Morgunblaðið - 23.02.2021, Blaðsíða 32
Ármúla 10
) 568 9950
duxiana.comHáþróaður svefnbúnaður
Náttúruleg efni, einstakt handverk og PASCAL gormakerfið
gera rúmin okkar að athvarfi fyrir stöðugan gæðasvefn.
FRUMKVÖÐLAR SÍÐAN 1926
Klæðskerasniðin
þægindi
Björk Níelsdóttir sópransöngkona og Eva Þyri Hilmars-
dóttir píanóleikari koma fram í Kúnstpásu Íslensku
óperunnar í Hörpu í hádeginu í dag, þriðjudag, kl. 12.15.
Ókeypis er á tónleikana en vegna sóttvarnareglna þarf
að bóka miða í miðasölukerfi Hörpu. Á efnisskrá tón-
leikanna eru sönglög eftir Mozart, Satie, Herbert, Weill,
Taylor og Piazzolla. Björk var valin bjartasta vonin á Ís-
lensku tónlistarverðlaununum 2019 og Eva Þyri hefur
verið mjög virk í tónlistarlífinu á undanförnum árum.
Björk og Eva Þyri koma fram í
Kúnstpásu Íslensku óperunnar í dag
ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 54. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
„Þetta tímabil er búið að vera upp og ofan hjá mér per-
sónulega,“ segir Hjörtur Hermannsson, landsliðsmaður
í knattspyrnu, í samtali við Morgunblaðið í dag en hann
hefur verið inn og út úr liðinu hjá danska liðinu
Brøndby á keppnistímabilinu.
„Liðinu hefur gengið gríðarlega vel og eins og gefur
að skilja er samkeppnin mjög hörð hjá klúbbi eins og
Brøndby. Ég væri að ljúga ef ég segði ekki að ég hefði
verið til í að vera búinn að spila mun meira en ég hef
gert á tímabilinu, sérstaklega fyrir jól.“ »27
Upp og ofan hjá Hirti á þessu
keppnistímabili í Danmörku
ÍÞRÓTTIR MENNING
Gunnhildur Sif Oddsdóttir
gunnhildursif@mbl.is
Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir
er yngsti nemandinn í sögu Háskól-
ans á Bifröst til að ljúka grunnnámi
frá skólanum en Þórhildur er ekki
nema 20 ára gömul, fædd árið 2000.
Þar að auki hlaut Þórhildur við út-
skriftina verðlaun fyrir hæstu
meðaleinkunn í félagsvísinda- og
lagadeild en Þórhildur útskrifaðist
úr BA-námi í heimspeki, hagfræði og
stjórnmálafræði. 76 nemendur
brautskráðust frá Háskólanum á
Bifröst á laugardaginn var, 20. febr-
úar.
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Þórhildur það aldrei hafa verið
markmiðið að klára á svona stuttum
tíma. Það hefði bara viljað svo til.
„Ég var ári á undan í grunnskóla
þannig að ég sleppti níunda bekk, fór
bara beint úr áttunda bekk í tíunda
bekk og svo útskrifaðist ég úr
menntaskóla á tveimur og hálfu ári,“
sagði Þórhildur og bætti við: „Að
klára menntaskólann á svona stutt-
um tíma var eiginlega bara tilviljun,
ég var ekki alveg að fylgjast nógu
mikið með hvað ég var búin að taka
margar einingar.“ Þórhildur sagði
síðan námið á Bifröst skipulagt sem
nám til tveggja og hálfs árs. Hún
lauk þannig hverju skólastigi á
skemmri tíma en almennt gengur og
gerist.
Nóg að gera og alltaf gaman
Þórhildur hefur haft í nógu að snú-
ast síðustu ár. Eftir menntaskólann
tók hún sér hlé og fór í lýðháskóla í
Danmörku áður en hún byrjaði í há-
skóla árið 2018. Með skólanum hefur
Þórhildur svo unnið í félagsmiðstöð
ásamt því að vera skátaforingi hjá
börnum í þriðja og fjórða bekk. Auk
þess útskrifaðist Þórhildur með dipl-
ómu í kínversku frá Háskóla Íslands
sumarið 2020 svo hún hefur aldeilis
ekki setið aðgerðalaus. Aðspurð seg-
ist Þórhildur ekki hafa of mikið að
gera. „Ég hef alltaf verið svona, bara
nóg að gera og alltaf gaman.“
Stefnan sett á frekara nám
Þórhildur segir stefnuna setta á
meistaranám í haust. „Ég er ekki
alveg búin að ákveða hvað ég ætla að
fara að læra. Ég vinn í félagsmiðstöð
núna og er að skoða tómstunda- og
félagsmálafræðina en ég er líka að
skoða nám í útlöndum, ég er bara
enn að ákveða mig.“
Þórhildur segist ekki luma á nein-
um töfraráðum fyrir aðra nemendur.
„Hjá mér er það bara að lesa skóla-
bækurnar og vinna verkefnin tíman-
lega.“
Ljósmynd/Aðsend
Útskrift Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir, fyrir miðju, við útskriftina frá Háskólanum á Bifröst.
Yngst í sögu Bifrastar
til að ljúka grunnnámi
Með hæstu meðaleinkunn í félagsvísinda- og lagadeild