Morgunblaðið - 23.02.2021, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 2021
England
Brighton – Crystal Palace ....................... 1:2
Staðan:
Manch. City 25 18 5 2 50:15 59
Manch. Utd 25 14 7 4 53:32 49
Leicester 25 15 4 6 44:27 49
West Ham 25 13 6 6 39:29 45
Chelsea 25 12 7 6 41:25 43
Liverpool 25 11 7 7 45:34 40
Everton 24 12 4 8 37:33 40
Aston Villa 23 11 3 9 37:26 36
Tottenham 24 10 6 8 37:27 36
Arsenal 25 10 4 11 31:26 34
Wolves 25 9 6 10 26:32 33
Leeds 24 10 2 12 40:43 32
Crystal Palace 25 9 5 11 29:43 32
Southampton 24 8 6 10 31:40 30
Burnley 25 7 7 11 18:30 28
Brighton 25 5 11 9 26:32 26
Newcastle 25 7 4 14 26:43 25
Fulham 25 4 10 11 21:32 22
WBA 25 2 8 15 19:55 14
Sheffield Utd 25 3 2 20 15:41 11
Ítalía
Juventus – Crotone .................................. 3:0
Staða efstu liða:
Inter Mílanó 23 16 5 2 57:24 53
AC Milan 23 15 4 4 45:28 49
Juventus 22 13 6 3 44:19 45
Roma 22 13 5 4 47:32 44
Atalanta 23 12 7 4 53:31 43
Katar
Al-Sadd – Al-Arabi .................................. 3:2
Aron Einar Gunnarsson lék ekki með Al-
Arabi. Freyr Alexandersson aðstoðarþjálf-
ari stýrði liðinu en Heimir Hallgrímsson
þjálfari er með kórónuveiruna.
Danmörk
Lyngby – Köbenhavn .............................. 2:2
Frederik Schram var varamarkvörður
hjá Lyngby.
Staða efstu liða:
Brøndby 17 12 1 4 34:21 37
Midtjylland 17 11 3 3 29:17 36
AGF 17 9 5 3 29:16 32
København 17 9 3 5 32:27 30
Randers 17 8 3 6 26:15 27
SønderjyskE 17 7 3 7 25:24 24
Spánn
B-deild:
Fuenlabrada – Real Oviedo.................... 2:2
Diego Jóhannesson var á varamanna-
bekknum hjá Oviedo.
Olísdeild karla
ÍR – Haukar.......................................... 26:29
Selfoss – Grótta .................................... 20:26
Valur – Afturelding .............................. 30:21
Staðan:
Haukar 10 8 1 1 287:245 17
FH 11 7 2 2 327:294 16
Valur 11 6 1 4 318:301 13
Afturelding 11 6 1 4 276:286 13
Stjarnan 11 5 2 4 300:293 12
KA 10 4 4 2 260:241 12
ÍBV 10 5 1 4 295:282 11
Selfoss 10 5 1 4 256:244 11
Fram 11 4 2 5 273:280 10
Grótta 11 3 3 5 270:269 9
Þór Ak. 11 2 0 9 243:286 4
ÍR 11 0 0 11 256:340 0
Svíþjóð
Hallby – Guif ........................................ 25:30
Daníel Freyr Ágústsson varði 15/1 skot í
marki Guif, eða 40 prósent.
1. deild karla
Fjölnir – Selfoss.................................... 77:73
Sindri – Hamar ..................................... 95:91
Staðan:
Breiðablik 8 6 2 771:689 12
Hamar 8 6 2 782:701 12
Sindri 9 6 3 828:805 12
Álftanes 9 5 4 817:754 10
Vestri 9 5 4 774:815 10
Skallagrímur 9 4 5 761:754 8
Fjölnir 8 3 5 672:706 6
Hrunamenn 9 2 7 756:880 4
Selfoss 9 2 7 676:733 4
NBA-deildin
New Orleans – Boston............. (frl.) 120:115
Cleveland – Oklahoma City............. 101:117
Orlando – Detroit ............................... 105:96
Toronto – Philadelphia..................... 110:103
New York – Minnesota ...................... 103:99
Atlanta – Denver .............................. 123:115
LA Clippers – Brooklyn................... 108:112
Milwaukee – Sacramento ................ 128:115
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót kvenna, Hertz-deildin:
Egilshöll: Fjölnir – SR ......................... 19.45
KNATTSPYRNA
Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn:
Origo-völlur: Valur – ÍBV.................... 17.30
Í KVÖLD!
Selfyssingum gekk hins vegar illa
að ráða við 5-1-vörn Gróttu. Sókn-
arleikurinn var staður og hægur og
þeir vínrauðu virtust alls ekki í víga-
hug. Guðmundur Hólmar var öfl-
ugur í sókninni hjá Selfyssingum í
fyrri hálfleik en Ragnar Jóhannsson
var í stífri gæslu og komst ekki á
blað. Staðan var 11:14 í hálfleik og
Gróttumenn héldu sínu striki í seinni
hálfleik á meðan Selfyssingar fundu
aldrei taktinn. Birgir Steinn fékk
aldrei flugbrautina sem hann þurfti í
seinni hálfleik en Daníel Örn hélt
áfram árásum sínum og sömuleiðis
opnaðist fyrir Gunnar Dan á lín-
unni,“ skrifaði Guðmundur Karl með-
al annars í umfjöllun sinni um leikinn
á mbl.is í gær.
Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari
Selfyssinga, leyndi ekki vonbrigðum
sínum í samtali við Guðmund Karl
þegar niðurstaðan lá fyrir og sagði
ekki óvarlegt að tala um einhvers
konar krísu hjá liðinu en Selfoss hef-
ur tapað þremur leikjum í röð. „„Það
má alveg kalla þetta smá krísu. Mér
finnst það vera. Að tapa svona illa
fyrir Gróttu á heimavelli með svona
dapurri spilamennsku, það finnst
mér ekki gott. Það er stutt á milli
næstu leikja og við þurfum fyrst og
fremst að kúpla okkur aðeins frá
þessu og að hver og einn líti í eigin
barm. Þetta snýst um sjálfstraust.
Það geislaði ekki af okkur í kvöld og
þetta var með því daprasta sem ég
hef séð, og við höfum gert síðan ég
kom á Selfoss,“ sagði Halldór Jó-
hann.
Haukar aftur á toppinn
Annar leikur sem var ekki eftir
bókinni margumtöluðu fór fram í
Austurberginu í Breiðholti. Haukar
náðu þá aftur toppsætinu í deildinni
og fóru upp fyrir FH. Eru Haukar
með 17 stig en FH 16.
ÍR er án stiga í botnsæti deild-
arinnar og því bjuggust eflaust flestir
við ójöfnum leik á milli ÍR og Hauka.
Svo fór ekki en Haukar lönduðu þó
sigri 29:26 en máttu hafa verulega
fyrir hlutunum. Að loknum fyrri hálf-
leik var staðan 13:13 og Haukarnir
náðu að komast yfir á lokamín-
útunum og landa sigri.
Darri Aronsson og Orri Freyr
Þorkelsson skoruðu mest fyrir
Hauka, sex mörk hvor. Sveinn Brynj-
ar Agnarsson átti stórleik fyrir ÍR í
hægra horninu og skoraði 10 mörk.
Skoraði 10 í fyrri hálfleik
Eftir misjafna leiki náðu Valsmenn
sér á strik í gær og unnu öruggan sig-
ur, 30:21, á vængbrotnu liði Aftureld-
ingar á Hlíðarenda. Óhætt er að
segja að grunnurinn að sigrinum hafi
verið lagður í fyrri hálfleik því þá
skoraði Valur 21 mark og hafði komið
sér upp ellefu marka forskoti fyrir
síðari hálfleikinn. Skoraði Anton
Rúnarsson 10 mörk í fyrri hálfleik.
„Staðan 21:10 í hálfleik þar sem
Anton var sem áður segir með tæp-
lega helming marka Valsmanna. Þá
var Martin Nagy í marki þeirra
drjúgur og varði sjö skot í fyrri hálf-
leiknum. Að sama skapi voru Mosfell-
ingar algjörlega heillum horfnir og
áttu engin svör við sterkum sókn-
arleik Valsmanna, auk þess sem
markvarsla gestanna var lítil sem
engin. Síðari hálfleikurinn var öllu
rólegri enda má með sanni segja að
skaðinn væri þegar skeður fyrir Mos-
fellinga. Anton bætti nokkrum mörk-
um við úr vítaköstum og Nagy hélt
áfram að verja eins og berserkur,
endaði hann með 16 varin skot og 50
prósent markvörslu. Anton endaði
markahæstur í leiknum með 13 mörk
og gaf sömuleiðis fjórar stoðsend-
ingar. Markahæstur í liði Aftureld-
ingar var Blær Hinriksson með fimm
mörk og fjórar stoðsendingar að
auki,“ skrifaði Gunnar Egill Daní-
elsson meðal annars í umfjöllun sinni
um leikinn á mbl.is.
Á mbl.is/sport/handbolti er að
finna ýmsa umfjöllun um leikina og
viðtöl.
Seltirningar
fjarlægjast
fallsvæðið
Unnu óvænt á Selfossi ÍR reynd-
ist ekki fallbyssufóður fyrir Hauka
Morgunblaðið/Eggert
Í Breiðholti ÍR-ingar létu Haukana hafa fyrir hlutunum eins og sést.
Morgunblaðið/Eggert
Á Hlíðarenda Anton Rúnarsson lætur vaða á markið í gær en hann var heldur betur ógnandi.
HANDBOLTINN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Leikirnir í Olís-deild karla í hand-
knattleik eru ef til vill ekki eins fyr-
irsjáanlegir og einhverjir héldu. Ný-
liðarnir í Gróttu halda áfram að koma
á óvart og sóttu tvö stig á Selfoss í
gær en þá voru þrír leikir á dagskrá í
deildinni. Grótta er nú með níu stig
eftir ellefu leiki og er aðeins tveimur
stigum á eftir ÍBV og Selfossi sem
hafa leikið tíu leiki.
Grótta tapaði nýliðaslag gegn Þór
á Akureyri á dögunum en Seltirn-
ingar voru ekki lengi að sleikja sárin.
Síðan þá hafa þeir náð í fjögur stig
með sigrum á móti Fram og Selfossi.
Eftir leikinn gegn Þór var Grótta
stigi fyrir ofan fallsæti en er nú fimm
stigum fyrir ofan fallsæti en Þór er
með fjögur stig.
„Gróttumenn léku mjög vel allan
leikinn. Vörnin var hreyfanleg og
þétt og í sókninni voru menn
óhræddir við að skjóta. Þar bar mest
á Birgi Steini Jónssyni sem skoraði
nokkur glæsileg mörk í fyrri hálfleik
og sömuleiðis var Daníel Örn Griffin
óhræddur við að ráðast á Selfoss-
vörnina.
Mosfellingurinn Elvar Ásgeirsson
er genginn til liðs við Nancy sem
leikur í næstefstu deild í franska
handknattleiknum.
Félagið tilkynnti um félaga-
skiptin í gær en fyrir nokkru var
þessi möguleiki til umfjöllunar í
fjölmiðlum. Elvar fékk sig lausan
frá þýska liðinu Stuttgart og verð-
ur því löglegur með Nancy á næst-
unni, sem er í fjórða sæti af fjórtán
liðum í B-deildinni.
Elvar hélt til Þýskalands sumarið
2019 eftir að hafa leikið með Aftur-
eldingu hér heima.
Elvar kominn til
Frakklands
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Frakkland Elvar Ásgeirsson færir
sig um set á meginlandinu.
Zlatko Saracevic, heims- og ólymp-
íumeistari í handknattleik með
landsliðum Júgóslavíu og Króatíu,
lést af völdum hjartaáfalls um síð-
ustu helgi, 59 ára að aldri. Hann
var starfandi sem þjálfari besta
kvennaliðs Króatíu, Podravka Kop-
rivnica, og var að keyra markvörð
liðsins heim eftir sigurleik þegar
hann lést. Saracevic varð heims-
meistari með Júgóslavíu 1986 og ól-
ympíumeistari með Króatíu 1996,
og starfaði sem þjálfari eftir að
hann lagði skóna á hilluna sem leik-
maður 41 árs að aldri.
Zlatko Saracevic
er látinn
Sigursæll Zlatko Saracevic var í
fremstu röð í heiminum.