Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2021, Síða 20
„Ég var líka að velta fyrir mér sannleiksgildi ljósmyndarinnar þar sem ég er með ljósmynd eða afrit af manneskju og svo
raunefni, lifandi hár. Þannig tvinnast saman afrit og raunefni, þátíð og nútíð,“ segir Kaja Sigvaldadóttir.
Morgunblaðið/Ásdís
Það skapar óþæginda-
tilfinningu að sjá hár
saumað í auga.
Ég hef alltaf haft áhuga á sjón-rænum miðlum eins og ljós-myndun en það var ekki
fyrr en á unglingsárum sem ég
byrjaði að taka myndir,“ segir Kar-
ítas Sigvaldadóttir, ávallt kölluð
Kaja.
Hún er nýútskrifaður ljósmynd-
ari úr Ljósmyndaskólanum, en áð-
ur hafði hún klárað háskólanám í
mannfræði.
„Eftir að ég kláraði háskólanám-
ið langaði mig að gefa mér rými í
að öðlast færni og þekkingu á ljós-
myndamiðlinum. Þá lá leiðin í Ljós-
myndaskólann. Mig langaði í skap-
andi nám þar sem ég gæti tvinnað
saman ljósmyndun og mannfræði.
Þegar ég var í mannfræðináminu
fannst mér svo heillandi þegar
sjónrænir miðlar voru notaðir í
miðlun á rannsóknum, greinum
eða öðru. Mig langaði líka að kafa
meira ofan í listrænu hliðina á
mér sem ég held að hafi alltaf ver-
ið til staðar. Ljósmyndamiðillinn
veitir mér mikla útrás, bæði til-
finningalega og á einhvern annan
hátt sem erfitt er að útskýra.“
Geymdi hár í krukkum
Fyrir einu og hálfu ári byrjaði
Kaja að vinna með mannshár og
tvinna það saman við verk sín.
„Mér finnst hár áhugavert fyrir-
bæri, bæði út frá félagslegu og list-
rænu sjónarhorni. Það eru margir
vinklar; hár hefur gríðarlegt menn-
ingarlegt og sögulegt gildi. Þá er
einnig svo margt sem býr í hárinu,
þar má meðal annars finna DNA
manneskju. Þá er líka áhugavert að
spá í persónulega tengingu og tím-
ann þar sem sumir geyma hárlokka
til dæmis,“ segir hún.
„Ég skoðaði líka hvernig viðhorf
okkar breytist til hárs eftir að við
tökum það af, og þá úr samhengi.
Fyrir einu og hálfu ári var ég með
mjaðmasítt hár. Ferlið byrjaði með
að ég klippti hár mitt og frysti það.
Ég fór að íhuga hvernig hægt væri
að frysta lifandi hluta af sjálfum
sér. Út frá því fór ég að skoða
hvernig hár hefur áhrif á sjálfs-
myndina. Þá tók ég sjálfsmyndir
þar sem Helga vinkona mín breytti
hárinu mínu, litaði það og klippti á
nokkurra vikna fresti. Ég fór að
geyma lokka úr mínu eigin hári og
seinna fór ég að geyma neglur. Það
er áhugavert að spá í það að þegar
hár og neglur eru enn föst við lík-
amann teljast þau oftast falleg, fólk
vill oft næra hárið og lakka negl-
urnar, en um leið og búið er að
klippa það af telst það frekar ógeð-
fellt. Ég fór síðan í það að raka lík-
amshár af öðru fólki, eins og úr
handarkrika og skegg, og geymdi í
krukkum.“
Þátíð og nútíð
Eftir miklar tilraunir með hár hóf
Kaja að sauma það í ljósmyndir.
„Fyrst prófaði ég að líma það á
myndir eða á mig sjálfa. Ég prófaði
líka að sauma hár í puttann á mér,“
segir Kaja og blaðamaður grípur
inn í og spyr hvort það hafi ekki
verið vont.
„Jú, það er svolítið vont. En líka
áhugavert,“ segir hún.
„Svo byrjaði ég að sauma hár í
ljósmyndirnar mínar. Ég þurfti að
prófa mig áfram og þetta var mikið
tilraunaferli og þolinmæðisvinna.
Einnig þurfti ég mikið hár,“ segir
Kaja en hún notaði sitt eigið hár og
frá öðru fólki.
„Ég var líka að velta fyrir mér
sannleiksgildi ljósmyndarinnar þar
sem ég er með ljósmynd eða afrit af
manneskju og svo raunefni, lifandi
hár. Þannig tvinnast saman afrit og
raunefni, þátíð og nútíð. Ég leik
mér einnig með að sauma hár á
staði sem það á ekki að vera á, eins
og á augastein, sem getur skapað
óþægindatilfinningu. Hár getur ver-
ið óþægilegt og ógeðslegt ef það er
tekið úr samhengi.“
Hvað er fram undan hjá þér?
„Góð spurning. Mig langar að
leigja vinnurými og halda áfram að
mynda og skapa list, en ég þarf að
fá mér fasta vinnu með því. Ef ein-
hver er að leita að ljósmyndara er
ég laus,“ segir Kaja og brosir.
Sýning Ljósmyndaskólans er opin
um helgina og síðustu forvöð að sjá
hana sunnudaginn 31. janúar. Þar
má sjá verk þrettán nemenda og
eru þau afar ólík og öll áhugaverð.
Margt býr í
hárinu
Í Ljósmyndasafni Reykjavíkur stendur yfir
útskriftarsýning nemenda Ljósmyndaskólans.
Karítas Sigvaldadóttir er ljósmyndari
sem vinnur með mannshár.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Kaja gerði margar tilraunir með að
sauma hár í ljósmyndir.
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.1. 2021
LÍFSSTÍLL
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ
Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum.