Morgunblaðið - 12.02.2021, Blaðsíða 8
S
igrún hefur að mestu búið, stundað nám og starfað erlendis eftir að
hún lauk námi í arkitektúr við Tækniháskólann í Karlsruhe, Þýska-
landi og upplýsingaarkitektúr við Tækniháskólann í Zürich, Sviss. Í
kjölfarið hóf hún störf sem upplýsingaarkitekt og síðar deildarstjóri
hjá Landmat, sem sérhæfði sig í viðskiptalegri hagnýtingu land-
upplýsinga. Sigrún hóf nám með vinnu í tölvunarfræði eftir að hafa
tekið þátt í FrumkvöðlaAuði þar sem hún lærði að gera viðskipta-
áætlanir. Þaðan lá leiðin í stjórnendastörf hjá upplýsingatæknifyrir-
tækjum á Íslandi, fyrst hjá veffyrirtækinu Innn þar sem hún sneri 7 ára í taprekstri á
skömmum tíma í hagnað. Eftir þá reynslu tók hún við stjórn Tæknivals aðeins 33 ára
gömul uns það var selt 15 mánuðum síðar. Eftir það tók við frekari uppbygging á Innn
uns fyrirtækið var selt til 365 árið 2007 og síðar sama ár til Kögunar, sem sameinaði það
veffyrirtækinu Eskli. Eftir sameiningu Eskils og Innn lá leið Sigrúnar til London til að
klára Executive MBA-nám sem hún hafði stundað með vinnu. Sigrún útskrifaðist með
EMBA árið 2008 og flutti í kjölfarið til Sviss þar sem hún tók við framkvæmdastjóra-
Áætlar að velta
milljarði á þessu ári
Á síðustu sjö árum hefur Sigrún Guðjónsdóttir haft
yfir milljarð í tekjur af því að hjálpa konum úti um allan
heim að byggja upp þekkingarfyrirtæki á netinu. Sigrún
á og rekur alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki í Sviss. Hún er
alþjóðlegur viðskiptaráðgjafi (e. business coach) og
TEDx-fyrirlesari. Hún framleiðir hlaðvarpið The Sigrun
Show, er með vikulegan þátt á YouTube og er reglu-
legur viðmælandi úti um allan heim.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
SJÁ SÍÐU 10
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021