Mosfellingur - 14.01.2021, Blaðsíða 20
Stefán Ómar Jónsson hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu. Hann leiddi lista Vina Mosfellsbæjar fyrir
síðustu sveitarstjórnarkosningar 2018 og
náði kjöri.
Þetta var óháð framboð sem á ekki ræt-
ur að rekja til hefðbundinna stjórnmála-
flokka en sækir styrk sinn til einstaklinga
úr ýmsum áttum sem eiga það sameigin-
legt að vilja efla hag bæjarins.
Stefán Ómar fæddist í Vesturbæ Reykja-
víkur 4. mars 1955. Foreldrar hans eru þau
Lilja Sigurjónsdóttir húsmóðir og Jón M.
Sigurðsson kjötiðnaðarmeistari og kaup-
félagsstjóri en þau er bæði látin.
Stefán á sjö systkini, Guðríði f. 1943 d.
2012, Lovísu f. 1946, Jón Sævar, f. 1947,
Ásthildi f. 1949, Steinar f. 1957, Snorra f.
1959 og Reyni f. 1963.
Það var um sannkallaða sveit að ræða
„Ég er alinn upp í Mosfellssveit frá
tveggja ára aldri og á uppvaxtarárum mín-
um var hér um sannkallaða sveit að ræða.
Þéttbýli var þó að byrja að myndast þar sem
nú er Markholt, Lágholt og Skólabraut. Hlé-
garður var á sínum stað, Brúarlandsskóli og
Varmárskóli.
Það má eiginlega segja að Mosfellssveitin
hafi skipst í fjóra parta, niðursveitin þar
sem þéttbýlið var, Dalurinn, Reykjahverfið,
þyrpingin frá Reykjum að Álafossi og svo
Hlíðartúnið.“
Allir vinir í dag eftir víkingabardagann
„Það er margs að minnast þegar maður
lítur til baka, ég man þegar við bræðurnir
fórum í dagsferð, gangandi frá Vesturlands-
vegi og niður í voginn þar sem golfskálinn
stóð og þar lékum við okkur í fjörunni. Farið
var yfir túnin á Bjargarstöðum og yfir girð-
ingar og skurði, við borðuðum nesti í fjöru-
borðinu og héldum svo heim síðdegis.
Ekki má gleyma víkingabar-
daganum á Lágafellinu, niður-
sveitin gegn Reykjahverfi og
Dalnum en það eru allir vinir í
dag,“ segir Stefán og brosir.
Spilaði með hljómsveitinni Stjörnum
„Ég gekk í Brúarlandsskóla og síðan í
nýjan Varmárskóla, þar voru fremstir meðal
jafningja Tómas Sturlaugsson skólastjóri og
Birgir D. Sveinsson. Um þetta leyti var starf
skólahljómsveitarinnar að hefjast og þar
hóf ég slagverksnám. Ég spilaði svo síðar
með félögum mínum í mosfellsku hljóm-
sveitinni Stjörnum.
Leiðin lá svo aftur í Brúarlandsskóla sem
þá var orðinn gagnfræðaskóli, ég lauk prófi
þaðan 1972. Þar réð ríkjum Gylfi Pálsson
skólastjóri og var samstarf okkar mikið og
náið síðustu tvö árin en þá var ég formaður
nemendafélagsins.“
Fór til Danmerkur í nám
Stefán hóf nám í Verslunarskóla Íslands
og fór síðan í Samvinnuskólann að Bifröst
og útskrifast þaðan 1976. Eftir
útskrift réð hann sig til starfa
sem verslunarstjóri hjá Kaup-
félagi Rangæinga á Hvolsvelli.
Þar var hann í eitt ár en þá lá leið hans til
Danmerkur þar sem hann fór í verk- og
bóknám í skipulagi matvöruverslana. Þeg-
ar hann kom heim tók hann við verslun-
arstjórastöðu hjá Kron sem þá rak margar
verslanir víðs vegar um Reykjavík.
Sá yngsti á landinu
Stefán giftist Ástu Sverrisdóttur árið
1977 en hún lést árið 1996. Börn þeirra eru
Ásthildur f. 1976 fatahönnuður, Ómar f.
1980 matreiðslumeistari og Arndís f. 1983
hjúkrunarfræðingur.
Golf og stangveiði eru aðaláhugamál
Stefáns auk þess sem hann hjólar reglulega.
Áhugi hans á veiði hefur loðað við hann frá
því hann var strákur en hann veiddi mikið
við Hafravatn, í Köldukvísl og Varmá.
Í árslok 1980 var Stefán ráðinn sveitar-
stjóri í Gerðahreppi aðeins 24 ára gamall.
Hann er eftir því sem best er vit-
að yngstur allra sem hafa gegnt
starfi sveitar- eða bæjarstjóra á
landinu.
Svo skemmtilega vildi til að
móðir hans er fædd í Garði. Lang-
afi hans, Stefán Einarsson sem
hann er skírður í höfuðið á, bjó
einnig alla tíð í Garðinum og var
þar með útgerð nokkurra áttær-
inga eins og það hét í þá daga.
Hús sátta þessa örlagaríku nótt
Rétt eftir sveitarstjórnarkosn-
ingarnar 1982 var Stefán ráðinn
bæjarstjóri á Selfossi sem þá var
fjögur þúsund manna bær. Áfram hélt eld-
skírn sveitarstjórnarmála og verkefnin voru
mörg á meðan hann gegndi embættinu.
„Meðal verkefna minna var að koma
að byggingu Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Uppbyggingar- og rekstrarsamningur var
milli Selfoss og sýslnanna þriggja, Árnes-,
Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu en
þetta var tímamótasamningur og fyrirmynd
samskonar samninga víða um land.
Samningaviðræður höfðu staðið í
marga mánuði án árangurs en loks tókust
samningar eftir tæplega sólarhrings fund í
Tryggvaskála. Það leiðir hugann að því að
Tryggvaskáli var ekki bara fyrrum umferðar-
miðstöð Suðurlands heldur á þessum tíma
fundarstaður bæjarstjórnar Selfoss og hús
sátta þessa örlagaríku nótt.“
Kom á legg dreifingarmiðstöð
„Árið 1987 hóf ég störf í einkageiran-
um, Valur heitinn Arnþórsson þá kaup-
félagsstjóri KEA bað mig að koma á legg
dreifingarmiðstöð fyrir nokkur norðlensk
matvörufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu.
Ég tók verkefnið að mér sem átti að vera
til eins árs en árin urðu fimm, fyrirtækið
var meðal þeirra stærstu á svæðinu þegar
ég ákvað að komið væri nóg. Þá hélt ég til
Danmerkur til framhaldsnáms í viðskipta-
lögfræði og lauk mastersgráðu árið 1998.
Eftir heimkomu hóf ég störf hjá Land-
símanum, fyrst sem fjármálastjóri og ári
síðar varð ég einn af sex þáverandi fram-
kvæmdastjórum Símans.“
Viðfangsefnin eru oft á tíðum lík
„Haustið 2001 var ég ráðinn sem bæj-
arritari Mosfellsbæjar en stöðuheitinu var
síðar breytt í framkvæmdastjóri stjórn-
sýslusviðs. Þá var ég aftur kominn til starfa
í opinbera geiranum eftir mikla og góða
skólun í einkageiranum.
Ég hef oft sagt að munurinn á þessum
geirum sé að í einkageiranum lærir maður
að hámarka hagnað og fara með fé hluthaf-
anna en í opinbera geiranum þarf maður
að hámarka velferð og umhyggju íbúanna
og fara vel með fé þeirra. Viðfangsefnin eru
oft á tíðum ansi lík.
Frá því ég lauk störfum hjá Mosfellsbæ
2014 hef ég rekið mitt eigið fyrirtæki í stjórn-
sýsluráðgjöf og í þeim störfum einna mest
fyrir sveitarfélög þar sem ég hef getað notað
uppsafnaða þekkingu til margra ára.“
Opnuðum kosningahöll í gámi
„Í aðdraganda sveitarstjórnarkosning-
anna 2018 ákvað ég að gefa kost á mér til
starfa í bæjarstjórn. Fyrir valinu var að fara
fram með landsóháðan lista, Vini Mosfells-
bæjar, og kjörorðið fólk en ekki flokkur.
Það er skemmst frá því að segja að und-
irtektir voru undraverðar því með aðeins
fjögurra vikna fyrirvara varð til 18 manna
listi. Komið var upp kosningahöll í gámi og
einum einblöðungi var dreift í hús. Niður-
staðan varð einn bæjarfulltrúi og rétt um
11% atkvæða.
Starf bæjarfulltrúans er að vinna að hags-
munum allra bæjarbúa og gæta þar réttlætis
og jafnræðis, þessu má maður ekki gleyma.
Starfið hefur gengið vel í það heila, auðvitað
skarast stefnur og áherslur en aðalatriðið er
að allar skoðanir njóti gagnkvæmrar virð-
ingar,“ segir Stefán að lokum.
Starfið í bæjarstjórn hefur
gengið vel í það heila en
aðalatriðið er að allar skoðanir
njóti gagnkvæmrar virðingar.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
HIN HLIÐIN
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór? Flugmaður.
Fallegasta bygging á Íslandi? Af mynd-
um að dæma er það stílhrein bygging
hótels Retreat Blue Lagoon í Grindavík.
Besti helgarmaturinn? Lambakjöt með
brúnuðum kartöflum og Ora rauðkáli.
Hvað gleður þig mest?
Þegar réttlætið sigrar.
Uppáhaldsverslun? Hún hefur ekki
opnað ennþá en það styttist í það.
Hver er þín óvenjulegasta lífsreynsla?
Þegar ég var óvænt ráðinn sveitarstjóri
24 ára gamall.
Fullkominn laugardagur?
Hringur með golffélögunum.
Besta lykt í heimi?
Hangikjötslykt á jóladag.
Fjölskyldan 1993. Ásta, Ómar, Arndís, Ásthildur og Stefán Ómar.
Ekki má gleyma hverra
hagsmuna maður gætir
Stefán Ómar Jónsson viðskiptalögfræðingur og stjórnsýsluráðgjafi er bæjarfulltrúi og oddviti Vina Mosfellsbæjar
með foreldrum og systkinum
7 ára að brúarlandi útskriftarmynd 1976
- Mosfellingurinn Stefán Ómar Jónsson20
Myndir: Ruth Örnólfsdóttir og úr einkasafni.