Morgunblaðið - 23.02.2021, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 3. F E B R Ú A R 2 0 2 1
Stofnað 1913 45. tölublað 109. árgangur
ERNA SÓLEY
NÁÐI BESTA
ÁRANGRINUM FLEIRI TREYSTA ALÞINGI
BÆKUR VEITA
SKJÓL FYRIR
MARGA
NÝ KÖNNUN 14 NÝ BÓK BERGLJÓTAR 28NÝTT ÍSLANDSMET 27
Bera sig varla án stuðnings
Tugir lítilla dreifbýlisverslana berjast við að halda velli Lagt til í úttekt að
samið verði við verslunarkeðjur um innkaup Verði heimilað að afhenda áfengi
sem hefur kortlagt vanda dreifbýlis-
verslunar um allt land og lagt fram
sjö tillögur að úrbótum.
Um 40 dagvöruverslanir voru í
byggðarlögum með færri en 700
íbúa um seinustu áramót og hefur
meirihluti þeirra farið í þrot einu
sinni eða oftar. Þessar verslanir
lenda oft í vítahring, þar sem rekst-
urinn stendur ekki undir sér vegna
fámennis og íbúum fækkar ef ekki er
til verslun á staðnum. Verðsaman-
burður sýnir að vöruverð í dreif-
býlisverslununum var að jafnaði
48% hærra en í lágvöruverðsversl-
unum. Greining á minnstu verslun-
unum leiðir í ljós að þær þyrftu að
hafa 66% álagningu til að vera sjálf-
bærar.
Emil bendir á að litlu verslanirnar
í dreifbýli kaupi oft inn úr lágvöru-
verðsverslunum og njóti ekki afslátt-
arkjara. Leggur hann til að komið
verði á samstarfi við stóru verslun-
arkeðjurnar þannig að heimamenn
sem reka verslanir í litlum byggðum
hafi aðgang að innkaupum á svipuðu
verði og lágvöruverðsverslanir til að
lækka vöruverð. Komið verði á fót
markvissum styrkveitingum og
vöruúrvalið breikkað þar sem versl-
anir á landsbyggðinni fái að annast
milligöngu um afhendingu áfengis.
Fram kemur að til skoðunar er hjá
ÁTVR að heimila dreifbýlisverslun-
um geymslu og afhendingu á áfengi,
gegn fastri greiðslu.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Vandi dreifbýlisverslana um allt
land stafar m.a. af óhagkvæmum
innkaupum, samkeppni við lágvöru-
verðsverslanir og háum flutnings-
kostnaði. Honum verður ekki mætt
nema með skilvirkum stuðnings-
aðgerðum stjórnvalda og að fleiri
stoðum verði skotið undir rekstur-
inn. Þetta kemur fram í nýrri rann-
sóknarskýrslu Emils B. Karlssonar, MÞrautaganga og þrautseigja »4
Það er allt fullbókað frá fimmtudegi til sunnudags þessa dag-
ana í Kraumu, náttúrulaug við Deildartunguhver í Borgar-
firði. Framkvæmdastjóri laugarinnar, Jónas Friðrik Hjartar-
son, segir greinilegt að Íslendingar vilji „komast út að gera
eitthvað“, enda sé Covid-þreytan farin að segja til sín.
Krauma er kjörinn vettvangur til þess arna.
Morgunblaðið/Eggert
Allt kraumaði af gleði um helgina
Rauðkálsuppskera var fimmfalt
meiri síðastliðið sumar en árið á
undan og þrefaldaðist í kínakáli. Þá
jókst uppskera á spergilkáli um 61%.
Þetta eru dæmi um aukningu í rækt-
un á káli hér innanlands á síðasta
ári. Á meðan ræktun jókst minnkaði
innflutningur heldur þannig að
markaðshlutdeild innlendrar fram-
leiðslu á káli jókst. Mikill meirihluti
rauðkálsins sem var á diskum lands-
manna um jól og áramót var rækt-
aður hér innanlands.
Sigrún H. Pálsdóttir, eigandi
Garðyrkjustöðvar Sigrúnar á Flúð-
um, segir að tíðarfarið skipti mestu
máli um það hvernig til tekst í rækt-
uninni. Rauðkálið hafi gengið vel
þetta árið. »4
Íslenskt rauð-
kál á jólum
Fimmföld uppskera
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Meðlæti Rauðkálið er ómissandi
með steikinni um jól og áramót.
Góður gangur er á framkvæmd-
unum við byggingu Nýs Landspít-
ala og er vinna á vegum Eyktar
hf., sem sér um uppsteypu með-
ferðarkjarna spítalans, sögð vera
komin á fulla ferð á verksvæðinu
við Hringbraut.
Unnið hefur verið að undir-
stöðum fyrir uppsteypuna og eru
50 til 100 starfsmenn við fram-
kvæmdirnar, sem ganga vel að
sögn Gunnars Svavarssonar, fram-
kvæmdastjóra NLSH ofh. Ýmis
stór útboðsverkefni upp á um ellefu
milljarða króna eru áætluð á árinu.
Segir Gunnar að það stærsta sé
samkeppnisútboð á útveggjum
meðferðarkjarnans og jarðvinna
vegna rannsóknahússins sé á leið í
loftið. Fífilsgata, sem áður hét
Vatnsmýrarvegur, verður boðin út
á vormánuðum. omfr@mbl.is »6
Góður gangur á
vinnu við uppsteypu
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Framkvæmdir Starfsmenn Eyktar vinna á grunni meðferðarkjarnans.