Morgunblaðið - 23.02.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.02.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 2021 S P U R T & S V A R A Ð Í B E I N N I Á F A C E B O O K Í d a g k l . 1 2 : 0 0 N á n a r á x d . i s Uppskera á helstu káltegundum, öðr- um en hvítkáli, jókst á síðasta ári. Framleiðsla á rauðkáli meira en fimm- faldaðist og voru um 70% rauðkálsins sem borið var fram með steikum um jól og áramót innlend framleiðsla. „Tíðarfarið skiptir mestu máli um það hvernig tekst til í ræktuninni. Ræktun á rauðkáli tókst vel þetta árið. Við sáðum einnig í heldur meira land,“ segir Sigrún H. Pálsdóttir, eigandi Garðyrkjustöðvar Sigrúnar á Flúðum, sem er öflug í ræktun á káli. Eftir- spurn eftir rauðkáli er mest í desem- ber og reyna bændur eftir fremsta megni að anna eftirspurninni. Uppskera margfaldast Á sama tíma og innlend framleiðsla jókst, eins og sjá má á meðfylgjandi grafi, dróst innflutningur heldur sam- an þannig að hlutdeild innlenda græn- metisins jókst á milli ára. Framleiðsla á spergilkáli (brokkólí) hefur marg- faldast á síðustu árum. Aukningin hélt áfram á nýliðnu ári. Þá þrefaldaðist framleiðsla á kínakáli. Hins vegar minnkaði uppskera á hvítkáli. Sigrún segir að illgresi hafi leikið hvítkáls- akra hennar grátt síðastliðið sumar og telur hún að það sé ástæðan fyrir sam- drætti í uppskeru í heildina. Þrátt fyrir aukningu í framleiðslu ýmissa káltegunda er meirihluti af- urðanna enn fluttur inn. Það sama á við um helstu tegundir salats. Hins vegar er markaðshlutdeild íslenskra sveppa að aukast. Telur Sigrún að garðyrkjubændur reyni áfram að standa sig og nýta eft- irspurnina sem mest, sérstaklega í hvítkáli og öðrum þeim afurðum sem hafa mikið geymsluþol. Hins vegar séu blómkál, spergilkál og jafnvel kínakál árstíðabundin vara sem ekki hafi mikið geymsluþol. „Ég vona að við fáum gott ræktunarár og hvítkálið verði lengur í búðum næsta vetur,“ segir Sigrún. Ágæt kornuppskera Ágætlega áraði einnig fyrir ræktun á kartöflum, rófum, gulrótum og korni. Þó er framleiðsla minni en var á metárinu 2019. Bændur og tilraunastjórar voru í haust bjartsýnir á uppskeru á korni. Talið var að uppskeran yrði jöfn og góð um allt land. Það hefur að nokkru gengið eftir en þó ná uppskerutölur ekki sömu hæðum og á árinu á undan, samkvæmt bráðabirgðatölum Hag- stofu Íslands. helgi@mbl.is Rauðkálið fimmfaldast Uppskera og afurðir nokkurra tegunda 2020 Hlutfall innlendrar framleiðslu 2020 Innlend framleiðsla 2018 til 2020, tonn Innlend framleiðsla Innflutningur 10.000 8.000 6000 4.000 2018 2019 2020 1.500 1.175 850 525 200 2018 2019 2020 1.100 875 650 425 200 2018 2019 2020 800 675 550 425 300 2018 2019 2020 10.000 8.000 6.000 4.000 2.000 2018 2019 2020 *Þreskt korn. Miðað er við 14% rakainnihald. Heimild: Hagstofa Íslands. Innlend framleiðsla (tonn) Innlend framleiðsla 2020 (%)2018 2019 2020 Blómkál 47 77 90 14% Gulrætur 520 900 659 54% Hvítkál 154 246 214 27% Kartöflur 6.020 8.200 7.379 77% Kínakál 37 30 105 46% Rauðkál 28 33 175 70% Innlend framleiðsla (tonn) Innlend framleiðsla 2020 (%)2018 2019 2020 Rófur 540 1.140 950 98% Salat 403 407 395 31% Spergilkál 45 100 161 27% Sveppir 580 560 611 71% Korn* 3.900 7.900 7.287 Kartöflur Rófur Gulrætur Sveppir Korn* Rófur Kartöflur Sveppir Rauðkál Gulrætur Kínakál 98% 77% 71% 70% 54% 46%  Góð uppskera á káli, kartöflum, korni og annarri útirækt Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Dreifbýlisverslanir eiga mjög erfitt uppdráttar í litlum byggðarlögum víðsvegar um landið en þær gegna viðamiklu hlutverki í að viðhalda byggð. Meðal aðgerða sem nauðsyn- legar eru til að efla rekstur dreif- býlisverslana og snúa vörn í sókn er að koma á samstarfi dreifbýlisversl- ana við verslunarkeðjur til að lækka vöruverð. Einnig þyrfti að koma á fót opinberum fjárstuðningi með styrkveitingum í samræmi við veltu og að þær geti fengið niðurgreiddan hluta flutningskostnaðar. Þá mætti heimila dreifbýlisverslunum að hafa milligöngu um sölu og afhendingu á áfengi í gegnum net- og póstverslun og Samkeppniseftirlitið þarf að fylgja eftir rannsókn á mismunandi viðskiptakjörum birgja til verslana eftir stærð þeirra. Þetta er meðal þess sem fram kemur í rannsóknaskýrslu Emils B. Karlssonar, fyrrverandi forstöðu- manns Rannsóknaseturs verslunar- innar, um vanda verslana í litlum byggðarlögum og hvaða aðgerðir eru skilvirkastar svo þær haldi velli. Skýrslan er birt á vef Byggðastofn- unar Samkvæmt talningu Emils voru í lok síðasta árs um 40 verslanir sem selja dagvöru í byggðarlögum með færri en 700 íbúa víðsvegar um land- ið. Emil heimsótti 22 dreifbýlisversl- anir og fékk ítarlegar upplýsingar og frásagnir um verslunarreksturinn. „Flestar snerust þær um þrauta- göngu og þrautseigju við að halda rekstrinum gangandi. Á flestum stöðum hafði reksturinn farið í þrot minnst einu sinni og ýmsar leiðir farnar til að halda versluninni gang- andi. Í sumum tilvikum hefur end- urreisn verslunar verið með aðkomu íbúanna sjálfra og hugsjónastarfi þeirra sem taka að sér reksturinn, frekar en í hagnaðarskyni,“ segir í skýrslunni. Emil aflaði víða fanga við gerð skýrslunnar og fékk m.a. upplýsing- ar um fyrirkomulag dreifbýlisversl- unar í öðrum norrænum löndum. Meðalverðið 48% hærra Við athugun á verðlagi og álagn- ingu fékk Emil upplýsingar frá verð- lagseftirliti ASÍ og kemur í ljós að meðalverð á vörukörfunni, sem inni- hélt 104 vörutegundir, var 48% hærra í dreifbýlisverslununum en í lágvöruverðsverslunum. Minnstur verðmunur var á mjólkurvörum, eða 24%, og mestur er munurinn á hrein- lætisvörum, eða 80%. Aðspurður segir Emil að rekstur verslana í fámennum byggðum sé nánast borin von án einhvers konar stuðnings og geti verið vítahringur þar sem reksturinn stendur ekki undir sér vegna fámennis en fámenni eykst ef ekki er verslun á staðnum. „Aðalvandinn hjá þessum verslunum er að mínu mati verðlagið. Þær sitja ekki að sömu kjörum og stóru lág- vöruverðsverslanirnar, þær geta ekki nýtt sér stærðarhagkvæmnina og hafa ekki sama kaupmátt og fá ekki sömu afsláttarkjör og stóru keðjurnar. Það er einkennandi að margar þessara verslana kaupa vörur úr lágvöruverðsverslununum og þá er varan búin að fara frá fram- leiðendum til heildsala og þaðan til lágvöruverðsverslana og svo aftur í endursölu í þessum litlu verslunum þar sem fasti rekstrarkostnaðurinn er miklu meiri en hjá þessum stóru. Það gerir að verkum að menn verða að leggja ennþá meira á vöruna,“ segir hann við Morgunblaðið. Þrautaganga og þrautseigja  Vandi dreifbýlisverslana kortlagður Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Brauð Mikill verðmunur er á milli verslana í dreifbýli og þéttbýlinu. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Búast má við hertum sóttvarnaað- gerðum vegna fuglaflensu um miðj- an mars, nema eitthvað gerist sem kallar á að að- gerðir verði hert- ar fyrr, að sögn Brigitte Brugger, sérgreinadýra- læknis alifugla hjá Matvæla- stofnun (MAST). Faghópur fylg- ist með stöðunni og þróun mála. Í honum eru auk Brigitte Gunnar Þór Hallgrímsson, fuglafræðingur og prófessor í dýrafræði við Háskóla Íslands, Vilhjálmur Svansson, dýra- læknir og veirufræðingur á Til- raunastöð HÍ í meinafræði að Keld- um, og Auður Lilja Arnþórsdóttir, sóttvarnadýralæknir hjá MAST. „Farfuglar eru farnir að koma en að öllum líkindum verður tillaga um aukið viðbúnaðarstig send til ráðu- neytisins um miðjan mars þegar þungi farflugsins nálgast,“ sagði Bri- gitte. Hún sagði að þetta geti breyst ef fuglaflensusmit greinist hér á næstu dögum eða vikum. Ekki stendur til á þessu stigi að fanga heilbrigða farfugla til að kanna hvort þeir eru smitaðir. Brigitte segir að það sé ekki góð leið til að vakta fugla- flensu í villtum fuglum og litlar líkur á að finna eitthvað þannig. „Ef eitt- hvað kemur upp á, til dæmis á til- teknum svæðum, þurfum við að meta hvað við gerum,“ sagði Brigitte. MAST hefur óskað eftir því að fólk tilkynni um dauða fugla sem gætu hafa drepist vegna sjúkdóms. Ekki þarf að tilkynna um fugla sem aug- ljóslega hafa drepist vegna slysa eins og að verða fyrir bíl eða eftir að hafa flogið á rúður. Brigitte sagði að tekin hefðu verið nokkur sýni úr dauðum fuglum undanfarið en þau voru ekki jákvæð gagnvart fuglaflensu. Fuglaflensa af stofni H5N8 hefur greinst í nokkrum starfsmönnum ali- fuglabús í Suður-Rússlandi. Ein- kenni sjúkdómsins hjá þeim voru ekki alvarleg. „Farfuglarnir okkar koma ekki frá Rússlandi heldur frá sýktum svæð- um í Vestur- og Norður-Evrópu. Þar hafa ekki fundist neinar vísbending- ar um að fuglaflensuveiran hafi smit- ast í menn,“ sagði Brigitte. Aðgerðir líklega hertar í mars  Vel er fylgst með þróun fuglaflensu Brigitte Brugger

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.