Morgunblaðið - 12.02.2021, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021
stöðu hjá svissnesku lækningatæknifyrirtæki. Hún þurfti að
hætta í því starfi vegna stoðverkja og var hún óvinnufær í 7 mán-
uði vegna verkja. Eftir það tók hún við sem framkvæmdastjóri
íslenska fyrirtækisins InfoMentor í Sviss. Ári síðar lagði hún til
að fyrirtækið réði frekar framkvæmdastjóra í Þýskalandi til að
spara kostnað og lét þá af störfum.
Vill aðstoða konur við að ná draumum sínum
Árið 2014 stofnaði Sigrún ráðgjafarfyrirtæki í Sviss með það
að markmiði að aðstoða konur við að byggja upp þekkingarfyr-
irtæki á netinu. Á aðeins sjö árum hefur Sigrún byggt upp al-
þjóðlegt ráðgjafar-fyrirtæki sem áætlað er að haldi sínum árlega
30% vexti. Viðskiptavinir Sigrúnar eru yfir 3.000 talsins og hún
hefur aðstoðað konur á öllum aldri og frá öllum heimshornum við
að byggja fyrirtæki frá engu og upp í hundruð milljóna króna í
tekjur. Hennar tilgangur er að stuðla að jafnrétti með því að val-
defla konur.
„Konur í öðrum löndum hafa ekki haft sama uppeldi og kona á
Íslandi og hafa ekki upplifað jafnrétti á sama hátt og ég hef gert.
Með því að vinna með konum
út um allan heim hef ég meiri
áhrif á jafnrétti í heiminum.
Hver einasta kona sem fer á
námskeið hjá mér lærir ekki
bara að búa til þekkingarfyr-
irtæki á netinu, hún lærir líka
að setja sig í fyrsta sæti, að
hennar draumar eru einhvers
virði og síðast en ekki síst fer
hún að trúa á sjálfa sig. Það er
það besta við þetta allt saman.
Ég gef konum þá trú að þær
geti allt.“
Sigrún hefur gaman af því
að tala um peninga og segir að
það eigi ekki að vera skömm
yfir því.
„Konur eiga að hugsa meira
um veltutölur því þá getum við
saman stuðlað að meira jafn-
rétti. Það kostar að hafa áhrif
og breyta heiminum og konur
eru betri í því að láta peninga
gera góða hluti. Ég hef haft
yfir milljarð í tekjur á sjö ár-
um. Ég býst við yfir milljarði í
tekjur á þessu ári. Ég er ekki
að afla tekna til að sitja á pen-
ingunum heldur til að hafa
áhrif og breyta heiminum, á
sama tíma mun ég auðvitað
láta drauma mína rætast.“
Sigrún býr með eiginmanni
sínum Martin Uetz rétt fyrir
utan Zürich í Sviss og kann
því vel að vera með eigin fyrir-
tæki og þannig stjórna því
sem hún gerir daglega.
„Við eigum að finna tilgang
okkar og finna út hvernig við
getum lifað af því að lifa okkar
tilgang. Þetta hljómar betur á
ensku með orðum Oprah:
„You’ve got to follow your pas-
sion. You’ve got to figure out
what you love, who you really
are and have the courage to do that. I believe the only courage
anybody ever needs is the courage to follow your own dream.“
Konur verða að hugsa stærra
Ef Sigrún ætti eina ósk í dag þá væri það helst ósk um jafn-
rétti.
„Konur verða að hugsa stærra. Of margar konur sætta sig við
litlar tekjur og lítil fyrirtæki. Fleiri og fleiri konur stofna fyrir-
tæki í dag en þau eru lítil og oft svo lítil að konur hafa ekki al-
mennilegar tekjur af þeim og því skapast heldur engar eignir.
Margar konur halda að stærra fyrirtæki sé meiri vinna en því er
einmitt öfugt farið. Eftir því sem fyrirtæki mitt stækkar minnk-
ar vinnan mín. Ég get ráðið fólk til að gera það sem mér finnst
ekki gaman að gera eða vil ekki gera. Stærra fyrirtæki skapar
meiri tekjur og þá skapast alvöru verðmæti í formi eigna. Með
stærra fyrirtæki hef ég efni á að gera hluti sem ég áður lét mig
bara dreyma um. Sem dæmi borgaði ég á síðasta ári niður 10
milljóna króna íbúðalán af íbúð sem ég keypti fyrir 19 árum. Ég
borgaði niður 10 milljóna króna námslán og keypti nýja íbúð. Á
sama tíma er að ég gefa til baka og hjálpa konum sem lentu í erf-
iðleikum vegna kórónuveirunnar. Það er hægt að byggja upp
eignir og hjálpa öðrum í leiðinni, en bara ef konur hugsa stærra.“
Hún segir mikilvægt að leggja áherslu á tekjurnar, áður en
farið er í mikinn kostnað og að gott sé að fá viðskiptavininn til að
fjárfesta áður en farið er í viðskiptaþróun.
Tímakaup hennar sem viðskiptaráðgjafi gefur til kynna vel-
gengni hennar, en sem stendur kostar klukkustund með henni
2.500 bandaríkjadali.
Í janúar á þessu ári seldi hún tæplega fimm hundruð konum
og nokkrum körlum SOMBA (Sigrun’s Online MBA) netnám-
skeiðið sitt og bjó þannig til tæplega 150 milljónir íslenskra
króna í tekjur. Nú er námskeiðið rekið af teyminu hennar á með-
an hún skipuleggur næstu markaðsherferð.
Tilgangur hennar er að valdefla aðrar konur til að láta drauma
sína rætast í gegnum fyrirtækjarekstur og ná þannig fram
meira jafnrétti. Enda segir hún ekkert vit í því að vinna við eitt-
hvað sem ekki er hægt að lifa almennilega á.
Hún segir að í fyrsta skiptið sem hún bjó til mikla peninga hafi
hún fengið samviskubit sem hún skoðaði með ráðgjafa og komst
yfir. Í dag á hún skilið að eiga fullt af peningum enda kostar heil-
mikið að breyta heiminum. Hún er hamingjusamlega gift og
klæðist alltaf rauðu. En svona hefur lífið hennar Sigrúnar ekki
alltaf verið.
Alin upp við að trúa á sjálfa sig
,,Ég var alin upp við að trúa á mig og fékk aldrei á tilfinn-
inguna að ég gæti ekki gert eitthvað. Ég hef alltaf verið námfús
og sem dæmi um það er norðlenski hreimurinn sem ég tileinkaði
mér á leikskólanum. Ég tók þennan hreim upp frá leikskóla-
kennara sem ég kunni að meta og var að norðan. Ég hef eins allt-
af elskað sögur og sagði ég sjálfri mér sögur þegar ég var stelpa.
Í raun var ég búin að ákveða að ég ætlaði að verða rithöfundur
um leið og sagan mín sem ég skrifaði í sex ára bekk var valin í
upplestur í Ríkisútvarpinu á sínum tíma. Mér snerist þó fljótt
hugur þegar ég heyrði af því að fáir rithöfundar gætu lifað af
tekjunum sínum. Þá ákvað ég að verða kennari, þar til kenn-
araverkfallið skall á og ég uppgötvaði að kennarar væru með
mjög lág laun.“
Í grunnskóla elskaði Sigrún einnig að teikna, svo hún tók upp
á því að teikna falleg hús fyrir samnemendur sína. Þau voru ekki
af verri endanum; flest voru með sundlaugum og sum með hesta-
búgörðum ef því var að skipta.
Námskeiðið sem breytti lífi hennar
En af hverju velur Sigrún að hugsa svona stórt?
„Ég valdi að fara í Menntaskólann í Reykjavík. Á þessum
tíma gekk ég í fatnaði sem ég saumaði sjálf. Mig langaði að
læra að sníða eins og sérfræðingur og skráði mig því í námskeið
hjá móður Sævars Karls. Þetta námskeið breytti lífi mínu. Við
vorum átta talsins og allt konur komnar yfir fertugt að mér
undanskilinni sem var sextán ára. Námskeiðið var kvöld-
námskeið sem stóð yfir í átta vikur og ræddu konurnar einlægt
um líf sitt og tilgang. Það sem þær áttu sameiginlegt var að þær
höfðu allar fórnað lífinu fyrir drauma eiginmanna sinna og
barna. Ég kom mjög reið út af þessu námskeiði. Ég var ekki
reið út í konurnar sjálfar heldur samfélagið. Af hverju skiptu
draumar karla meira máli en draumar kvenna? Það var á þess-
um tímapunkti í lífinu sem ég ákvað að eignast ekki börn og ég
hef staðið við það. Í raun var ég svo reið að ég leyfði ekki einu
sinni karlmönnum að halda hurðum opnum fyrir mig. Þetta
tímabil stóð yfir í nokkur ár og ég man eftir því að hafa verið
boðið að ganga í gegnum dyraop, en að hafa afþakkað pent fyrir
og opnað mínar dyr sjálf.“
Allt frá því Sigrún fór á sníðanámskeiðið ákvað hún að verða
hreyfiafl fyrir aðrar konur í lífinu. Það tók hana stóran hluta af
lífinu að komast að því hvernig hún gæti gert það, en í sjö ár; eða
allt frá stofnun Sigrun.com hefur hún leitt konur áfram í frum-
skógi nýsköpunar.
Sigrún segir leiðina sem virkar vera hluti sem hún gerði eftir
margar tilraunir af einhverju sem ekki gekk upp. Hún segir að
þó fólk hafi áratuga reynslu og mikla menntun þá sé allt öðruvísi
að beisla hæfileikana sem búa innra með okkur og laða til sín við-
skiptavini sem eru tilbúnir að kaupa það. Hún segir að þó að það
sé auðvitað gott að kunna að gera viðskiptaáætlanir og markaðs-
setningu, þá sé algjör óþarfi að fjárfesta of mikið í slíkri þekk-
ingu áður en þú veist hvað fólk vill kaupa af þér. Þegar viðskipta-
vinirnir mæta og kaupa, sé góður tími til að búa til vöruna.
Laðar fólk til sín en ekki öfugt
,,Ég laða fólk til mín í gegnum netið. Ef fólki líkar vel við mig
þá getur það unnið með mér, annars finnur það einhvern annan
að vinna með sem hentar því betur. Ég hef gert yfir fjögur
hundruð hlaðvarpsþætti og mörg hundruð vefkynningar og deili
því eigin reynslu af því sem virkar í stað þess að vísa í dæmi sem
aðrir mæla með að gera.“
Sigrún hefur fjölhæfa reynslu sem stjórnandi í fyrirtækjum
annarra. Hún lærði upprunalega arkitektúr í Þýskalandi, og
starfaði síðan við tölvunarfræðideild Háskólans í Karlsruhe áður
en henni var boðið að koma til Sviss og læra tölvutengdan arki-
tektúr. Það var þar sem hún fékk fyrst brennandi áhuga á upp-
lýsingatækni.
Árið 2000 ákvað Sigrún að hún vildi koma heim aftur og eftir
nokkur atvinnutilboð fékk hún starf hjá Landmat. Hún missti
það starf árið 2002 og fór þá á þriggja mánaða námskeið hjá
FrumkvöðlaAuði.
Á þessum tíma var systir Sigrúnar að starfa fyrir upplýsinga-
fyrirtækið Innn og réð Sigrún sig þangað sem ráðgjafa í vef-
málum.
,,Innn var með góðan viðskiptavinahóp og varð ég fljótt verk-
efnastjóri yfir sölumálum þeirra. Eftir ár í starfi var Innn selt,
en það var eitt af þrjátíu fyrirtækjum sem Jón Ólafsson seldi á
Íslandi á sínum tíma. Ég vissi lítið stöðuna á fyrirtækinu þá, en
ég og systir mín höfðum haldið utan um öll sölumál um tíma, þar
sem framkvæmdastjórinn var í hlutastarfi.
Eftir að hafa rætt við nokkra aðila, þar á meðal fjölskylduna
mína, ákvað ég að reyna að fá starf sem framkvæmdastjóri. Ég
hafði samband við Guðrúnu Tinnu Ólafsdóttur sem hafði verið
nágranni minn í æsku og spurði hana hvort hún vissi eitthvað
hver myndi taka við fyrirtækinu. Til að gera langa sögu stutta þá
gerði ég tveggja síðna minnisblað um stöðuna og framtíðarsýn,
Sigrún ætlar að velta
milljörðum íslenskra
króna á þessu ári.
SJÁ SÍÐU 12