Morgunblaðið - 12.02.2021, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.02.2021, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021 Sigríður Helga Gunnarsdóttir sérfræðingur „Ég myndi segja aðalatriðið að líða vel í fötunum. Ég hef alltaf verið fata- kona og hef óskaplega gaman af því að fylgjast með tískunni. Einu sinni gat maður nánast farið í allt en með aldrinum þá er bara ýmislegt sem fer yngri stúlkum og konum betur svo það þarf að velja úr hvað hentar manni. Það er svo margt smart í tískunni sem hægt er að pikka út sem er unglegt og ferskt en samt ekki eins og þú sért í samkeppni við ungu stúlkurnar. Litir og munstur gera miklu meira fyrir mann á sextugsaldri en svart og grátt. Við ættum eins ekki að vera hræddar við að blanda alls konar flíkum saman, enda er tíska ekkert háal- varlegt mál, bara skemmtileg tjáning, og það þarf ekkert öllum að finnast það sama flott. Aðalatriðið er að þú kunnir vel við þig í fötunum. Aðrir skynja það og ert töff að mínu mati.“ Bára Hólmgeirsdóttir fata- hönnuður og eigandi Aftur „Mér finnst mikilvægt að fylgja sínum stíl og hlaupa ekki á eftir tískustraumum. Einnig að huga að velferð jarðarinnar.“ Hildur Hafstein hönnuður „Mestu máli skipta klæðileg snið, þægindi og fal- leg efni og litir. Annars verða góðar gallabuxur oftast fyrir valinu hjá mér.“ Anna Margrét Jónsdóttir ferðamálafrömuður „Mestu máli skipta að mínu mati flottir og vandaðir skór og belti. Annars hafa peningur ekkert að gera með stíl – flottast er að vera eins og manni líður best. Þá er maður töff. Ég er náttúrlega skósjúk og á allt of mörg skópör og allt of margar yfirhafnir. Þetta er áhugamál hjá mér en í leiðinni veikleiki.“ Inga Lind Karlsdóttir framleiðandi og eigandi Skot Productions „Það er merki um bæði þroska og góðan smekk að klæða sig eftir veðri og aðstæðum. Fatavalið fylgir klárlega tískustraumum að einhverju leyti en ég vil samt ekki klæðast fötum sem fara mér ekki vel bara af því þau eru „trendy“. Mér hefur reynst vel að velja flíkur úr vönduðum efnum sem endast vel. Sumt af því sem ég nota í dag keypti ég jafnvel fyrir hrun. Annars fæ ég oft einhver föt á heilann og klæðist fáu öðru en akkúrat þeim yfir ákveðinn tíma. Núna er ég til dæmis með svartan ullarsamfest- ing á heilanum. Er í honum daginn langan, alsæl og ekkert kalt, sama hvort ég er úti í tökum, leikhúsi eða bara heima. Kannski er ég að verða eins og Churchill. Hann var alltaf í samfestingi. Enda smekkmaður. Svo virðist ég hafa minni þolinmæði fyrir háum hælum eftir því sem ég eldist og fagna til dæmis stígvélum með lágum hæl en helst þó öllum þessum þúsundum af fallegum strigaskóm sem eru komnir á mark- aðinn.“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir nýsköpunarráðherra „Ég er með heldur vesenslausan eða afslappaðan stíl. Ég klæði mig svo- lítið eftir skapinu sem ég er í. Mér finnst skipta máli að máta flíkur við vaxtarlag og karakter. Þá reyni ég ekki að klæðast flíkum sem fara mér ekki þótt þær séu töff á öðrum. Annars er þetta ekki mjög úthugsað. Ég sé Dísulegar flíkur og vel þær. Hef aukið töluvert val á íslenskri hönnun enda fram- boðið meiri háttar og gaman að klæðast henni.“ Marta Nordal leikhússtjóri Leik- félags Akureyrar „Mér finnst aðalatriðið að velja föt sem klæða mann vel og draga fram það besta á líkamanum. Ekki elta tískustrauma í blindni sem hugsan- lega passa manni ekki eða vera í snið- lausum fötum sem hanga afstöðulaus utan á skrokknum. Bara einhverjar brjóstalausar mjónur geta púllað slíkt en venjulegar konur eins og ég verða eins og tunnur. Ég vel alltaf föt sem eru „tailored“ eða undirstrika línurnar án þess að vera þröng því of þröng föt eru ekki sérstaklega klæði- leg á miðaldra konum. Ég nota mjög mikið „blazera“ því þeir teikna vel efri hlutann og gefa skemmtilegt við- horf, svo er ég hrifin af beltum, flott- um blússum, stuttum pilsum, galla- buxum og hælaskóm, svona „french chic“. Mér þykir mikilvægt að vera alltaf í vönduðum skóm og með vel hirt hár. Alveg sama hversu fínt þú ert klædd þá geta ljótir og ódýrir skór eða slitið og þurrt hár eyðilagt heildarútlitið. Svo má skreyta með flottum fylgihlutum og töskum. Ég legg líka áherslu á að kaupa frekar vönduð hversdagsföt en eyða fúlgu í einhvern síðkjól sem þú ferð í einu sinni á ári. Eyða meiru í það sem maður notar daglega enda er það mitt mottó að hlutur er ekki dýr ef þú notar hann.“ Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir GDRN tónlistarmaður „Það sem skiptir máli í fatavali er að vera óhræddur að tjá sig með fatn- aðinum sem maður klæðist, og númer eitt, tvö og þrjú að klæðast því sem lætur manni líða vel.“ Gríma Björg Thorarensen innanhússhönnuður „Það skiptir mig máli að velja föt með sniði sem passar mér vel og föt úr góð- um efnum sem endast vel. Ég kaupi mér ekkert voðalega oft föt og vel að eiga færri og vönduð föt en fullan skáp af dóti sem ég nota aldrei.“ Best klæddu konur Íslands Ísland er fullt af fallega klæddum konum. Les- endur Smartlands völdu þær allra smekklegustu þegar kemur að klæðaburði. Í framhaldinu voru þessar best klæddu teknar tali og deila þær hugmyndafræði sinni þegar kemur að því að raða fötum þannig að heildarmyndin verði góð. Anna Margrét Jónsdóttir. Hildur Haf- stein. Marta Nordal. Morgunblaðið/Árni Sæberg Bára Hólmgeirs- dóttir. Ljósmynd/Saga Sig GDRN. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. Ljósmynd/Auðunn Níelsson Inga Lind Karlsdóttir. Ljósmynd/Haraldur Guðjónsson. Gríma Björg Thor- arensen.  SJÁ SÍÐU 26 Sigríður Helga Gunn- arsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.