Morgunblaðið - 23.02.2021, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 2021
Hristum
þetta af
okkur
L augarnar í Rey k javí k
w w w. i t r. i s
2m
Höldumbilinu og sýnum
hvert öðru tillitssemi
50 ára Magnús er Akur-
eyringur en býr í Reykja-
vík. Hann er vélfræð-
ingur frá VMA og
Vélskóla Íslands, B.Sc. í
efnaverkfræði frá HÍ og
M.Sc. frá Konunglega
tækniháskólanum í
Stokkhólmi. Magnús er verkefnastjóri hjá
Orku náttúrunnar. Hann tekur þátt í æsku-
lýðsstarfi hjá Fjölni í handboltadeildinni.
Maki: Margrét Cela, f. 1973, deildarstjóri á
félagsvísindasviði Háskóla Íslands.
Börn: Oliver Aron, f. 1998, Kristófer Jóel, f.
1999, Lovísa Rakel, f. 2002, og Nína Rut, f.
2004.
Foreldrar: Helga Magnúsdóttir, f. 1929, d.
2017, rak fatahreinsun, og Örn Stein-
þórsson, f. 1931, d. 1980, prentari. Þau
voru búsett á Akureyri.
Magnús Þór
Arnarson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Vandamál sem hefur elt þig lengi
virðist auðleysanlegt með hjálp einhvers
sem þekkir það af eigin raun. Sumt ræður
maður ekki við og hefur enga stjórn á.
20. apríl - 20. maí
Naut Hvernig ferðu með tímann þinn?
Eyðir þú honum í uppbyggingarhluti eða
ekki? Hvernig væri að skoða það?
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur nú byrinn með þér og
ert fær í flestan sjó. Dagurinn er kjörinn
til að fara út í náttúruna og slappa af.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú átt að láta tilfinningar þínar í
ljós, en ekki byrgja þær inni. Það eru
margir sem vilja kynnast þér, láttu það
eftir þeim.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er alltaf gaman að rekast á
gamla vini og rifja upp liðna tíð. Njóttu
þess að vera með ástvinum þínum því þú
hefur svo sannarlega unnið fyrir því.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Einhverjir vilja pranga inn á þig
hlutum sem þú hefur í raun og veru enga
þörf fyrir. Þú hefur storminn í fangið
næstu daga.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það skiptir engu máli hvernig viðrar
hið ytra ef þið gætið þess að hafa sól í
sinni. Taktu góðlátlegt grín annarra ekki
nærri þér því þú veist vel að það býr ekk-
ert að baki.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Hafðu stjórn á skapi þínu og
forðastu að hlaupa á eftir hverri hugdettu.
Þú höndlar erfiðar aðstæður með glans.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Taktu höndum saman við þá
sem deila framtíðarsýn þinni. Þú hefur
alltaf synt á móti straumnum, ekki hætta
því þótt einhverjir hneykslist á því.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ert eitthvað annars hugar í
dag. Samvera vina og skyldur heimilisins
skarast, en það á aðeins við í dag. Þú ert
of vanafastur/föst.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú nýtur þess að vera í ein-
rúmi í dag. Gættu þess að tala ekki of
mikið og sýndu öðrum skilning. Allt er
gott í hófi.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú átt eftir að þurfa að læra að
slaka á fyrr eða síðar. Þú kallar ekki allt
ömmu þína og átt það til að fara fram úr
þér.
síðari ár í Domus Medica. Hann var
um tíma yfirmaður barnahjarta-
lækninga á Barnaspítalanum, hafði
umsjón með unglæknum og síðar
sviðsstjóri barnalækninga í eitt ár
auk þess að sitja í læknaráði, jafn-
réttisnefnd og fleiri nefndum á veg-
um spítalans. Frá 2011 hefur hann
burgh í Pennsylvaníu þar sem ég
lærði barnahjartalæknisfræði og
reyndar líka fósturhjartalæknis-
fræði.“
Gunnlaugur byrjaði á Barnaspít-
ala Hringsins árið 1997 sem almenn-
ur sérfræðingur en hefur jafnframt
rekið stofu, fyrst á Melhaga en hin
G
unnlaugur Sigfússon
fæddist 23. febrúar
1961 í Reykjavík og bjó
í Hvassaleiti frá
tveggja ára aldri og þar
til hann flutti að heiman um tvítugt.
„Ég bjó síðan um skemmri tíma í
Norðurmýri og á Flyðrugranda og
reyndar frá því ég flutti að heiman
hef ég alltaf búið í Vestur- eða mið-
bænum,“ segir Gunnlaugur.
„Ég missti föður minn þegar ég
var níu ára og því alinn upp að mestu
ásamt eldri bróður og systur af móð-
ur okkar sem var mikil ofurkona og
ól okkur upp í anda jafnréttis og
bræðralags. Heimili okkar var vin-
um okkar ætíð opið og kom móðir
mín fram við þá eins og jafningja,
nokkuð sem hún naut mikillar vel-
vildar fyrir síðar á ævinni. Mikið líf
var í hverfinu á þessum árum, mörg
börn á svipuðum aldri og þaðan eru
margir af mínum bestu vinum enn
þann dag í dag. Ég spilaði fótbolta
og handbolta með Fram þar til ég
varð 18 ára gamall og þótti bara
nokkuð efnilegur.“
Gunnlaugur var í sveit á sumrin í
sex ár á Steiná í Svartárdal í A-
Húnavatnssýslu. „Þar var ég hjá
öndvegisfólki, Sigurjóni Stefánssyni
og Katrínu Grímsdóttur. Bærinn var
þríbýli og mörg börn og unglingar
gerðu þetta að fullkomnu umhverfi
barnsáranna sem ég minnist með
hlýju.“
Gunnlaugur gekk í Hvassaleitis-
skóla, síðar eitt ár í Ármúlaskóla og
var svo í Menntaskólanum við
Hamrahlíð. Hann söng með Kór
Menntaskólans við Hamrahlíð og
síðar Hamrahlíðarkórnum. „Frá
menntaskólaárunum hef ég verið
meðlimur í oktett skólabræðra úr
MH sem hafa brallað margt saman.“
Gunnlaugur lauk einu ári í sagn-
fræði við Háskóla Íslands en skipti
þá yfir í læknisfræði. Hann var eitt
ár sem kandídat á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri og síðar á barna-
deild Landspítalans í rúmt ár. „Ég
fluttist þá til Bandaríkjanna þar sem
ég bjó ásamt fjölskyldunni í tæp sjö
ár, fyrst þrjú ár í Hartford í Con-
necticut þar sem ég lagði stund á
barnalæknisfræði og síðan í Pitts-
jafnframt verið starfandi barna-
hjartalæknir á Karolinska sjúkra-
húsinu í Stokkhólmi/Astrid Lind-
gren Barnsjukhus og yfirlæknir frá
2014 er hann hætti vinnu á Barna-
spítala Hringsins. „Ég er aftur far-
inn að vinna á Barnaspítala Hrings-
ins, frá mars 2020, í kjölfar heims-
faraldurs sem gerði tíð ferðalög
milli landa og vinnu í tveimur lönd-
um ómöguleg.“
Árið 2010 stofnaði Gunnlaugur
útgáfufélagið Eyju sem hefur gefið
út nokkrar listaverkabækur, m.a.
um Kristínu Gunnlaugsdóttur. „Ár-
ið 2011, í tilefni fimmtugsafmælis
míns, stóð ég fyrir merkilegum við-
burði í Listasafni Íslands þar sem
ég leiddi saman Hauk Tómasson
tónskáld og Eggert Pétursson
myndlistarmann. Eggert málaði
fjögur málverk og Haukur samdi
tónverk í fjórum köflum við mál-
verkin. Þetta verk, Moldarljós, var
frumflutt í afmælisveislunni og svo
flutt fyrir almenning en jafnframt
gaf Eyja útgáfufélag út geisladisk
með tónverkinu. Tónverkið var síð-
an valið tónverk ársins 2011.“
Helstu áhugamál Gunnlaugs hafa
gegnum tíðina verið listir og menn-
ing en jafnframt er Gunnlaugur
mikill veiðiáhugamaður. „Ég hef
stundað bæði silungsveiði og lax-
veiði af miklum krafti en kannski
minnkandi eftir að ég kynntist og
hóf að leika golf. Í dag er golf lík-
lega aðaláhugamálið mitt og spila
ég eins mikið golf og ég get með eig-
inkonu, fjölskyldu og vinum bæði
hér á landi og töluvert erlendis.
Ég er meðlimur í Golfklúbbnum
Hamri á Dalvík en þar eigum við
stórfjölskyldan hús, Vallholt, sem
við dveljum mikið í, bæði að vetri,
m.a. á skíðum, og sumri en þá er
golfið aðal. Þetta hús, Vallholt,
byggði afi minn og alnafni og þar
fæddist faðir minn. Fyrir all-
nokkrum árum keyptum við systk-
inin þetta hús og gerðum það upp
og hefur það verið mikill gullmoli
fyrir okkur, börnin og barnabörn.“
Fjölskylda
Eiginkona Gunnlaugs er Sólveig
Kristjánsdóttir, f. 7.2. 1966, hjúkr-
Gunnlaugur Sigfússon barnahjartalæknir – 60 ára
Ásamt börnunum Frá vinstri: Einar, Gunnlaugur, Eva og Sigfús.
Unnandi lista, veiða og golfs
Veiðimaðurinn Með einn vænan. Golfarinn Í Svarfaðardal.
40 ára Sólrún er
Reykvíkingur, ólst upp
í Breiðholti en býr í
Laugarnesinu. Hún er
með B.Sc. í líffræði frá
Háskóla Íslands og
vinnur sem náttúru-
fræðingur í dýrasvif-
greiningum hjá Hafrannsóknastofnun.
Sólrún er trúnaðarmaður í Félagi ís-
lenskra náttúrufræðinga.
Maki: Reynir Jónsson, f. 1980, landfræð-
ingur en vinnur í framleiðsludeild svefn-
rannsóknafyrirtækisins Nox Medica.
Börn: Lydía Líf, f. 2005, og Úlfur Freyr, f.
2010.
Foreldrar: Sigurgeir Þór Sigurðsson, f.
1946, húsgagnasmíðameistari og Sigríð-
ur Guðlaugsdóttir, f. 1945, húsmóðir. Þau
eru búsett í Reykjavík.
Sólrún
Sigurgeirsdóttir
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is