Morgunblaðið - 12.02.2021, Page 53

Morgunblaðið - 12.02.2021, Page 53
ég dugleg að prófa mig áfram með þær. Það sem ég er að nota núna er sjampó og næring úr Elilxir Ultime- línunni. Ég geri það til að fá meira líf og glans í hárið.“ Hvaða hitavörn notarðu í þitt hár? „Ég nota Nectar Thermique- hitavörnina frá Kérastase.“ Hún segir einkennilegt til þess að hugsa að við konur erum oft með snúð í hárinu á kvöldin að bera á okk- ur fín og dýr krem, en gleymum svo að bera góð efni í hárið okkar á sama tíma. „Ef við viljum hafa fallegt, glansandi ræktarlegt hár, verðum við að muna að djúpnæra hárið eða nota gott serum í það.“ Mikil sjálfsvirðing að vera með fallegt hár Hvað gerir serum? „Sem dæmi þá er Nutritive 8 klukkustunda nætur-serumið æðislegt efni fyrir svefninn. Það vinnur í skemmdum í hárinu og gefur betri glans og nærir það; án þess að hárið verði feitt eða þungt daginn eftir. Eins geturðu notað æðislega hitavörn í hárið um kvöldið þegar þú átt von á að klukka hárið um morguninn. Þá vinnur vörnin í M argrét Ósk, hársnyrtisveinn á Hárgreiðslustofu Hrafnhildar, verður meistari í faginu sínu eftir þrjá mánuði. Hún er fegin að náttúrulegt og heilbrigt hár sé komið aftur í tísku og er búin að tileinka sér litunaraðferð sem er vinsæl um þessar mundir. „Nú eru náttúrulegir litir allsráðandi og köldu tónarnir að fara meira út. Hárið er litað með „balayage“-litaaðferðinni þar sem fagaðilinn handlitar hárið. Með aðferðinni má ná fram mildri lýsingu í hárið og það verður ræktarlegra og virkar þannig þykkara. Við erum ekki að notast við álpappír eins og þegar hárið er strípað svo þessi aðferð ýtir undir glæsileika konunnar.“ Margrét Ósk segir að „balayage“-litaaðferðin sé ekki kennd í náminu, heldur hafi hún komið til landsins í gegnum samfélags- miðla. Hvernig hugar þú að þínu eigin hári? „Með því að nota alltaf góðar hárvörur og hitavörn. Ég reyni sem minnst að nota aflitun í mitt hár og lita mig með „balyage“- aðferðinni tvisvar til þrisvar á ári. Það dugar mér alveg.“ Margrét Ósk er dugleg að prófa sig áfram þegar kemur að hár- vörum en er mikið fyrir Kérastase-vörurnar núna. „Við erum með nóg af góðum hársnyrtivörum í landinu og er Margrét Ósk er ánægð með hártísk- una um þessar mundir. hárinu yfir nótt- ina. Djúpnær- ingar eru einnig mikilvægar á þessum árstíma og má finna alls- konar djúpnær- ingar í hárið eft- ir því hvað er þörf að byggja upp tengt raka.“ Margrét Ósk notar djúpnæringuna Hydrate-me frá Kevin Murphy þessa dagana, og getur mælt með henni fyrir marga. Eins segir hún djúpnæringarnar frá Kérastase einnig fjöl- breyttar og góðar. „Til að vera með fallegt hár þurfum við að spá og spekúlera að- eins í hárvörunum sem við notum. Síðan mæli ég alltaf með því að fá aðstoð frá fagfólki líka.“ Af hverju skiptir hárið að þínu mati svona miklu máli? „Það skiptir jafnmiklu máli og allt annað í lífinu. Við viljum eiga fallega skartgripi, keyra um á huggulegum bílum og svo framvegis og því ekki í takt að sinna ekki hárinu okkar eins og öllu öðru á líkamanum eða í kringum okkur. Það er mjög mikil sjálfsvirðing að vera með fallegt hár.“ „Peachy blond“-litað hár eftir Mar- gréti Ósk. Ertu nokkuð að gleyma hárinu? Margrét Ósk Brynjólfsdóttir verður hárgreiðslumeistari eftir þrjá mánuði. Hún mælir með sérstakri aðferð til að handlita hárið svo það fái náttúrulegri áferð. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Hár eftir litun. Hár fyrir litun. Hárið fyrir „peachy blond“-litunina. FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021 MORGUNBLAÐIÐ 53 Multi-Gyn vörulínan – fyrir konur – Vörurnar fást í næsta apóteki og versluninni Móðurást Multi-Gyn vörurnar innihalda allar einkaleyfisvarða efnasambandið 2QR sem gerir þær einstakar. 2QR er stór neikvætt hlaðin fjölsykra unnin úr Aloe vera plöntunni. 2QR binst yfirborði örvera og kemur í veg fyrir að örverurnar geti loðað við þekjuvefsfrumur í leggöngum. Þannig er komið í veg fyrir að örverur komist inn í frumur og valdi sýkingu. 2QR efnasambandið hefur kælandi og græðandi áhrif ásamt því að geta meðhöndlað og fyrirbyggt sýkingar. Öll önnur innihaldsefni varannna eru náttúruleg. Multi-Gyn ActiGel • Fyrirbyggir og meðhöndlar bakteríusýkingu (skeiðarsýklun) og óþægindi í leggöngum og á kynfærasvæði. • Gelið dregur úr helstu einkennum bakteríusýkingar s.s. vondri lykt sem minnir á fiskilykt, útferð sem er þunn og gráhvít, kláða, roða og ertingu. Multi-Gyn kompressur • Meðhöndlar og fyrirbyggir óþægindi á kynfæra- og klofsvæði s.s. ertingu, útbrot, of teygða húð, minniháttar sár, sprungur og gyllinæð. • Sérstaklega hentugar til að draga úr óþægindum á meðgöngu og strax eftir fæðingu. • Kompressurnar eru kælandi og græð- andi og styðja við náttúrulegan gróanda húðarinnar. Einnig draga þær úr bólgum. • Má nota beint á sauma og sár. • Má setja í kæli til að auka kæliáhrif. Multi-Gyn FloraPlus • Áhrifarík meðferð við sveppasýkingu í leggöngum og einkennum hennar s.s. kláða, sviða, ertingu og kornóttri hvítri útferð sem minnir á kotasælu. • Inniheldur bætisykrur sem styðja við vöxt góðra Lactobacillus baktería og stuðla að réttu sýrustigi í leggöngum. Multi-Gyn LiquiGel • Meðhöndlar þurrk í leggöngum. • Virkar hratt gegn leggangaþurrki og einkennum hans eins og ertingu og kláða • Fyrirbyggir ertingu við samfarir. Má nota sem sleipiefni. • Stuðlar að náttúrulegum raka í leggöngum. Við sveppa- sýkingu Við legganga- þurrki Við bakteríu-sýkingu Við óþægindum á ytra klofsvæði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.