Morgunblaðið - 12.02.2021, Síða 2
Hvernig er morgunrútínan þín?
„Ég vakna um 7:30 og vek strák-
ana mína og kem þeim af stað í
skólann. Ég fer svo yfirleitt sjálf
upp í CrossFit XY þar sem ég tek
æfingu með þjálfurum í stöðinni.
Að lokinni æfingu kem ég mér
svo á skrifstofuna að vinna.“
Hvað borðar þú í morgunmat?
„Síðustu átján mánuði hef ég
að öllu jöfnu fylgt 16/8 föstu og
því ekki borðað morgunmat en
ég blanda mér alltaf Unbroken í
vatn. Unbroken er undraefni
sem inniheldur amínósýrur,
steinefni og vítamín og mér
finnst þetta efni
nýtast mér mjög
vel sem bætiefni
og fyrir „reco-
very“ milli æf-
inga.“
Hvernig æfir þú?
„Ég æfi CrossFit 5-7
daga vikunnar. CrossFit
er frekar fjölbreytt æf-
ingakerfi sem gerir æf-
ingarnar mjög breyti-
legar. Suma daga er
mikið af lyftingum á með-
an aðra daga eru þetta
hlaup og fimleikaæfingar.
Ég æfi yfirleitt á morgnana og
stundum bæti ég við æfingu seinni
partinn en oftar reyni ég að fara út á
fjallahjólið, fjallaskíðin, snjóbrettið eða bara í
góðan göngutúr með hundana mína.“
Hver er þinn uppáhaldsheilsustaður?
„Það eru ekki margir heilsustaðir eftir á Ís-
H
vað er góð heilsa?
„Góð heilsa skilar sér best að
mínu mati með góðu jafnvægi á
andlegri, félagslegri og lík-
amlegri heilsu þar sem þessir
þættir ná að rækta hver annan.
Gott líkamlegt form hefur skilað sér til mín í
auknum lífsgæðum og ánægju. Ég hreyfi mig
til þess að geta leikið mér og notið lífsins í frí-
tíma með vinum og fjölskyldu á fjallaskíðum,
snjóbretti, hjóli eða öðru sem mig langar að
gera. Það nærir mig persónulega og veitir mér
ánægju. Það getur aftur á móti verið stutt á
milli þess hvort líkamleg heilsumarkmið fólks
skili jákvæðum eða neikvæðum áhrifum á and-
lega og félagslega heilsu. Sem fyrrverandi af-
rekskona í íþróttum og eigandi CrossFit XY þá
hef ég oft orðið vitni að því hvernig öfgakennd
þyngdar- og/eða árangursmarkmið geta orðið
til þess að fólk þróar með sér kvíða og ein-
angrar sig félagslega. Sömuleiðis getur tíma-
skortur vegna vinnu- og/eða fjölskyldu-
aðstæðna orðið til þess að fólk á erfitt með að
huga að líkamlegri heilsu og það virðist alltaf
enda með að bitna á andlegri heilsu og jafnvel
félagslegri þar sem fólki líður illa og á jafnvel
erfitt með að hitta aðra.“
Hvernig hugsar þú um heilsuna?
„Allt er gott í hófi! Við þurfum að sofa, við
þurfum að nærast, við þurfum að hreyfa okkur
og við þurfum að hlæja með góðum vinum. Ég
reyni að halda sem bestu jafnvægi á þessum
þáttum án þess að það fari í einhverjar öfgar.
Flesta daga reyni ég að borða hollt en þegar
það stendur eitthvað til þá leyfir maður sér að
borða góðan mat og fá sér eftirrétt. Sama með
svefn og hreyfingu, ég reyni að halda reglu á
þessu, en það er nauðsynlegt að gefa sér smá
sveigjanleika.“
landi en sem betur
fer eigum við marga
mjög góða veitinga-
staði þar sem er
hægt að fá góðan og
heilsuríkan mat. Mér
finnst gott úrval af
léttum réttum á Rok
og Duck and Rose.
Fyrir grænmetis/
vegan-mat þá
eru Zumac og
Hosiló mínir
uppáhalds.
Sem gott
millimál verð
ég að benda á keto-barina frá
Goodgood. Rasberry colla-
gen-barinn er mitt uppáhald
og svo er ég alltaf með
Hleðslu í töskunni.“
Uppáhaldssnjallforrit?
„Wodify fyrir CrossFit,
WhatsApp fyrir viðskipti, In-
stagram/Facebook fyrir vina-
samskipti.“
Hvað er „girlpower“ í þínum huga?
„Að hafa sjálfstraust til að fylgja eftir þín-
um skoðunum, hugmyndum og verkefnum án
þess að láta aðra hafa áhrif á þig. Smá svona „I
don‘t give a fuck“-viðhorf.“
Hvað geta konur gert til að komast áfram?
„Það komast flestir áfram á því að leggja inn
vinnu og skara fram úr á sínu sviði. Ég hef eng-
ar áhyggjur af því að konur komist ekki áfram
á næstu árum. Það eru svo margar flottar og
frambærilegar konur að vinna sér inn víðtæka
reynslu á mismunandi sviðum innan atvinnu-
lífsins, í stjórnmálum, fjölmiðlum og á fleiri
stöðum. Á réttum tíma munum við sjá konum
fjölga. Ég hef frekar áhyggjur af því að það fari
að halla á karlmenn eftir nokkur ár. Við þurfum
að tryggja ákveðið jafnvægi því við erum mis-
jöfn og það er mín skoðun og reynsla að við er-
um sterkari saman.“
Uppáhaldsfatamerki?
„Balmain og Saint Laurent í lúxusmerkjum,
Selected og Tommy Hilfiger í skrifstofuklæðn-
aði, Nike og Lululemon í íþróttafatnaði.“
Hvað er í snyrtibuddunni þinni?
„Ég passa að það sé ekkert of mikið því ég
týni henni reglulega og þá fer ég í MAC og þær
hjálpa mér að velja saman vörur og leggja mér
línurnar í förðunarrútínu.“
Hvað værir þú að gera ef þú værir ekki í þínu
starfi?
„Örugglega eitthvað mjög skemmtilegt!“
Hvað dreymir þig um að eignast?
„Ég er glöð með allt sem ég á og óska þess
helst að sjá strákana mína stækka og fullorðn-
ast og lifa innihaldsríku lífi. Strákarnir mínir
skilja hins vegar ekki af hverju mig dreymir
ekki um að eignast Teslu. Draumarnir breytast
líklega eitthvað með aldrinum.“
Svanhildur
Nanna Vigfús-
dóttir fjárfestir.
Svanhildur
Nanna notar
mikið Face-
book og
Instagram.
Balmain er eitt
af uppáhalds-
merkjunum.
Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, fjárfestir, stjórnarmaður og eigandi CrossFit XY,
borðar yfirleitt ekki morgunmat og reynir að hugsa eins vel um sig og hún getur. Hún
segir að „girlpower“ sé að hafa nægt sjálfstraust til að láta drauma sína rætast.
Marta María | mm@mbl.is
Konur geta gert
allt sem þeim sýnist
Þessi keto-
bar frá Go-
od Good er
í miklu
uppáhaldi.
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021
Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is,
Elínrós Líndal elinros@mbl.is Auglýsingar Katrín Theódórsdóttirkata@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumyndina tók
Eggert Jóhannesson
F
ólk upplifði mikil vonbrigði í liðinni viku þegar í ljós kom
að Íslendingar yrðu ekki notaðir sem tilraunadýr í
bóluefnaheiminum. Forréttindafólk var farið að sjá sæng
sína upp reidda eða réttara sagt sjá sjálft sig fyrir sér sól-
bakað og sællegt í suðurhöfum (með risakampavíns-
flösku). Hinir, venjulega fólkið í landinu sem hefur
kannski misst vinnuna, vonuðu að með bóluefnabingóinu myndu lífs-
gæði aukast.
Ég skil alveg þessi vonbrigði en minni á að lífið er ekkert búið þótt
þetta hafi farið svona. Fólk getur eflst í mótlæti og hefur oft og tíðum
gott af því að endurhugsa hlutina til þess að ná fram einhvers konar
bestun á eigin tilveru.
Ég veit hvernig er að missa vinnuna en það gerðist tvisvar fyrir
meira en áratug. Í fyrra skiptið var ég í fæðingarorlofi þegar tímaritið
sem ég ritstýrði var selt til samkeppnisaðilans. Fyrirtækið sem ég vann
hjá bauð mér reyndar starf sem mér fannst ekki sambærilegt fyrra
starfi og þess vegna hafnaði ég því. Stuttu seinna fékk ég reyndar starf
en játa alveg að það var ekki draumastarfið. Rúmu ári seinna var ég
aftur rekin þegar efnahagslífið fór á hliðina vegna bankahrunsins.
Þá var staðan aðeins snúnari vegna þess að það var ekki eins og það
væri eitthvað hægt að velja úr draumastörfum. Á þessum tíma stóð
fólk í röð fyrir utan Vinnumálastofnun til að sækja um atvinnuleys-
isbætur. Það er áfall fyrir fólk sem hefur alla sína ævi unnið mikið og
verið jafnvel í aukavinnu og aukaaukavinnu að standa uppi atvinnu-
laust. Það er ekki hægt að segja við fólk í þessari stöðu að það eigi
bara að standa í lappirnar og láta drauma sína rætast. Það lætur eng-
inn drauma sína rætast þegar hann á ekki fyrir mat.
Það sem ég lærði hins vegar af því að vera rekin tvisvar er að ég
komst að því hvað ég vildi nákvæmlega gera við líf mitt. Ég vildi koma
með birtu og yl inn í líf fólks með skemmtilegum fréttum af fólki. Mig
langaði að taka viðtöl við fólk með sögu og geta skrifað linnulaust um
mín helstu áhugamál. Þannig varð Smartland til og hefur síðan þá
bara vaxið og dafnað.
Frá því Smartland fór í loftið hef ég staðið og fallið með því sem ég
geri á hverjum degi. Það er mjög langt frá því að hafa alltaf verið auð-
velt en ég hef gert það því ég hef ástríðu fyrir vinnunni. Ef mér væri
sama um vinnuna þá væri Smartland ekki að halda upp á 10 ára af-
mæli sitt í maí. Á þessum tíu árum hef ég oft verið spurð að því
hvert sé mitt plan B. Ég hef aldrei getað svarað þeirri spurningu
því ég hef aldrei verið með plan B. Ég trúi því að fólk sem er alltaf
með plan B sé ekki að vinna af fullri ákefð. Ef við erum alltaf að
hugsa um að við gætum verið að sigra heiminn annars staðar þá
náum við ekki hámarksárangri í því sem við gerum. Þú þarft að
vera ánægð/ur með hlutskipti þitt því þannig getur þú gert bet-
ur og vaxið. Svo er ágætt að minna sig á að þakka fyrir það sem
við höfum og klappa sér á bakið. Eða eins og Héðinn Unn-
steinsson, kaffivinur minn og höfundur bókarinnar Vertu úlfur,
segir í Lífsorðunum 14: „Láttu þig langa í það sem þú hefur.“
Láttu þig langa í það
sem þú hefur
Marta María Jónasdóttir