Morgunblaðið - 23.02.2021, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 23.02.2021, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 2021 23. febrúar 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 128.18 Sterlingspund 179.86 Kanadadalur 101.65 Dönsk króna 20.923 Norsk króna 15.239 Sænsk króna 15.508 Svissn. franki 143.4 Japanskt jen 1.2172 SDR 184.99 Evra 155.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 186.5705 Hrávöruverð Gull 1773.75 ($/únsa) Ál 2135.0 ($/tonn) LME Hráolía 63.3 ($/fatið) Brent mun mynda mótvægi við vísitöluna sem við notum. Að auki spyrjum við almenna notendur um vörumerkin sem eru tilnefnd,“ bætir Friðrik við, en hann segir að valferlið hafi tekið lengri tíma en upphaflega var áætl- að. Mikið sé undir hjá fyrirtækjunum og því nauðsynlegt að valferlið sé gegnsætt og ítarlegt. Hann segir að markmið sitt sé að sýna hvernig gott vörumerki líti út og það geti í framtíðinni orðið leið- arljós fyrir þau fyrirtæki sem vilji byggja upp gott vörumerki. „Vöru- merki er ekki bara myndmerki [e. logo]. Vörumerkjafræðin eru djúp heimspeki sem snýst um stefnu fyr- irtækja og tóninn í starfseminni. Þau segja til um hvernig við komum fram sem fyrirtæki, hvernig við tölum við viðskiptavini og hjálpum þeim að tala við okkur. Á tímum samfélagsmiðla eiga fyrirtækin ekki lengur vöru- merkin ein, heldur á fólkið þau með fyrirtækjunum. Vörumerki eru sam- tal. Þau eru ekki markaðsmál, heldur snúast þau um að hámarka arðsemi til hluthafa. Það vill gleymast.“ Friðrik segir að vörumerki hafi aldrei verið mikilvægari en nú og því þurfi að standa faglega að uppbygg- ingu þeirra. Standa öðrum langt að baki Aðspurður segir Friðrik að á Ís- landi hafi mörg sterk vörumerki ver- ið byggð upp í gegnum tíðina, en enn vanti nokkuð upp á að hugað sé nægjanlega vel að þeirri dýrmætu eign sem vörumerki eru. „Það er langtímaverkefni að byggja upp vörumerki sem á að skila arði til framtíðar.“ Friðrik stefnir að því að viður- kenningin verði árleg héðan í frá. „Miðað við viðtökurnar sem við höf- um fengið þá stefnir í að þetta verði árlegur viðburður.“ Vörumerki hámarki arðsemi  Bestu íslensku vörumerkin valin á netinu á fimmtudaginn  Styrkleiki fundinn út frá akademísku sjónarhorni  54 manna dómnefnd úr atvinnulífinu og fræðasamfélaginu  Vilja efla umræðu BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Á fimmtudaginn næsta mun Brandr vörumerkjastofa veita bestu íslensku vörumerkjunum 2020 viðurkenningu í fjórum flokkum, en að sögn Frið- riks Larsen, dósents við Háskóla Ís- lands og eiganda Brandr, er þetta í fyrsta sinn á Íslandi sem slíkar við- urkenningar eru veittar. Verð- launahátíðin verður haldin á netinu en vörumerkin eru flokkuð eftir fyr- irtækjamarkaði og einstaklings- markaði og stærð fyrirtækja, hvort þar starfi fleiri eða færri en 50 manns. Vörumerkin tuttugu og átta sem tilnefnd hafa verið má sjá á myndinni hér til hliðar. Ákveðin aðferðafræði „Við erum að leita að besta ís- lenska vörumerkinu út frá ákveðinni aðferðafræði. Þegar veittar eru svona viðurkenningar eru ýmsir mælikvarðar notaðir eins og NPS- kvarðinn eða ánægjumælingar. Þetta eru ágætar leiðir en þær mæla ekki styrkleika vörumerkis í huga fólks, eins og við erum hér að gera,“ segir Friðrik. Eins og segir á heimasíðu Brandr vill fyrirtækið með valinu efla um- ræðu um mikilvægi góðrar vöru- merkjastefnu. Auk þess að nota vörumerkja- fræðin til að velja sigurvegara, þá mun 54 manna dómnefnd leggja sín lóð á vogarskálarnar. „Valnefndin er skipuð fólki víðs vegar að úr atvinnu- lífinu og fræðasamfélaginu og hún Tilnefnd vörumerki BTCBTB Fyrirtækjamarkaður Starfsfólk vörumerkis 49 eða færri Starfsfólk vörumerkis 49 eða færri Starfsfólk vörumerkis 50 eða fl eiri Starfsfólk vörumerkis 50 eða fl eiri Einstaklingsmarkaður Heimild: brandr vörumerkjastofa „Þetta eru ekki tískustjórnir. Það er gríðarlega mikilvægt að stjórnar- menn búi yfir nægri þekkingu og reynslu,“ segir Þórunn Reynisdóttir, forstjóri ferðaskrifstofunnar Úrvals- Útsýnar, í samtali við Morgunblaðið. Hún er í framboði til stjórnar flug- félagsins Icelandair. Þórunn hlaut þó ekki náð fyrir augum tilnefningar- nefndar sem horfði þess í stað til ann- arra aðila. Lagði nefndin til að stjórn- in yrði áfram óbreytt, en þrátt fyrir það hafa borist tvö önnur fram- boð. Auk Þórunn- ar hefur Steinn Logi Björnsson, fyrrverandi stjórnarformaður Bláfugls, einnig boðið fram krafta sína. Aðspurð segist Þórunn hafa mikla reynslu sem muni nýtast flug- félaginu mjög vel. Hún hafi af þeim sökum ákveðið að láta slag standa og bjóða sig fram. „Ég tel mig eiga fullt erindi inn í stjórn félagsins. Lands- lagið er breytt núna og ég þekki hvernig taka þarf á kostnaði,“ segir Þórunn og bætir við að hún hafi undr- ast mjög vinnubrögð tilnefningar- nefndar. Þannig hafi ákvörðun um hverjum stilla ætti upp í stjórn verið tekin áður en vitað var hverjir ætluðu í framboð. „Þeir voru búnir að senda þetta út áður en þeir sáu hverjir ætl- uðu að bjóða sig fram.“ Hún kveðst nú vera að kynna sín stefnumál fyrir hluthöfum. Segist hún leggja mikla áherslu á reynslu sína erlendis, en auk þess að starfa hjá Icelandair starfaði Þórunn m.a. í Bandaríkjunum um nokkurra ára skeið. „Nú er ég að vinna í þessu og reyna að afla mér nægilega margra atkvæða.“ Telur sig eiga fullt erindi í stjórnina  Þórunn vill komast að hjá Icelandair  Undrast vinnubrögð tilnefningarnefndar Þórunn Reynisdóttir Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Eins og greint var frá í Morgun- blaðinu um síðustu helgi hefur Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) úrskurð- að Íslandspósti (ÍSP) 509 milljónir króna í framlag vegna alþjónustu- byrði ársins 2020, en framlagið nem- ur hreinum kostnaði alþjónustu ÍSP. Ólafur Stephensen, framkvæmda- stjóri Félags atvinnurekenda, segir í samtali við Morgunblaðið að inni í þeirri tölu séu m.a. 126 milljónir króna vegna taps fyrirtækisins sök- um undirverðlagningar á pakka- gjaldskrá Póstsins, sem hefur verið í gildi frá ársbyrjun 2020 og 181 millj- ón króna vegna þjónustu á „óvirk- um“ markaðssvæðum þar sem engu að síður ríkir samkeppni, eins og Ólafur orðar það. „Við erum mjög hissa á framgöngu Póst- og fjar- skiptastofnunar í þessu máli öllu. Í febrúar í fyrra þegar við bentum á að gjaldskrá Íslandspóst yfir pakka væri ólögmæt og fæli í sér undir- verðlagningu og stangaðist á við ákvæði póstlaganna um að gjaldskrá alþjónustu yrði að miðast við raun- kostnað að viðbættri eðlilegri álagn- ingu, þá sýndi Póst- og fjarskipta- stofnun nokkurn myndugleik og krafðist þess af Íslandspósti að sýnt yrði fram á að gjaldskráin stæðist þennan áskilnað laganna. Núna tekst stofnuninni að skrifa fjörutíu blaðsíðna ákvörðun þar sem laga- ákvæðið um að gjaldskrá alþjónustu skuli taka mið af raunkostnaði er hvergi nefnt, eins og það sé ekki til í lögunum. Og okkur finnst þetta í hæsta máta óeðlilegt og ófaglegt, og berum brigður á þessa ákvörðun,“ segir Ólafur. Grefur undan samkeppni Segir hann einnig að stjórnvöld geti ekki látið viðgangast að ríkisfyr- irtækið undirverðleggi pakkaflutn- inga og grafi þannig undan rekstri keppinauta um allt land. Óeðlilegt og ófaglegt  Framkvæmdastjóri FA gagnrýnir Póst- og fjarskiptastofnun Morgunblaðið/Hari Sendingar Pósturinnn fékk 126 milljónir kr. vegna pakkagjaldskrár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.