Morgunblaðið - 12.02.2021, Blaðsíða 53
ég dugleg að prófa mig áfram með
þær. Það sem ég er að nota núna er
sjampó og næring úr Elilxir Ultime-
línunni. Ég geri það til að fá meira líf
og glans í hárið.“
Hvaða hitavörn notarðu í þitt hár?
„Ég nota Nectar Thermique-
hitavörnina frá Kérastase.“
Hún segir einkennilegt til þess að
hugsa að við konur erum oft með
snúð í hárinu á kvöldin að bera á okk-
ur fín og dýr krem, en gleymum svo að bera góð efni í hárið okkar
á sama tíma.
„Ef við viljum hafa fallegt, glansandi ræktarlegt hár, verðum
við að muna að djúpnæra hárið eða nota gott serum í það.“
Mikil sjálfsvirðing að vera með fallegt hár
Hvað gerir serum?
„Sem dæmi þá er Nutritive 8 klukkustunda nætur-serumið
æðislegt efni fyrir svefninn. Það vinnur í skemmdum í hárinu og
gefur betri glans og nærir það; án þess að hárið verði feitt eða
þungt daginn eftir.
Eins geturðu notað æðislega hitavörn í hárið um kvöldið þegar
þú átt von á að klukka hárið um morguninn. Þá vinnur vörnin í
M
argrét Ósk, hársnyrtisveinn á Hárgreiðslustofu
Hrafnhildar, verður meistari í faginu sínu eftir
þrjá mánuði. Hún er fegin að náttúrulegt og
heilbrigt hár sé komið aftur í tísku og er búin að
tileinka sér litunaraðferð sem er vinsæl um
þessar mundir.
„Nú eru náttúrulegir litir allsráðandi og köldu tónarnir að fara
meira út. Hárið er litað með „balayage“-litaaðferðinni þar sem
fagaðilinn handlitar hárið.
Með aðferðinni má ná fram mildri lýsingu í hárið og það verður
ræktarlegra og virkar þannig þykkara.
Við erum ekki að notast við álpappír eins og þegar hárið er
strípað svo þessi aðferð ýtir undir glæsileika konunnar.“
Margrét Ósk segir að „balayage“-litaaðferðin sé ekki kennd í
náminu, heldur hafi hún komið til landsins í gegnum samfélags-
miðla.
Hvernig hugar þú að þínu eigin hári?
„Með því að nota alltaf góðar hárvörur og hitavörn. Ég reyni
sem minnst að nota aflitun í mitt hár og lita mig með „balyage“-
aðferðinni tvisvar til þrisvar á ári.
Það dugar mér alveg.“
Margrét Ósk er dugleg að prófa sig áfram þegar kemur að hár-
vörum en er mikið fyrir Kérastase-vörurnar núna.
„Við erum með nóg af góðum hársnyrtivörum í landinu og er
Margrét Ósk er ánægð með hártísk-
una um þessar mundir.
hárinu yfir nótt-
ina. Djúpnær-
ingar eru einnig
mikilvægar á
þessum árstíma
og má finna alls-
konar djúpnær-
ingar í hárið eft-
ir því hvað er
þörf að byggja
upp tengt raka.“
Margrét Ósk notar djúpnæringuna Hydrate-me frá Kevin
Murphy þessa dagana, og getur mælt með henni fyrir marga.
Eins segir hún djúpnæringarnar frá Kérastase einnig fjöl-
breyttar og góðar.
„Til að vera með fallegt hár þurfum við að spá og spekúlera að-
eins í hárvörunum sem við notum. Síðan mæli ég alltaf með því að
fá aðstoð frá fagfólki líka.“
Af hverju skiptir hárið að þínu mati svona miklu máli?
„Það skiptir jafnmiklu máli og allt annað í lífinu. Við viljum
eiga fallega skartgripi, keyra um á huggulegum bílum og svo
framvegis og því ekki í takt að sinna ekki hárinu okkar eins og
öllu öðru á líkamanum eða í kringum okkur. Það er mjög mikil
sjálfsvirðing að vera með fallegt hár.“
„Peachy
blond“-litað
hár eftir Mar-
gréti Ósk.
Ertu nokkuð
að gleyma
hárinu?
Margrét Ósk Brynjólfsdóttir verður
hárgreiðslumeistari eftir þrjá mánuði. Hún
mælir með sérstakri aðferð til að handlita
hárið svo það fái náttúrulegri áferð.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Hár
eftir
litun.
Hár fyrir
litun.
Hárið fyrir
„peachy
blond“-litunina.
FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021 MORGUNBLAÐIÐ 53
Multi-Gyn vörulínan
– fyrir konur –
Vörurnar fást í næsta apóteki og versluninni Móðurást
Multi-Gyn vörurnar innihalda allar einkaleyfisvarða efnasambandið 2QR sem gerir þær einstakar. 2QR er stór neikvætt hlaðin fjölsykra unnin úr Aloe vera
plöntunni. 2QR binst yfirborði örvera og kemur í veg fyrir að örverurnar geti loðað við þekjuvefsfrumur í leggöngum. Þannig er komið í veg fyrir að örverur
komist inn í frumur og valdi sýkingu. 2QR efnasambandið hefur kælandi og græðandi áhrif ásamt því að geta meðhöndlað og fyrirbyggt sýkingar. Öll önnur
innihaldsefni varannna eru náttúruleg.
Multi-Gyn ActiGel
• Fyrirbyggir og meðhöndlar bakteríusýkingu
(skeiðarsýklun) og óþægindi í leggöngum
og á kynfærasvæði.
• Gelið dregur úr helstu einkennum
bakteríusýkingar s.s. vondri lykt
sem minnir á fiskilykt, útferð sem
er þunn og gráhvít, kláða,
roða og ertingu.
Multi-Gyn kompressur
• Meðhöndlar og fyrirbyggir óþægindi á
kynfæra- og klofsvæði s.s. ertingu,
útbrot, of teygða húð, minniháttar sár,
sprungur og gyllinæð.
• Sérstaklega hentugar til að draga úr
óþægindum á meðgöngu og strax
eftir fæðingu.
• Kompressurnar eru kælandi og græð-
andi og styðja við náttúrulegan gróanda
húðarinnar. Einnig draga þær úr bólgum.
• Má nota beint á sauma og sár.
• Má setja í kæli til að auka kæliáhrif.
Multi-Gyn FloraPlus
• Áhrifarík meðferð við sveppasýkingu
í leggöngum og einkennum hennar
s.s. kláða, sviða, ertingu og
kornóttri hvítri útferð sem
minnir á kotasælu.
• Inniheldur bætisykrur sem styðja
við vöxt góðra Lactobacillus
baktería og stuðla að réttu
sýrustigi í leggöngum.
Multi-Gyn LiquiGel
• Meðhöndlar þurrk í leggöngum.
• Virkar hratt gegn leggangaþurrki og
einkennum hans eins og ertingu og kláða
• Fyrirbyggir ertingu við samfarir.
Má nota sem sleipiefni.
• Stuðlar að náttúrulegum raka
í leggöngum.
Við
sveppa-
sýkingu
Við
legganga-
þurrki
Við
bakteríu-sýkingu
Við
óþægindum
á ytra
klofsvæði