hilmars Gunnarssonar
ritstjóra Mosfellings. Styttan er eftir
leirlistakonuna Þóru Sigurþórsdóttur.
Mosfellingum gafst kostur á að tilnefna
þá sem þeim þóttu verðugir að hljóta
nafnbótina Mosfellingur ársins. Fjöldi
tilnefninga barst í gegnum heimasíðu
blaðsins Mosfellingur.is. Mörg skemmtileg
ummæli fylgdu með, eins og sjá má hér
til hliðar.
Mosverjar og Dagga – Settu af stað
Tindaárskorun til að stuðla að betri
líkamlegri og andlegri heilsu Mosfellinga.
Einnig hafa skátarnir stikað öll fellin okkar
ásamt því að gera aðgengið að Úlfarsfelli
algjörlega frábært.
Arndís Linn – Hefur verið ötul í öllu
starfi innan kirkjunnar og er alltaf
til staðar fyrir alla. Hún á skilið að vera
Mosfellingur ársins.
Hilmar Gunnarsson - Það segir bara
sjálft! Löngu kominn tími á það. Hvar
værum við án hans? Hvert bæjarfélag ætti
að eiga einn slíkan.
Bryndís Haralds – Hefur barist fyrir
mörgum góðum málum á Alþingi
okkar Íslendinga. Við Mosfellingar getum
verið stolt af þessu fulltrúa okkar.
Elísabet Kristjánsdóttir – Stendur
enn vaktina í skógræktinni og kveikti
áhuga hjá mörgum með matreiðslu-
kennslu í gaggó Mos.
Alexander Kárason – Lexi hefur
endalausa orku í að bæta aðstöðu
krakka í bænum í alls konar útivist og
afþreyingu.
Gaui og Vala – Framúrskarandi
leiðsögn og stuðningur fyrir meðlimi
ketilbjölluhópsins í gegnum erfitt ár.
Ása Dagný – Hefur unnið mikið fyrir
Aftureldingu, hún er mikið skipu-
lagsgúru og Afturelding og samfélagið í
kringum félagið notið krafta hennar.
Hanna Björk Halldórsdóttir – Hún
hefur sem íþróttafulltrúi Afturelding-
ar haldið íþróttastarfinu gangandi í alls
konar takmörkunum og veseni.
Kristján Magnússon – Fiskikóngur
Mosfellsbæjar, hefur séð bæjarbúum
fyrir ferskum fiski og ýmsum varningi í
mörg ár.
Birgir Sveinsson – Fyrir margra ára
óeigingjarnt starf í þágu Mosfellinga.
Farsæll skólastjóri, var potturinn og pann-
an í öflugri lúðrasveit bæjarins og er með
skemmtilegan myndadálk í Mosfellingi.
Starfsmenn leik- og grunnskóla
Mosfellsbæjar – Hafa séð til þess að
krakkarnir okkar haldi rútínu á fordæma-
lausum tímum og haldið bæjarfélaginu
gangandi.
Leifur Guðjónsson – Hann er
mikill Mosfellingur og lætur sig
málin varða, alltaf tilbúinn að leggja til
hugmyndir og athugasemdir til að gera
bæinn okkar betri.
Fjöldi tilneFninga